Framlag Kjarnans á árinu 2015

Kjarninn er fimm ára í vik­unni. Af því til­efni verður rifjað upp það helsta sem hann hafði til mál­anna að leggja á hverju því starfs­ári sem hann hefur verið til, á hverjum degi í þess­ari viku. Í dag er farið yfir árið 2015.

Föstu­dag­inn 23. jan­úar 2015 skap­að­ist ­at­hygl­is­vert ástand á Íslandi. Kvöldið áður hafði maður sem hafði misst fyr­ir­tækið sitt í hendur banka, Víglundur Þor­steins­son, sent frá sér gögn til þing­manna og fjöl­miðla sem hann sagði sýna fram á að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ilar hafi af óbil­girni framið stór­felld lög­brot og beitt blekk­ingum til að hafa 300-400 millj­arða króna af íslenskum heim­ilum og fyr­ir­tækj­um. Þetta fé hafi þess í stað runnið til kröfu­hafa.

Rök­stuðn­ingur Víg­lundar var sá að bráða­birgða­mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á eignum sem fluttar voru úr þrota­búum föllnu bank­anna ætti að vera end­an­legur úrskurður um virði þeirra.

Mál­flutn­ingur Víg­lundar er vel þekkt­ur, enda var þetta í þriðja sinn sem hann steig fram og bar hann á borð. Hann hélt hins vegar ekki vatni, líkt og kom fram í umfjöllun Kjarnans um málið.

Illugi Gunn­ars­son komst í vand­ræði þegar upp komst að hann hefði þegið fjár­stuðn­ing frá Hauki Harð­ar­syni, stjórn­ar­for­manni Orku Energy. Í honum fólst að Haukur keypti íbúð Illuga af honum og leigði honum hana síðan aftur auk þess sem Illugi hafði starfað sem ráð­gjafi hjá Hauki. Þetta fjár­hags­lega hæði var tor­tryggt vegna þess að Illugi tók Hauk með í opin­bera heim­sókn til Kína í mars 2015 og opn­aði fyrir honum við­skipta­legar dyr. Illugi hefur ætið þver­tekið fyrir að hafa gert nokkuð óeðli­legt.

Samhliða gríð­ar­legri fjölgun ferða­manna jókst þrýst­ingur á stefnu­mótun og gjald­töku á ferða­manna­stöðum til upp­bygg­ingar. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir lagði fram frum­varp um nátt­úrupassa sem vakti mjög harða gagn­rýni víð­ast hvar, og svo fór að ákveðið var að málið færi ekki lengra, enda eng­inn stuðn­ingur við aðferð­ina.

ESB og fjárkúgun

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra greindi frá því í mars að hann hefði afhent utan­rík­is­ráð­herra Lett­lands bréf um að rík­is­stjórnin liti svo á að Ísland væri ekki lengur umsókn­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu. Málið var gríð­ar­lega umdeilt og sam­kvæmt könnun Frétta­blaðs­ins var mik­ill meiri­hluti Íslend­inga ósáttur við fram­göngu Gunnars Braga. ESB leit svo á að þetta væri ekki form­leg aft­ur­köllun og stjórn­ar­and­staðan sendi eigið bréf og sagði það Alþingis að taka ákvörðun af þessu tagi.

Í byrjun júní voru systur á fer­tugs­aldri eru hand­teknar í úthverfi Hafn­ar­fjarðar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Önnur var fyrr­ver­andi ást­kona umsvifa­mik­ils fjöl­miðla­eig­anda sem á sér langa póli­tíska for­sögu. Þær ætl­uðu að not­færa sér upp­lýs­ingar sem áttu að sýna fram á að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði tekið þátt í fjár­mögnun á kaupum á fjöl­miðli án þess að slík kaup væru gerð opin­ber, til að hafa af for­sæt­is­ráð­herr­anum átta millj­ónir króna. Þetta hljómar eins kvik­mynda­hand­rit, en var íslenskur veru­leiki. Og Kjarninn gerði honum skil­merki­lega grein í ítar­legum frétta­skýr­ingum.

Losun hafta voru kynnt með mikilli viðhöfn í Hörpu í júní 2015.
Losun hafta voru kynnt með mik­illi við­höfn í Hörpu í júní 2015.

Um svipað leyti kynntu stjórn­völd áætlun sína um losun hafta. Hún byggði á því að slita­búum föllnu bank­anna var gefin kostur á því að semja um að greiða stöð­ug­leika­fram­lag gegn því að klára nauða­samn­inga sína eða fá á sig 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt. Eftir að kynn­ing­unni lauk kom í ljós að öll slita­búin höfðu þegar samið um að ljúka mál­inu með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags.

Skráning Símans og menningarlegur rasismi

Ákveðið var að skrá Símann á markað í októ­ber 2015. Kjarninn greindi frá því að áður fengu tveir hópar að kaupa hlut á lægra verði en bauðst í útboð­inu. Annar hóp­ur­inn var sam­an­settur af helstu stjórn­endum Símans og fjár­festum sem þeir tengdu saman. Þeir fengu að kaupa á gengi sem var um þriðj­ungi lægra en útboðs­gengið.

Þá fengu valdir vild­ar­við­skipta­vinir Arion banka að kaupa á lægra verði líka. Bankinn við­ur­kenndi að gagn­rýni á sölu til vild­ar­við­skipta­vina hefði verið rétt­mæt en stóð með ákvörð­un­inni að selja stjórn­enda­hópnum.

Í íslenskri stjórn­mála­orð­ræðu má tví­mæla­laust greina sterkan menn­ing­ar­legan ras­isma. Þetta var nið­ur­staða rann­sóknar sem gerð var við Háskól­ann á Bifröst og Kjarninn greindi einn fjöl­miðla frá. Þar ber helst að nefna moskumálið, hug­myndir Ásmundar Frið­riks­sonar um bak­grunns­rann­sókn á múslimum og umræð­una í kringum skipan Gústafs Níels­sonar í mann­réttinda­ráð Reykja­víkur. Árið 2015 var árið þar sem opin­ber umræða um útlend­inga, inn­flytj­endur, fjöl­menn­ingu og alþjóða­sam­skipti náði nýjum hæðum. Og Kjarninn tók sam­stundis for­ystu í þeirri umræðu.

Mikil umræða spratt upp um menningarlegan rasisma í íslenskri orðræðu. Þar var meðal annars vísað til orða Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um bakgrunnsrannsókn á múslimum.
Mikil umræða spratt upp um menn­ing­ar­legan ras­isma í íslenskri orð­ræðu. Þar var meðal ann­ars vísað til orða Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, um bak­grunns­rann­sókn á múslimum.

Á árinu komst umræða um sæstreng til Bret­lands á flug og ákváðu David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra að skipa vinnu­hóp til að taka út mögu­leika þeirrar fram­kvæmdar. Lands­virkjun hafði auk þess staðið í samn­inga­við­ræðum við Norðurál um end­ur­nýjun raf­orku­samn­ings og mik­ill þrýst­ingur hefur skap­ast á fyr­ir­tækið að selja ork­una áfram á lágu verði til að verja störf, meðal ann­ars frá verka­lýðs­fé­lagi og Samtökum Iðn­að­ar­ins. For­stjóri Lands­virkj­unar, sagði á þessum tíma að aukin arð­semi fyr­ir­tæk­is­ins sé eitt mesta efna­hags­lega hags­muna­mál íslensku þjóð­ar­innar. Kjarninn tók virkan þátt í umræðu um þetta mik­il­væga hags­muna­mál og stóð meðal ann­ars fyrir opnum fundi um lagn­ingu strengs­ins.

Trú og loftlagsmál

Í októ­ber var birt könnun sem sýndi að mik­ill meiri­hluti þjóð­ar­innar er fylgj­andi aðskiln­aði ríkis og kirkju. Alls voru þá tæp­lega 90 þús­und Íslend­ingar utan þjóð­kirkj­unnar. Á árinu komst sam­visu­frelsi presta til að meina sam­kyn­hneigðum um gift­ingu í umræð­una og var á end­anum bannað. Aukin fram­lög til kirkj­unnar voru einnig gagn­rýnd mjög og Ólöf Nordal, þá inn­an­rík­is­ráð­herra, opn­aði á að taka öll sam­skipti ríkis og kirkju upp. Svo náðu Zúistar, trú­fé­lag sem ætl­aði að end­ur­greiða öll sókn­ar­gjöld, í yfir 3.000 fylgj­endur. Kjarninn var leið­andi í umfjöllun um þessi mál á árinu 2015.

Í sama mán­uði greindi Kjarninn frá því að félag í eigu Árna Harð­ar­son­ar, stjórn­ar­manns og lög­manns lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, ætti um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem voru að baki hóp­mál­sókn ­gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni. Árni átti hluta­bréf­in, sem hann hafði keypt af islenskum líf­eyr­is­sjóðum í vik­unni á undan, í gegnum félag sem heitir Urriða­hæð ehf. Sam­tals greindi Árni á milli 25 til 30 millj­ónir króna fyr­ir­ hluta­bréf­in, sem voru verð­laus nema að til tæk­ist að fá við­ur­kennt fyr­ir­ ­dóm­stólum að Björgólfur Thor ætti að greiða fyrrum hlut­höfum Lands­bank­ans skaða­bæt­ur. Til við­bótar þurfti Urriðhæð að greiða sinn hluta máls­kostn­að­ar.

Árni er nán­asti sam­starfs­maður Róberts Wessmans. Þeir störf­uðu áður báðir hjá Actavis, á meðan að Björgólfur Thor var aðal­eig­andi þess fyr­ir­tæk­is. Síðan að Árni og Róbert hættu störfum hjá Actavis árið 2008 hefur andað veru­lega köldu milli þeirra og Björg­ólfs Thors. Hann hafði meðal ann­ars stefnt þeim til greiðslu skaða­bóta fyrir mein­tan fjár­drátt auk þess sem báðir aðilar höfðu ítrekað atyrt hinn á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum.

Málinu var á end­anum vísað frá.

Kjarninn fjallaði ítarlega um kaupin á Borgun. Og var verðlaunaður fyrir. Mynd: EPA
Kjarninn fjall­aði ítar­lega um kaupin á Borgun. Og var verð­laun­aður fyrir. Mynd: EPA

Sögulegt sam­komu­lag um lofts­lags­mál náð­ist í París um miðjan des­em­ber. Er þetta víð­tæk­asta alþjóða­sam­komu­lag sem gert hefur verið enda sam­þykktu það nær öll ríki heims. Sam­eig­in­legt mark­mið ríkj­anna sem skrif­uðu undir er að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og hægja á hlýnun jarðar. Um er að ræða mark­mið næstu ára­tuga en margt er þó enn óráðið; munu ríkin inn­leiða mark­mið sín um minni losun? Er hlýnun jarðar innan við tvær gráður raun­hæft mark­mið? Ísland samdi með Evr­ópu­sam­band­inu og Noregi og mun semja um hlut­deild sína í sam­komu­lag­inu á nýju ári. Kjarninn var á staðnum.

Blaðamannaverðlaun fyrir umfjöllun um Borgun

Kjarninn hafði opnað hið svo­kall­aða Borg­un­ar­mál seint á árinu 2014. Umfjöllun um það hélt áfram af miklum krafti á árinu 2015 og Magnús Hall­dórs­son, blaða­maður Kjarnans, var til­nefndur til Blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins fyrir ítar­lega umfjöllun um sölu á hlutum Lands­bank­ans í Borgun í lok­uðu sölu­ferli og vís­bend­ingar um að hlutur Lands­bank­ans hafi ver­ið ­seldur á und­ir­verði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hags­munum eig­enda sem er almenn­ingur í land­inu.

Magnús hlaut verð­launin snemma árs 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár