Heiminum bjargað?

Þjóðir heims komust að sam­komu­lagi um lofts­lags­mál í París um helg­ina þegar COP21-ráð­stefn­unni lauk við fögnuð við­staddra.

Laurent Fabius lætur hamarinn falla við fögnuð viðstaddra í ráðstefnusalnum á laugardaginn.
Laurent Fabius lætur ham­ar­inn falla við fögnuð við­staddra í ráð­stefnusalnum á laug­ar­dag­inn. Mynd: EPA

Þjóðir heims komust að sam­komu­lagi um lofts­lags­mál á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í París á laug­ar­dags­kvöld, eftir spennu­þrungna bið eftir frönsku fund­ar­stjórn­inni í stóru ráð­stefnu­söl­unum. Sendi­full­trúar þjóð­anna höfðu beðið í nokkra klukku­tíma og farnir að ótt­ast að eitt­hvað hefði komið uppá; að ein­hverjum hefði snú­ist hugur, þegar Laurent Fabius, for­seti ráð­stefn­unnar óð á sviðið og lýsti því yfir að búið væri að ganga frá sam­komu­lagi með því að fella græna ham­ar­inn og slíta ráð­stefn­unni.

„Fólk hróp­aði, faðm­að­ist og lamdi í borðin áður en það skipti kaffi út fyrir bjór. Fyrir fjölda stefnu­mót­un­ar­sér­fræð­inga hafði lífs­starfið skilað árangri,“ skrifar John D. Sutter, lofts­lags­fræð­ingur CNN, í frétta­bréf sitt eftir ráð­stefn­una.

Sam­komu­lag­inu hefur verið lýst sem sögu­legu, end­an­legu og metn­að­ar­fullu. Sumir hafa lýst því sem merki­leg­asta diplómat­íska afreki allra tíma, enda var þetta lang stærsta ráð­stefna sög­unnar og metn­að­ar­fyllsta verk­efni sem nokkur stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur tekið að sér. Sam­komu­lagið á að taka gildi árið 2020 og taka við af Kyoto-sam­komu­lag­inu sem gert var árið 1997 og fram­lengt 2012.

Öll lönd, hvort sem það eru þró­un­ar­lönd eða iðn­vædd ríki, þurfa að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda þar sem stefnt er að því að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráður og reynt að hlífa heim­inum við meira en 1,5 gráðu hækkun. Til þess verða mark­mið ríkj­anna end­ur­skoðuð reglu­lega. Fátækum löndum og þeim þjóðum sem verða fyrir hörm­ungum vegna lofts­lags­breyt­inga verður veitt fjár­hags­leg aðstoð úr lofts­lags­sjóðum sem samn­ing­ur­inn til­greinir.

Allt eru þetta mark­mið sem búið var að nefna og skil­greina áður en ráð­stefnan hófst fyrir tveimur vikum. Það eru hins vegar ekki öll atrði samn­ings­ins laga­lega bind­andi. Slíkt er að öllum lík­indum ómögu­legt þegar nærri 200 ríki koma saman til að þess að kom­ast að sam­komu­lagi; taka þarf til­lit til aðstæðna hvar­vetna og hvert ríki þarf að gefa eftir kröfur sínar til þess að hægt sé að kom­ast að sam­komu­lagi en það er aug­ljóst að slíkur samn­ingur verður aldrei eins beittur og ætl­ast er til.

Samn­ing­ur­inn er þess vegna ekki full­kom­inn. Los­un­ar­heim­ildir ríkj­anna eru enn nokkuð lausar og byggj­ast á þeim mark­miðum sem þau lögðu sjálf fyrir ráð­stefn­una áður en hún hófst. Samkvæmt grein­ingu Climate Action Tracker munu þau stefnu­mót­un­ar­mark­mið leiða til hlýn­unar jarðar um 2,7 til þrjár gráður sé miðað við með­al­hita jarðar fyrir iðn­bylt­ingu. Slík hlýnun mun hafa í för með sér tíð­ari hörm­ungar vegna veð­urs, bráðunar jökla og þar fram eftir göt­unum. Slíkri hlýnun fylgir jafn­framt að ekki verður hægt að snúa þró­un­inni við. Því fylgir svo að eftir á að fram­fylgja stefnu­mót­un­ar­mark­mið­unum með laga­setn­ingu heima fyrir. Víða kann það að reyn­ast erfitt, eins og í Banda­ríkj­unum þar sem and­staða við inn­grip stjórn­valda er hvað mest.

Fátæku löndin hafa áhyggur af því að pen­ing­arnir, að minnsta kosti 100 millj­arðar Banda­ríkja­dala, muni ekki skila sér og að upp­hæðin muni ekki duga til þess að þau geti varið sig fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Skref í rétta átt

„Par­ís­ar­sam­komu­lagið er aðeins eitt skref á langri götu,“ er haft eftir Kumi Naidoo, fram­kvæmda­stjóra Greenpeace, í frétta­til­kynn­ingu frá sam­tök­unum. „Það eru kaflar sem pirra mig og ég varð fyrir von­brigðum með, en þetta er skref í rétta átt. Þessi samn­ingur einn mun ekki grafa okkur úr hol­unni sem við erum, en hann minnkar brattar brúnir hol­unnar.“

„Það er erfitt að leggja of mikla áherslu á hversu mik­il­vægt sam­komu­lagið í París er,“ skrifar Sutter, lofts­lags­sér­fræð­ingur CNN, í frétta­bréf sitt sem hann kallar „2°“. „Þetta eru skýr skila­boð til stjórn­ar­manna fyr­ir­tækja og stjórn­valda um allan heim: Tímabil jarð­efna­elds­neytis er búið og við brennum hratt í átt að hreinni orku.“

Sam­komu­lagið leggst einnig vel í sam­tök fyr­ir­tækja í einka­rekstri. We Mean Business Coalition, sam­tök margra af stærstu fyr­ir­tækjum í heimi, voru mjög sýni­leg á ráð­stefn­unni í París. „Par­ís­ar­sam­komu­lagið mun breyta fjár­fest­ingum okkar í millj­arð­ana sem heim­ur­inn þarf til þess að veita hreinni orku og vel­megun til allra,“ er haft eftir Nigel Topping, fram­kvæmda­stjóra We Mean Business. Sam­komu­lagið og mark­miðin sem þar eru tíunduð leggja mikla áherslu á hlut fyr­ir­tækja í einka­rekstri, bæði þegar kemur að nýsköpun og fram­lögum í lofts­lags­sjóði.

Það lýsir sér kannski best í gagn­rýni fólks sem á nátt­úr­leg heim­kynni á til­teknum slóðum. „Par­ís­ar­sam­komu­lagið er við­skipta­samn­ingur, ekk­ert meira,“ segir Alberto Saldam­ando, mann­rétt­inda­sér­fræð­ingur og sak­sókn­ari, sem talað hefur fyrir rétt­indum frum­byggja víða um heim. „Í sam­komu­lag­inu er fall­ist á einka­væð­ingu skóg­lendis með kolefn­is­upp­bótum í óheið­ar­legu kerfi.“

Saldam­ando bendir hér á mik­il­vægan þátt í gagn­rýn­inni á aðgerðir í lofts­lags­málum, sem er kaup og sala á los­un­ar­heim­ildum og svoköll­uðum kolefn­is­upp­bótum. Það er þegar ríki kaupir sér rétt til að losa meira af gróðu­húsa­loft­teg­undum með því að styðja við skóg­rækt eða aðgerðum til að vega upp á móti los­un­inni ann­ars­staðar í heim­inum; oft í heim­kynnum frum­byggja sem lifa á nátt­úr­unni. Með Par­ís­ar­samn­ingnum er kerfi, sam­bæri­legt því sem komið var á fót með Kyoto-bók­un­inni, komið á fót. Þar geta ríki keypt og selt los­un­ar­heim­ildir.

Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, sagði í sam­tali við Kjarnann fyrir helgi að mik­il­væg­ast væri að hægt væri að vinna með sam­komu­lagið áfram, því hér væri aðeins verið að stíga fyrsta skrefið. Ekki skipti öllu máli hversu öfl­ugt sam­komu­lagið sé. Undir það tekur Naidoo hjá Greenpeace og gerir að umtals­efni í frétta­til­kynn­ingu. „Í dag [laug­ar­dag] hefur mann­kynið sam­mælst um sam­eig­in­legt mark­mið, en það er hvað skeður eftir ráð­stefn­una sem skiptir máli.“

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra segir ákvarð­anir hafa verið teknar um nýtt upp­haf og nýja heims­mynd. „Þetta eru skila­boð um að breytta hegðun ríkja og ein­stak­linga, sem er mögu­leg vegna nýrrar tækni sem á eftir að þró­ast í fram­tíð­inni. […] Þetta sýnir að það skiptir engu hvort ríki eru stór eða smá — við erum öll undir sama þak­inu,“ er haft eftir Sigrúnu í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins. Ekki er enn ljóst hversu ríkar skyldur Íslend­inga verða vegna þessa sam­komu­lags í París því stefnu­mót­un­ar­mark­mið Íslend­inga er í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið. Enn á eftir að semja um heim­ildir og skyldur ein­stakra ríkja í því sam­starfi. Saman ætlar Ísland, Noregur og Evr­ópu­sam­bandið að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent miðað við losun árs­ins 1990.

Nóbelsverðlaun fyrir Fabius

Franski utan­rík­is­ráð­herran Laurent Fabius stýrði við­ræð­unum í París og veitti ráð­stefn­unni for­sæti. Hann er tal­inn hafa staðið sig frá­bær­lega í þessu hlut­verki. Svo vel raunar að rætt hefur verið um að hann verði til­nefndur til Nóbels­verð­launa fyrir elju sína og jafn­að­ar­geð.

„Ég hef heyrt að menn eru það ánægðir með utan­rík­is­ráð­herra Frakka að það hefur verið rætt hvort samn­inga­nefnd­in­arnar hér eigi ekki að til­nefna hann til Nóbels­verð­launa,“ sagði Sigrún í sam­tali við Kjarnann. „Af því að þeim finnst hann hafa staðið sig það vel; alltaf rólegur og hvernig hann hefur getað siglt í gegnum þetta. Það er nátt­úr­lega ótrú­lega erfitt að stýra 195 þjóðum að einu mark­miði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár