Mikill meirihluti Íslendinga ósáttur við Gunnar Braga í ESB-málinu

Næstum tveir af hverjum þremur Íslend­ingum eru ósáttir við fram­göngu utan­rík­is­ráð­herra í Evr­ópu­málum. Þetta kemur fram í könnun sem Frétta­blaðið lét gera, og vitnað er til á

for­síðu blaðs­ins í dag

.


Mikill meiri­hluti Íslend­inga, eða 63 pró­sent, er ósáttur við fram­göngu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í Evr­ópu­málum.

Mikill meiri­hluti Íslend­inga, eða 63 pró­sent, er ósáttur við fram­göngu Gunnars Braga, en aftur á móti eru 24 pró­sent sátt við fram­göngu hans.

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra greindi frá því um sex­leytið á fimmtu­dag í síð­ustu viku að hann hefði afhent utan­rík­is­ráð­herra Lett­lands bréf um að rík­is­stjórnin hefði ekki í hyggju að taka upp aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið á nýjan leik. Lettar fara nú með for­mennsku í ráð­herra­ráði ESB.

Síðan það kom fram haf heitar póli­tískar umræður verið um málið. ESB lítur svo á að aðild­ar­um­sóknin hafi ekki form­lega verið aft­ur­kölluð.

Af þeim sem tóku afstöðu segj­ast 44 pró­sent vera mjög ósátt, 19 pró­sent segj­ast vera frekar ósátt, 13 pró­sent segj­ast hvorki vera sátt né ósátt, 9 pró­sent segj­ast vera frekar sátt og 15 pró­sent mjög sátt.

Þegar svör allra eru skoðuð sést að 39 pró­sent eru mjög ósátt, 16 pró­sent eru frekar ósátt, 11 pró­sent eru hvorki sátt né ósátt, 8 pró­sent eru frekar sátt og 13 pró­sent eru mjög sátt. Átta pró­sent eru óákveðin og fjögur pró­sent svara ekki.

Könnunin var gerð 18. og 19. mars. Hringt var í 1.078 manns þar til náð­ist í 801 sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki. Það er 74,3% svar­hlut­fall. Svar­endur skipt­ust jafnt eftir kyni, og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár