Norski bankinn DNB hefur verið álitinn besti kosturinn

DNB bank­inn norski, þar sem norska ríkið er stærsti eig­andi, hefur þó nokkra stóra við­skipta­vini hér á landi. Ef Íslands­banki verður seldur þykir hann spenn­andi kostur sem kaup­andi.

Norski bank­inn DNB er sá banki á Norð­ur­lönd­unum sem hefur einna oft­ast verið nefndur sem góður kaup­andi að Íslands­banka, þegar að því kemur að íslenska ríkið selji bank­ann. Ríkið eign­að­ist bank­ann að fullu með stöð­ug­leika­samn­ing­unum svoköll­uðu, þegar leyst var úr vanda slita­búa föllnu bank­anna.

Í nokkur skipti eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins - og end­ur­reisn þess í kjöl­farið - hafa átt sér stað sam­töl við full­trúa bank­ans, bæði innan slita­stjórnar Glitnis og íslenska stjórn­kerf­is­ins, þar sem rætt hefur verið um þennan mögu­leika.

Sér­stak­lega voru þessar við­ræður í hávegum í byrjun árs­ins 2012 en slita­stjórn Glitnis hafði þá fengið UBS bank­ann sviss­neska til að kanna mögu­leika á sölu á eign­ar­hluta sínum í Íslands­banka, sem þá var 95 pró­sent hlutur.

Þá hefur DNB einnig sótt nokkuð inn á íslenskan markað fyrir fyr­ir­tækja­lán.

Þannig hafa nokkur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fært fjár­mögnun til bank­ans, þar sem hann hefur getað boðið betri og sveigj­an­legri fjár­mögnun heldur en íslensku bank­arnir, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Íslands­banki og DNB gerðu með sér samn­ing um eigna­stýr­ingu 1. des­em­ber 2010 og því hefur verið nokkur tengsl milli bank­anna um nokk­urra ára skeið.

Stór banki með norska ríkið sem stærsta eiganda

DNB bank­inn er risa­vax­inn á íslenskan mæli­kvarða. Heild­ar­eignir hans í lok árs 2017 námu um 33 þús­und millj­örðum króna (Miðað við ISK 14 NK), sam­an­borið við rúm­lega þús­und millj­arða hjá Íslands­banka á sama tíma.

Heild­ar­efna­hagur DNB er um það bil tíu sinnum stærri en heild­ar­eignir Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans sam­an­lagt.

Norska ríkið er stærsti eig­andi bank­ans með 34 pró­sent hlut. Í gegnum inn­stæðu­trygg­inga­sjóð, og einnig eign­ar­hluti sem heyra undir DNB banka, þá má segja að norska ríkið fari með rúm­lega 50 pró­sent hlut í bank­anum.

Aðrir eig­endur hans eru meðal ann­ars flest af stærstu alþjóð­legu eign­ar­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum heims­ins. Þannig á Black Rock, og sjóðir á vegum þess, 2,3 pró­sent hlut og sjóðir á vegum ann­ars risa, Vanguard, eiga 1,5 pró­sent hlut.

Bankinn er skráður í Noregi og hefur þar höf­uð­stöðvar. Starf­semi hans er hins vegar víða um heim, og hefur hann meðal ann­ars markað sér sér­stöðu á sviði fjár­mála­þjón­ustu í orku­geir­anum og mat­væla­iðn­aði, meðal ann­ars sjáv­ar­út­vegi.

Söluferlið hefjist fyrir lok kjörtímabilsins

Eins og kunn­ugt er hafa stjórn­völd hug á því að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald á íslenskum bönkum, meðal ann­ars með sölu á hluta­bréfum í rík­is­bönk­unum tveimur, Íslands­banka og Lands­bank­anum (98 pró­sent).

Ekki hefur verið form­lega farið af stað með þá vinnu, en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að stjórn­völd vilji hefja sölu­ferlið áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur, og er horft til þess að selja Íslands­banka í heild sinni, en að ríkið haldi síðan eftir kjöl­festu­eign­ar­hlut í Lands­bank­anum, á bil­inu 35 til 40 pró­sent.

Í hvít­bók um fjár­mála­kerfið, sem stjórn­völd létu taka saman og kynnt var í lok síð­asta árs, er fjallað um að stjórn­völd hafi nokkrar leiðir við sölu, meðal ann­ars að virkja til þess skráðan markað og finna nýja eig­endur í gegnum hann, eins og gert var þegar Arion banki var skráður á markað í tví­hliða skrán­ingu, bæði á Íslandi og í Svíþjóð.

Heild­ar­eigið fé rík­is­bank­ana tveggja, Íslands­banka og Lands­bank­ans, nemur um 450 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár