Hagnaður Landsbankans dregst saman

Lands­bank­inn skil­aði 11,6 millj­arða króna hagn­aði á fyrri hluta árs­ins og er hann 9% lægri en hagn­aður fyrri hluta árs­ins 2017. Helstu ástæður mink­un­ar­innar eru slæmt gengi á hluta­bréfa­mark­aði og launa­hækk­anir starfs­manna bank­ans.

Höfuðstöðvar Landsbankans við Austurstræti
Höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans við Aust­ur­stræti Mynd: Anton Brink

Hagnaður Lands­bank­ans á fyrri árs­helm­ingi nam 11,6 millj­örðum íslenskra króna og dróst saman um 9% frá því á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ar­minnkunin skýrist bæði af minni tekjum og auknum rekstr­ar­kostn­aði, en bank­inn segir óhag­stæðar aðstæður á verð­bréfa­mörk­uðum og samn­ings­bundna launa­hækkun starfs­manna hans hafa haft meg­in­á­hrif. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri bank­ans sem birt­ist í gær.

Rekstr­ar­tekjur bank­ans á fyrstu sex mán­uðum árs­ins námu 29 millj­örðum króna, í sam­an­burði við 29,3 millj­arða króna á fyrri árs­helm­ingi 2017. Aðrar rekstr­ar­tekjur lækk­uðu úr 5,4 millj­örðum króna niður í 3,9 millj­arða króna á sama tíma­bili, en sam­kvæmt bank­anum er sam­drátt­ur­inn aðal­lega til­kom­inn vegna óhag­stæðra aðstæðna á verð­bréfa­mörk­uðum.

Slæmt gengi á hlutabréfamarkaðnum

[links]Kjarninn greindi frá nið­ur­sveiflu und­an­far­inna mán­aða í skráðum fyr­ir­tækjum nýlega, þar sem OMX-vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækk­aði nær stöðugt allan annan árs­fjórð­ung­inn. Margir þættir voru þar að baki, þar á meðal óbreytt staða stýri­vaxta Seðla­bank­ans, fjöldi stór­tjóna sem lentu á trygg­inga­fyr­ir­tækj­unum og þrengri rekstr­ar­að­stæður hjá Icelandair. Samkvæmt árs­reikn­ingi Lands­bank­ans eru tæpir 28 millj­arðar bundnir í inn­lendum hluta­bréfum.

Minni vaxtamunur

Munur á inn-og útláns­vöxtum bank­ans nam 2,7% á fyrri helm­ingi árs­ins og hefur auk­ist um 0,2 pró­sentu­stig frá því á fyrri árs­helm­ingi í fyrra. Vaxta­mun­ur­inn hefur þó ekki náð jafn­miklum hæðum og hjá Íslands­banka og Arion, en sam­kvæmt árs­reikn­ingum bank­anna tveggja stóð munur á inn-og útláns­vöxtum þeirra í 2,9%.

Kynning á upp­gjöri Lands­bank­ans

Meiri kostnaður vegna launahækkana

Samkvæmt upp­gjöri bank­ans hækk­aði rekstr­ar­kostn­aður þess um 0,9% milli fyrri árs­helm­inga 2017 og 2018 og nemur nú 12,2 millj­örðum íslenskra króna. Helsti þáttur kostn­að­ar­aukn­ing­ar­innar voru samn­ings­bundnar launa­hækk­anir, en launa­kostn­aður félags­ins í ár nam 7,5 millj­örðum sam­an­borið við 7,1 millj­arð króna á sama tíma­bili í fyrra. Launa­hækk­an­irnar sem um ræðir voru meðal félags­manna Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja. Samkvæmt kjara­samn­ingi þeirra hækk­uðu launin ann­ars vegar um 5% þann fyrsta maí 2017 og svo aftur um 5% nákvæm­lega ári síðar.

Á móti hækk­andi launa­kostn­aði lækk­aði svo annar rekstr­ar­kostn­aður úr 4,9 millj­örðum króna niður í 4,6 millj­arða króna á sama tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár