Hundruð vísindamanna segja kórónuveiruna geta borist í lofti

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, er enn efins um að SARS-CoV-2, veiran sem veldur COVID-19, geti borist í lofti eins og fjöl­margir vís­inda­menn vilja meina. Stofn­unin telur rann­sóknir sem sýna eiga fram á þetta enn ófull­nægj­andi.

Mánuðum saman hafa vís­inda­menn bent á að nýja kór­ónu­veiran, SARS-CoV-2, geti hangið í and­rúms­lofti inn­an­dyra og sýkt þá sem verða á vegi hennar. Ef þetta reyn­ist rétt mun það breyta allri nálgun í sótt­vörnum, til að mynda þyrfti þá mögu­lega að bera grímur inn­an­dyra, jafn­vel á stöðum þar sem nánd­ar­mörk eru virt, svo sem á börum og veit­inga­húsum.

Í ítar­legri grein New York Times um málið kemur fram að loft­ræsti­kerfi, sem víða eru notuð til að dreifa lofti um bygg­ingar á borð við skóla­hús, hjúkr­un­ar­heim­ili, vinnu­staði og versl­un­ar­mið­stöðvar, geti dreift veirunni – ef vís­inda­menn­irnir hafa rétt fyrir sér.

WHO hefur lengi sagt að veiran breið­ist aðal­lega út með dropa­smiti og snert­ingu. Hún kom­ist út úr lík­ama fólks með hósta eða hnerra en haldi sig í drop­unum sem falli svo fljótt til jarðar.

En nú hafa 239 vís­inda­menn frá 32 löndum tekið sig saman og sent WHO opið bréf þar sem þeir rekja sann­anir fyrir því að smærri agnir en dropar geti orðið til þess að sýkja fólk. Vill hóp­ur­inn að WHO end­ur­skoði útgefnar leið­bein­ingar sínar um hvernig veiran smit­ast manna á milli.

Bene­detta Allegranzi, sem starfar hjá WHO, segir við New York Times að sann­anir fyrir því að veiran geti borist í lofti og valdið smiti séu ekki sann­fær­andi. Hún segir að WHO telji að veiran geti borist með smá­ögnum inni á sjúkra­húsum í kjöl­far lækn­is­að­gerða og að sam­kvæmt leið­bein­ingum eigi að hreinsa sjúkra­stofur sér­stak­lega vel eftir þær, bæði loft og fleti. Annars vill stofn­unin meina að smit­hættan sé mest í stærri ögnum: Dropunum umtöl­uðu.

Í sam­tölum New York Times við vís­inda­menn, m.a. þá sem sitja í ráð­gef­andi nefndum á vegum WHO, virð­ist sem stofn­unin sé skrefi á eftir vís­ind­unum í leið­bein­ingum sínum hvað þetta varðar. Vís­inda­menn­irnir segj­ast þó hafa samúð með starfs­fólki WHO, stofn­unin fái ekki það fjár­magn sem til þurfi og sé orðin bit­bein milli heims­velda í austri og vestri: Kína og Banda­ríkj­anna.

Blaðið hefur eftir Mary-Louise McLaws, far­alds­fræð­ingi við háskól­ann í Suður-Wales í Ástralíu, að ef rætt yrði af fullri alvöru um smit af veirum í lofti myndi það þýða stökk­breyt­ingu á við­brögðum WHO og þar með heil­brigð­is­yf­ir­valda um allan heim. Þetta þurfi þó að gera.

Þegar í apríl ráð­lagði hópur 36 sér­fræð­inga í loft­gæðum WHO að skoða vís­bend­ingar um að kór­ónu­veiran gæti dreifst með lofti. WHO fór yfir málið en nið­ur­staðan var sú að breyta ekki leið­bein­ingum um smit­leiðir. Einn sér­fræð­ing­anna, Lindsay Marr við tækni­há­skól­ann í Virginíu, segir að í ára­tugi hafi verið vitað að agnir komi út úr lík­am­anum þegar fólk hóstar – en líka þegar það talar.

Vís­inda­mönnum hefur hins vegar ekki tek­ist að rækta veiruna úr smáum ögnum á rann­sókn­ar­stofum. En Marr segir það ekki þýða að veiran geti ekki smit­ast með slíkum ögnum í and­rúms­loft­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár