Stefnt að því að sameina þrjá tónlistarsjóði í einn og skilgreina Sinfó sem þjóðareign

Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra hefur lagt fram drög að nýjum heild­ar­lögum um tón­list. Stofna á Tón­list­ar­mið­stöð, sjálfs­eign­ar­stofnun sem á að verða horn­steinn íslensks tón­list­ar­lífs og rekin með svip­uðum hætti og Íslands­stofa.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrír opin­berir sjóðir, tón­list­ar­sjóður, Hljóð­rita­sjóður og Útflutn­ings­sjóður íslenskrar tón­listar verða sam­ein­aðir undir merkjum nýs tón­list­ar­sjóðs, sam­kvæmt frum­varps­drögum sem Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra hefur lagt fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Um er að ræða ný heild­ar­lög, tón­list­ar­lög, sem sögð er „brýn þörf“ á að setja til þess að skýra lagaum­hverfi tón­listar á Íslandi. Með setn­ingu lag­anna, sem ráð­gert er að taki gildi um kom­andi ára­mót, munu eldri lög um Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og lög um tón­list­ar­sjóð falla niður.

Tónlistarmiðstöð sem á að tryggja fjölbreytni og grósku

Samkvæmt frum­varp­drög­unum á að stofna sér­staka Tón­list­ar­mið­stöð, sem á að verða sjálfs­eign­ar­stofnun með sam­bæri­legu rekstr­ar­fyr­ir­komu­lagi og Íslands­stofa.

Mun hún taka yfir hlut­verk Útflutn­ings­skrif­stofu íslenskrar tón­listar, m.a. við kynn­ingu á íslenskri tón­list og Íslenskrar tón­verka­mið­stöðvar sem nótna­veita fyrir íslensk tón­verk.

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að hinni nýju Tón­list­ar­mið­stöð sé „ætlað að verða einn af horn­steinum íslensks tón­list­ar­lífs og tón­list­ar­geirans“, en á meðal þess sem hún á að gera er að styðja við upp­bygg­ingu sprota­fyr­ir­tækja, sjá um að kynna íslenska tón­list, auk þess að „hlúa að ferli lista­fólks og tryggja fjöl­breytni og grósku í tón­list­ar­geir­anum hér á landi“.

[adspot]

Gert er ráð fyrir að stærstur hluti tekna Tón­list­ar­mið­stöðv­ar­innar verði þjón­ustu­samn­ingar við ríki, stofn­anir og sam­tök, ásamt öðrum til­fallandi fram­lögum.

Ráðherra mun skipa fimm manna stjórn yfir hina nýju Tón­list­ar­mið­stöð, til þriggja ára í senn. Fjórir stjórn­ar­menn verða til­nefndir af fjórum hags­muna­sam­tökum í tón­list­ar­geir­anum. STEF fær einn stjórn­ar­mann, Félag hljóm­plötu­fram­leið­anda einn, Félag íslenskra hljóm­list­ar­manna einn og Tón­skálda­fé­lag Íslands einn. Ráðherra mun svo skipa for­mann stjórn­ar­innar án til­nefn­ingar.

Fimmtán manna tónlistarráð til ráðgjafar

Í frum­varps­drög­unum er einnig gert ráð fyrir að sett verði á fót sér­stakt „tón­list­ar­ráð“ sem á að verða bæði stjórn­völdum og Tón­list­ar­mið­stöð­inni til ráð­gjafar um mál­efni sem varða tón­list. Samkvæmt frum­varps­drög­unum eiga allir hags­muna­að­ilar í íslensku tón­list­ar­sen­unni að eiga sæti í ráð­inu og er haldið utan um sér­stakan „hag­að­ila­lista“ í ráðu­neyt­inu.

Ekki verða færri en 15 full­trúar í ráð­inu til að byrja með, en fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varp­inu að eft­ir­far­andi sam­tök og stofn­anir séu á hag­að­ila­list­anum í dag: Bandalag íslenskra tón­leika­hald­ara, Bandalag íslenskra lista­manna, Félag hljóm­plötu­fram­leið­enda, Félag íslenskra hljóm­list­ar­manna, Félag tón­skálda og texta­höf­unda, Mengi, Menn­ing­ar­fé­lag Akur­eyrar, LHÍ Tón­list­ar­deild, List án landamæra, RÚV, Samtónn, Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, STEF, Tón­skálda­fé­lag Íslands, Tón­list­ar­borgin Reykja­vík.

Þjóðareignarákvæði um Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sem áður segir verða sér­lög um Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands felld niður ef þessi nýju heild­ar­lög um tón­list verða að veru­leika. Í frum­varps­drög­unum er sér­stak­lega tekið fram að Sin­fón­íu­hljóm­sveitin sé í eign íslensku þjóð­ar­innar, en ekk­ert slíkt þjóð­ar­eign­ar­á­kvæði er í eldri lögum. Ríkið og Reykja­vík­ur­borg reka Sinfó í sam­ein­ingu og ber ríkið 82 pró­sent kostn­aðar en borgin 18 pró­sent.

Í kafl­anum um Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands eru einnig lagðar til þær breyt­ingar frá núver­andi lögum að lág­mark stöðu­gilda hjá sveit­inni að manna er hækkað, en í núver­andi lögum segir að Sin­fón­íu­hljóm­sveitin skuli ekki hafa færri en 65 fasta hljóð­færa­leik­ara. Hið lög­bundna lág­mark er hækkað upp í 88 stöðu­gildi.

Í grein­ar­gerð segir að um langa hríð hafi Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands haft hljóð­færa­leik­ara í 88,5 stöðu­gildum og stefnan og mark­miðið hafi frekar verið að auka þar við til fram­tíðar, svo hljóm­sveitin nái að vaxa og þroskast á við sam­bæri­lega hljóm­sveitir á Norð­ur­lönd­unum sem margar hverjar eru sagðar með yfir 100 stöðu­gildi.

„Ástæða er til að lög­festa þau 88 stöðu­gildi sem heim­ild hefur verið fyrir í fjár­lögum til sveit­ar­innar,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varps­drögum Lilju.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að ef frum­varpið verði óbreytt að lögum muni það ekki fela í sér tekju­breyt­ingar fyrir rík­is­sjóð, en þó er gert ráð fyrir því að í kjöl­far sam­þykktar þess verði 600 millj­ónum króna veitt tíma­bundið á árunum 2023-2025 til stofn­unar og rekst­urs Tón­list­ar­mið­stöðvar og efl­ingar tón­list­ar­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár