Obama fagnar kjarnorkusamkomulagi en repúblikanar og Ísraelar mótmæla

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti fagnar sam­komu­lagi um kjarn­orku­á­ætlun Írans, sem til­kynnt var um í morgun. Hann segir að það væri óábyrgð að sam­þykkja ekki sam­komu­lagið, þótt hann myndi fagna hraust­legum umræðum í þing­inu. Hann sagði að með sam­komu­lag­inu væri búið að koma í veg fyrir dreif­ingu vopna á svæð­inu og sam­komu­lagið stæð­ist allar kröfur sem Banda­ríkin hefðu gert. Nú væri búið að loka fyrir allar leiðir Írana til að búa til kjarn­orku­vopn.

Hann minnti þing­menn á að sam­komu­lag af þessu tagi gerðu menn ekki við vina­þjóðir. Ekki væri hægt að stroka út sög­una, en það væri hægt að gera breyt­ingar. „Þessi samn­ingur býður okkur tæki­færi til að fara í nýja átt, við ættum að grípa þetta tæki­færi,“ sagði hann að lokum.

John Kerry utan­rík­is­ráð­herra hefur tekið í sama streng. Hann segir að skref hafi verið stigið í átt frá átökum og mögu­leik­anum á fjölgun kjarn­orku­vopna. Hann segir þó jafn­framt að ef Íran stendur ekki við sam­komu­lagið verði refsi­að­gerðir Banda­ríkj­anna, Evr­ópu­sam­bands­ins og Sam­ein­uðu þjóð­anna inn­leiddar strax aftur.

Repúblikanar í Banda­ríkj­unum hafa hins vegar verið dug­legir við að gagn­rýna sam­komu­lagið í dag, og sýna þar með fram á að Obama mun eiga í erf­ið­leikum með að koma sam­komu­lag­inu í gegnum þingið, þar sem Repúblikanar eru í meiri­hluta. Mike Huckabee, sem er einn þeirra er vilja verða for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins, segir stjórn­völd í Banda­ríkj­unum eiga að skamm­ast sín fyrir að sam­þykkja samn­ing sem muni styrkja ill stjórn­völd í Íran í því að „stroka Ísrael út af kort­inu“. Sem for­seti myndi hann standa með Ísrael og skoða alla kosti í boði til að koma hryðju­verka­stjórn­völdum í Íran frá völdum, þar með talið hern­að­ar­í­hlutun.

Benjamin Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hélt blaða­manna­fund um sam­komu­lagið fyrir skömmu. Þar kom fram að Ísrael væri óbundið af sam­komu­lag­inu sem var gert í morgun. Heim­ur­inn sé hættu­legri staður eftir sam­komu­lagið, og Ísra­els­menn hafi fullan rétt til að verja sig fyrir Íran. „Íran heldur áfram að sækj­ast eftir eyð­ingu okkar,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár