Fótboltaheimurinn engist um vegna lokaðrar elítudeildar stórliða

Stuðn­ings­menn, stjórn­mála­menn, keppi­nautar og æðstu valda­batt­erí knatt­spyrnu­heims­ins hafa gagn­rýnt áform 12 evr­ópskra fót­boltaliða um stofnun ofur­deildar fyrir útvalda. Þau eru sögð ganga gegn öllu því sem fót­bolti sem íþrótt eigi að standa fyrir.

Tólf af stærstu fót­bolta­liðum Evrópu, sex ensk, þrjú ítölsk og þrjú spænsk, til­kynntu á sunnu­dags­kvöld að þau hefðu ákveðið að ger­ast stofn­fé­lagar í nýrri evr­ópskri félags­liða­keppni, The Super League. Einka­deild fyrir öfl­ug­ustu lið álf­unnar.

Í dag taka þessi lið þátt í félags­liða­keppnum sem skipu­lagðar eru af evr­ópska knatt­spyrnu­sam­band­inu UEFA, en sú þátt­taka myndi heyra sög­unni til ef af Ofur­deild­inni verður.

Þessi félög munu því ekki lengur hafa það að mark­miði að vinna sér inn þátt­töku­rétt í keppnum bestu liða Evrópu með því að standa sig vel heima fyrir.

Þau munu þess í stað stíga inn í hina nýju Ofur­deild, jafn­vel strax næsta haust, með vissu um að vera þar á hverju ári og njóta þeirra miklu tekna sem fyr­ir­sjá­an­lega verða af sölu sýn­ing­ar­réttar fyrir þessa sýn­ing­ar­deild stærstu liða Evrópu.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu lið­anna er stefnt á að alls 15 lið ger­ist stofn­fé­lagar í heild­ina – og síðan fái fimm félög til við­bótar að taka þátt á hverju tíma­bili, sam­kvæmt ein­hverjum óút­færðum við­miðum. Við­brögðin við þessu útspili, sem á sér all­nokkurn aðdrag­anda, hafa verið nán­ast á eina leið – nei­kvæð með ein­dæmum.

Knatt­spyrnu­að­dá­endur víða um heim, stjórn­mála­menn og knatt­spyrnu­hreyf­ingin nán­ast eins og hún leggur sig, fyrir utan þessi tólf lið, hefur brugð­ist ókvæða við áformum stór­lið­anna. Refsi­að­gerðum hefur verið hótað af hálfu bæði UEFA og Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA auk knatt­spyrnu­sam­banda Englands, Spánar og Ítalíu.

Til stendur að meina leik­mönnum stór­lið­anna tólf að spila með lands­liðum sínum í keppnum á vegum UEFA og FIFA og jafn­vel hefur komið til tals að liðin tólf verði svipt rétt­inum til þess að taka þátt í deild­ar­keppn­unum heima fyrir.

Ljóst þykir að framundan sé hörð störu­keppni um eðli fót­bolt­ans í Evrópu og að bar­áttan um hin ýmsu atriði muni verða leyst frammi fyrir dóm­stólum.

Kjarninn tók saman nokkra mola um þessar miklu svipt­ingar í evr­ópska fót­bolta­heim­inum.

Risaklúbbarnir vilja meira fé í sína vasa

Peningar, pen­ingar og aftur pen­ingar virð­ast aðal­á­stæðan fyrir því að stór­liðin ætla að stofna sína einka­deild. Þrátt fyrir að pen­ing­arnir í fót­bolt­anum séu gríð­ar­legir og bilið á milli stærstu liða Evrópu og þeirra minni sé sífellt að aukast, virð­ist eig­endur lið­anna ekki geta fengið nóg. Ekki einu sinni nóg til þess að hafa rekstur félag­anna sjálf­bæran.

Tekju­streymið inn í bolt­ann hefur marg­fald­ast vegna auk­inna tekna af sjón­varps­út­send­ingum frá alda­mótum en samt hafa mörg af stærstu og sögu­fræg­ustu liðum Evrópu, sér­stak­lega þau sem eru utan Englands, safnað gríð­ar­legum skuldum. Staðan hefur versnað í heims­far­aldr­inum, þar sem félögin hafa orðið af miða­sölu­tekjum.

Spænsku stór­liðin Barcelona og Real Madrid eru bæði stór­skuldug og ítölsku liðin Juventus og Inter eru sömu­leiðis í kröggum. Þessi rót­grónu félög hafa að ein­hverju marki ekki náð að keppa við fjár­streymið sem komið hefur inn frá vell­auð­ugum eig­endum liða á borð við Chelsea, Manchester City og París St. Germain og hafa skuld­sett sig mikið til að vera sam­keppn­is­hæf.

Risa­klúbbar álf­unnar hafa lengi haldið því fram að þeir eigi að fá stærri hluta af fénu sem rennur til UEFA frá sjón­varps­stöðvum vegna sýn­inga­réttar, þar sem það sé vegna þeirra sem áhorf­endur lað­ist að skjánum. Og nú hafa þeir stigið rót­tækt skref.

Áætlað er að hvert lið­anna muni fá 200-300 millj­ónir evra í sinn hlut bara fyrir að hefja leik í Ofur­deild­inni og að hægt verði að selja sjón­varps­rétt­indin fyrir stjarn­fræði­legar þegar fram í sækir, jafn­vel með þeim hætti að fara fram­hjá sjón­varps­stöðv­unum og bjóða upp á beint net­streymi af Ofur­deild­inni, milli­liða­laust.

Banda­ríski fjár­fest­inga­bank­inn JP Morgan Chase kemur að fjár­mögnun ofur­deildar­æv­in­týr­is­ins. Bankinn er sagður ætla að leggja um 3,5 millj­arða evra inn í deild­ina til að byrja með.

Hlutabréfaverð liða tekur vænan kipp

Hluta­bréfa­verð í þeim tveimur stofn­fé­lögum Ofur­deild­ar­innar sem skráð eru á markað hefur hækkað tals­vert í dag. Hluta­bréf í Juventus hækk­uðu um tæp 18 pró­sent í kaup­höll­inni í Mílanó og mark­aðsvirði Manchester United, sem er skráð á hluta­bréfa­markað í New York, höfðu hækkað um tæp 8 pró­sent þegar þetta var skrifað.

Stjórn­endur þess­ara tveggja félaga, Andrea Agnalli stjórn­ar­for­maður Juventus og Joel Glazer annar stjórn­ar­for­manna Manchester United, verða vara­for­menn stjórnar Ofur­deild­ar­innar. Flor­entino Peréz, for­seti Real Madrid, verður stjórn­ar­for­maður deild­ar­innar.

Þjóðverjar virðast samstíga um að vera á móti

Ekkert þýskt lið er á meðal stofn­fé­laga Ofur­deild­ar­innar, enn sem komið er hið minnsta. Þar er fyr­ir­komu­lagið þannig að aðdá­endur eiga meiri­hlut­ann í flestum liðum og á það við um bæði Bayern München og Dortmund, sem eru tvö sterk­ustu og sögu­fræg­ustu lið lands­ins. Orðrómur var um að þau yrðu í hópi stofn­fé­lag­anna, en því hefur verið vísað á bug.

Þýska knatt­spyrnu­sam­bandið og efstu deild­irnar í Þýska­landi sendu frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem fullum stuðn­ingi var heitið við allar gagn­að­gerðir UEFA og FIFA og knatt­spyrnu­sam­banda ein­staka ríkja sömu­leiðis.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði að ekki mætti láta fjár­hags­lega hags­muni nokk­urra topp­liða á Englandi, Ítalíu og Spáni grafa undan upp­bygg­ingu evr­ópsku félags­liða­keppn­innar.

„Fót­bolt­inn í Evrópu þrífst á því að það er fræði­lega mögu­legt fyrir öll lið að keppa við þau bestu í álf­unni. Þessum draumi má ekki skipta út fyrir nær alveg lokað sam­fé­lag,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni frá Þýska­landi.

Bresk stjórnvöld heita því að gera allt sem þau geta

Í Englandi er málið rætt á æðstu stöðum. Oliver Dowden, ráð­herra menn­ing­ar­mála, segir að breska rík­is­stjórnin sé til­búin að gera „hvað sem er“ til þess að áætl­an­irnar verði kæfðar í fæð­ingu, að minnsta kosti hvað ensku liðin varðar.

Dowden ávarp­aði þingið í Westminster vegna máls­ins í dag og sagði að enska knatt­spyrnu­sam­bandið hefði fullan stuðn­ing rík­is­stjórnar Boris Johnson til þess að beita ensku félögin sex við­ur­lögum fyrir að ganga inn í Ofur­deild­ina.

Ráð­herr­ann segir áformin ógna allri virð­is­keðj­unni í kringum fót­bolt­ann í Englandi, þar sem féð flæði frá ensku úrvals­deild­inni niður fót­boltap­íramíd­ann í land­inu og út í nær­sam­fé­lagið. Mörg lið í neðri deildum í land­inu hafa barist í bökkum und­an­farin ár og staða þeirra er orðin enn verri vegna áhrifa heims­far­ald­urs­ins.

Ofurdeildaráform skyggja á breytt fyrirkomulag í keppnum UEFA

UEFA hefur und­an­farið verið að vinna að breyt­ingum á keppn­is­fyr­ir­komu­lag­inu í Evr­ópu­keppnum sínum, meðal ann­ars Meist­ara­deild Evrópu. Þær breyt­ingar voru kynntar í dag og hafa í ljósi aðstæðna fengið tak­mark­aða athygli, enda ljóst að ef Ofur­deildin verður að veru­leika mun vægi keppn­anna á vegum UEFA dvína veru­lega.

Breyt­ing­arnar segja stjórn­endur UEFA einmitt hafa verið ætl­aðar til þess að koma til móts við stóru liðin og saka for­svars­menn lið­anna um að hafa stungið sig í bakið.

Aðdáendahópar liðanna sjálfra hata áformin

Opinber stuðn­ings­manna­sam­tök nærri allra lið­anna sem ætla sér þátt­töku í Ofur­deild­inni leggj­ast alfarið gegn verk­efn­inu og saka eig­endur liða sinna um hömlu­lausa græðgi.

Stuðn­ings­manna­sam­tök Chelsea segja ákvörðun félags­ins um að taka þátt í verk­efn­inu hreint og beint svik­sam­lega. Ekkert til­lit hafi verið tekið til stuðn­ings­manna, sögu félags­ins, fram­tíðar þess eða fram­tíð fót­bolt­ans í Englandi.

Samtök stuðn­ings­manna Manchester United taka í sama streng og segja ákvörð­un­ina fara gegn öllu sem íþróttin og félagið sem þeir styðja eigi að standa fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár