Mynd: Bára Huld Beck

Hin fjögur fræknu ræða bókmenntirnar blaðamennsku

Rithöf­und­urinn Auður Jóns­dóttir og blaða­maðurinn Bára Huld Beck spjalla við Reyni Traustason, Kolbrúnu Bergþórs­dóttur, Jakob Bjarnar Grétarson og Eirík Jónsson, gamal­reynda sjóræningja sem voru til í smá pallborðs­umræður í hádeginu á Bergsson.

Upphaf­lega stóð til að þessi grein myndi prýða nýútkomna bók: Þjáninga­frelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í fjölmiðla­heimi. Bók um fjölmiðla á Íslandi. Svo bókin myndi sóma sér í kilju­formi þurfti að stytta hana rösklega á loka­sprettinum og því var ekki allt með sem í upphafi átti að prýða bókina. En þetta efni er þess eðlis að skemmtilegra er að það birtist frekar en ekki: viðtal við fjóra blaðamenn sem hafa leikið sér að skilum blaða­efnis og fagur­fræði skáld­skapar í einni eða annarri mynd; stíl, sagnalist og umræðunni um að kannski sé þetta eftir allt saman eitt og hið sama.

Pallborðs­umræður hefjast:

Auður hefur orð á að það þurfi ástríðu á borð við þá sem einkennir þraut­seigan listamann til að haldast jafn lengi í blaða­bransanum og þessi fjögur. Hvernig hafa þau haldist svona lengi í harkinu?

Jakob: Við erum að niður­lotum komin.

Kolbrún: Við kunnum ekkert annað ...

Eiríkur: Langt í frá, allt lygi.

Jakob: Ég hef margoft reynt að koma mér út úr þessu. Just when I thought I was out ... they pull me back in!

Kolbrún: Þetta er eina fólkið sem hringir og býður manni vinnu.

Jakob: Það veit að maður sættir sig við smánar­laun og ómögulegan vinnutíma.

Eiríkur: Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu, ég hef alltaf verið á góðum launum.

Kolbrún: Ég er konan í þessum hópi, ég var í tuttugu ár á lágmarks­launum.

Reynir: Svo kom Bingi. Má bjóða þér hundrað steikur á Argentínu? Eigum við svo að fara í mál við einhverja skúrka?

Eiríkur: Við skulum halda okkur við efnið og tala um bókmenntirnar.

Auður: Ég er að flýta mér svo ég ætla að biðja ykkur um að tala hægt meðan ég vélrita.

Eiríkur: Skrifaðu það! Þetta er þannig viðtal.

Jakob: Umberto Eco segir um leið og þú takir upp blýantinn þá hefjist túlkun.

Allir dæsa.

Jakob: Ég er magisterinn, nema Eiríkur, hann er menntaður frá París.

Þögn

Jakob: Það er augljós samsvörun milli rithöfunda og blaða­manna, báðir fást við texta. Frá örófi hafa ríkt náin tengls á milli blaða­manna og rithöfunda; Jack London, Charles Dickens, Hemingway, Gabriel Garcia ... Það er erfitt að gera skýran greinarmun á þessu, hvernig sem á er litið. Blaðamenn eru eðli málsins ekki skúffu­skáld, það felst í orðinu fjömiðill, meðan ég ímynda mér að rithöfundar séu meira inn á við. Ég hef engar ambisjónir í þá átt að teljast rithöfundur, ég hef aldrei skilið yfirlæti rithöfunda í garð blaða­manna. Auðvitað verður að gera skýran greinarmun á til dæmis viðhorfs­pistlum og gagnrýni í blöðum. Svo er eitthvað sem heitir Gonzo-blaða­mennska þar sem blaða­maðurinn lýsir upplifun sinni, ég leik mér stundum að því að blanda þessu saman og það ruglar fólk í ríminu.

Eiríkur – hér eftir nefndur Eiríkur samfélags­skáld: Þú talar um bókmenntir en ég held í raun og veru að blaða­maðurinn sé óafvitandi storyteller að segja sögur úr samtímanum og gefa út jafnóðum. Í fréttum byggir allt á stað­reyndum en það er stundum þannig, eins og ég las í Grapevine rétt áðan, að það getur enginn skáld­skapur yfir­stigið veru­leikann. Það er bara þannig og sem dæmi má nefna að ég hef skrifað um persónur í raun­verulegu lífi sem taka fram öllum skáldsagna­persónum sem ég hef kynnst. Ber þar fyrst að nefna: Pepsi-drenginn sem var rekinn úr 10/11 fyrir að borga ekki samloku og Pepsi-dós áður en hann neytti þess í kaffi­tímanum í vinnunni. Svo varð þetta bara verrra og verra. Síðan gerðist það að þeir í versluninni neyddust til að taka hann aftur í vinnu eftir söguna sem sögð var í blaðinu. En ég ráðlagði honum að gera það. Pabbi hans var vígslu­biskup í Skálholti og eftir þetta sendi hann ritstjórninni bréf og þakkaði þeim fyrir að gera svona gott fyrir son sinn. Þá gerðist það að ég útvegaði honum vinnu á bílaleigustöð í staðinn því hann hafði svo mikinn áhuga á sport­bílum. Þá varð ég smá hræddur um að hann myndi stela bílunum, ef hann væri kannski þjófur eftir allt saman. Núna er hann hönnuður.

Jakob: Nú ert þú orðin persóna í þinni sögu.

Eiríkur: Nei, ég reddaði honum bara vinnu. Allt í lagi að stela Pepsi-dós, ekki heilum sportbíl.

Nú hafa karl­mennirnir svo lengi haft orðið að spjallinu er beint til Kolbrúnar. Hún hefur, eins og kunnugt er, starfað áratugum saman sem bókmennta­gagnrýnandi og blaða­maður. Hvað dettur henni í hug þegar við tölum um fagur­fræði skáld­skapar í ljósi blaða­mennsku?

Kolbrún: Þá kemur fyrst og fremst upp í hugann sú skylda blaða­mannsins að skrifa vel. Blaða­maður sem kærir sig ekki um að skrifa góðan texta á að vera annars staðar. Það er staðföst skoðun mín. Skylda hans er að skrifa góðan texta.

(Innskot Auðar og Báru: Hún heldur ekki orðinu lengi).

Reynsluboltar ræða saman.
Reynslu­boltar ræða saman.

Reynir: Þegar ég byrjaði sem blaða­maður í litlu þorpi var ég frétta­ritari. Mig dreymdi um að verða blaða­maður í fullu starfi. Og svo einhvers konar rithöfundur. Því það sem rithöfundur gerir er að vera ekki njörvaður niður með óhefta tjáningu. En þú vilt ekki vera frétta­skáld því það getur kallað yfir menn allskonar vesen ef þú ert að skálda fréttirnar. Þú getur lýst okkur hér að við sitjum á Bergsson og þessi kona þarna kemur inn og heldur á vettlingunum sínum – og þú segir frá því. En lykil­atriðið er að þú vilt ekki skálda fréttir. Það eru stífar reglur um það, tvær heimildir og allt það. Þess vegna er slökun í því að skrifa pistil – eins og pistilinn minn í Stundinni núna þar sem ég er að hafa hægðir upp á heiði. Pistillinn heitir Ofskynjanir í óbyggðum. Menn fundu lykt og héldu að það væri verið að grilla. En þá var ég að kveikja í klósett­pappírnum. Svona geturðu leikið þér og gengið laus. Í fréttum þarf að tékka á öllu, þú lýtur mjög ströngum aga ef þú vilt ekki lenda í fokki. Í bók geturðu sagt allar sögurnar. Kolbrún átti til að mynda dagbækur sem voru mesti fjár­sjóður íslenskrar dægumenningar því þar voru allar sögurnar sem mátti ekki segja.

Jakob: Okkur Hrafni Jökuls­syni til mikillar hrellingar sem vorum að vinna með henni og fengum ekki að birta neitt.

Reynir: Eins og ástar­fundurinn á ráðherra­skrif­stofunni. Þekktur fjölmiðla­maður var annar aðili ástar­leiksins og hinn ráðherra en ástar­leikurinn átti sér stað á skrif­borðinu. Þá kom nætur­vörðurinn aðvífandi, sá þessi ósköp og skrifaði um þau ýtarlega skýrslu sem hann kom til forsætis­ráðherrans og lét liggja á borðinu. Og forsætis­ráðherrann lét skýrsluna alltaf liggja þarna þegar ráðherrann kom. En þegar forsætis­ráðherrann lenti sjálfur í þessu ráðuneyti ... hvað var það fyrsta sem hann gerði þegar hann settist við skrif­borðið? Það var að hugsa: Nei, þetta vil ég ekki! – og hann fékk sér nýtt skrifborð. Þetta er svo pottþétt. Ég er með tvær heimildir fyrir þessu, fólki myndi bara ofbjóða að ég væri að fara svona inn í einkalíf fólks. En ég get það sem rithöfundur.

Kolbrún: Allskonar svona sögur voru skrifaðar í dagbókina mína. Sem Reynir ætlaði alltaf að gefa út.

Reynir: Svo kveikti hún í dagbókunum. Stærsta óhapp sem hefur orðið síðan handritin í Kaupmanna­höfn brunnu.

Jakob: Veit Hrafn af þessu?

Reynir: Þegar við stofnuðum Ísafold langaði okkur að vera með syrpuna í fjórum blöðum: Dagbækur Kollu. Ég skrifaði einu sinni langt sandkorn um þetta og sendi Kollu og hún brjálaðist.

Kolbrún: Nei, þú mátt ekki segja þetta! Þetta er alltof ...

Jakob: Non-fiction er að koma rosalega inn. Lítum til þess sem Mikki Torfa hefur verið að gera síðustu árin með verkfærum blaða­mennskunnar. Mörkin er orðin svo óljós. Mörkin milli blaða­mennsku og ævisögu eru orðin mjög óljós, eins og í öllu málunum með Jón Gnarr. Reynir fjallaði mikið um bók Jóns.

Eiríkur: Við blaðamenn getum skrifað og tekið ábyrgð en ekki rithöfundarnir.

Reynir: Jón Gnarr gefur út að þetta sé raun­veruleikinn. Frétta­blaðið slær þessu upp sem frétt sem byggir á því að bókin sé heilagur sann­leikur, að bókin byggi á að níðingar hafi verið þarna. En þarna liggur alvaran, því sagt er að kennarinn sé níðingur. Ef Jón hefði bara sagt að þetta væri skáldsaga þá hefði þetta horft öðruvísi við. Hann kann jafnvel að hafa trúað þessu sjálfur en eftirgrennslan á málinu segir okkur annað.

Kolbrún: Hvort eigum við að trúa Birgittu eða Jóni? Kannski voru þau bara í hassvímu að borða kattamat. Hvað veit ég? Jón Gnarr lýsir þarna upplifun sinni og skynjun. Ég held að við öll myndum upplifa sama atvikið á ólíkan hátt og sjá það ólíkum augum.

Jakob: Mikki vill meina að það sé ákveðinn sann­leikur í minningum og hann búi í upplifun okkar á því sem gerist.

Þá berst talið aftur að yfir­lestri enda „heitt“ umræðu­efni í hópnum.

Kolbrún: Í sambandi við að senda viðtal til yfir­lestrar þá er það ekki til að umbylta því heldur til að koma í veg fyrir rang­færslur og mistök. Ég man eftir því að hafa farið í viðtal þar sem rangt var eftir mér haft, ég las það viðtal ekki yfir og sá það ekki fyrr en einhverjum vikum eftir að það birtist. Það voru mjög slæmar rang­færslur í því viðtali. Einu sinni vildum við ekki samþykkja viðtal eftir yfir­lestur, stjórn­málamanni ekki líkaði ekki spurningarnar og tóninn í því, en nær undan­tekningar­laust er það þannig að viðmælandinn er sáttur, bætir jafnvel við áhuga­verðum hlutum og viðtalið verður betra.

Jakob: Þetta snýr að stöðu blaða­mannsins. Ef hann sendir allt í yfir­lestur er hann hættur að vera blaða­maður og orðinn að einhvers konar ímynda­ráðgjafa. Þetta þekkist eiginlega hvergi annars staðar en á Íslandi.

Eiríkur: Við vitum ekki hvar viðtalið endar í rafrænum heimi. Að senda þetta út úr húsi! Það má enginn sjá þetta.

Reynir: Óðs manns æði að treysta þessu rafræna.

Kolbrún: Þau viðtöl sem ég hef tekið í þrjátíu ár hafa alltaf byggt á trausti. Þið talið eins og viðtöl séu hernaðar­leyndarmál. Þetta er algjör della hjá ykkur.

Jakob: Netið hefur gerbreytt allri blaða­mennsku. Ég prófaði að taka viðtöl sem fóru fram á facebook, svona facebook-spjall sem ég skrifaði yfir í viðtals­form og þá liggur alveg fyrir hvað viðkomandi sagði.

Kolbrún: Maður umskrifar viðtöl en skrifar þau ekki beint niður. Maður endur­skapar, tengir, sleppir og setur í samhengi. Þannig er þetta ekki skáld­skapur heldur ákveðin sköpun. Viðtals­bækur sem þessir félagar mínir hér hafa skrifað byggjast líka á þessu.

Eiríkur: Ég hef aldrei notað segulband. Banna það!

Reynir: Fagur­fræðin liggur í því að blaða­maðurinn teiknar upp aðstæður með litríkum hætti. „Fuglarnir sungu í trjánum: Da da da ... “

Kolbrún: Þetta eru hræðilegustu viðtöl sem maður les.

Reynir: Ég er að vitna í Þórberg. Kjell Inge Røkke! Ég las umfjöllun um hann, nærmynd þar sem hann var kominn að því að verða gjald­þrota. Í fyrstu línum umfjöllunarinnar var því lýst hvernig hann stóð úti í rökkri fyrir framan nætur­klúbb og grét. Þá var búið að ná mér, ég vildi lesa restina. Þú þarft að ná þessari stemningu, veiða lesandann svo hann vilji halda áfram að lesa.

Jakob: Þetta tengist þessu með blaða­manninn sem sögumann, að halda athygli lesandans.

Reynir: Það finnst mér flottast í þessu. Að blanda saman flottum texta og frétta­nefi. Það eru bestu blaða­mennirnir og þú sérð fréttina fyrir þér. Minn skóli var Flateyri þar sem ég var með segulband og myndavél og verkefni dagsins að finna þrjár fréttir. Eiríkur er soldið naskur að finna út fréttirnar í þessu litla.

Jakob: Blaða­maðurinn er litli puttinn í þulunni: Þessi fór í sjóinn, þessi dró hann upp. Ég man bara litla puttann sem fór heim og kjaftaði frá.

Bára Huld spyr: Eruð þið vissir um að vilja ekki lesa viðtalið yfir – bara Kolla?

Eiríkur: Ef þið skrifið eitthvað vitlaust tölum við ekki við ykkur aftur – nema prívat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár