Negri, Rasmus Klumpur og Sven Hazel

Það sem þessi þrenn­ing hér að ofan á sam­eig­in­legt er lík­lega ekki margt annað en að hafa síð­ustu daga verið til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum. Ástæður þess að hún hefur ratað í miðl­ana eru jafn ólíkar og dagur og nótt. Þótt þeir Rasmus Klumpur og Sven Hazel séu mjög þekktir í Danmörku, eins og síðar verður rakið, hefur þó „negra“umræðan verið fyr­ir­ferð­ar­mest í fjöl­miðl­unum.

Negri, svertingi, blökkumaður

Margir muna eflaust eftir að hafa séð og heyrt talað um fréttapistils­fyr­ir­sögn í dag­blað­inu Degi í febr­úar 1977 „Negri í Þistil­firði“. Þetta þótti ekki gott, bein­línis nið­ur­lægj­andi, og lík­lega hefur blaða­mað­ur­inn sem skrif­aði pistil­inn fengið dug­lega yfir­haln­ingu hjá rit­stjór­anum. Á þessum tíma þótti skömminni skárra að nota orðið svert­ingi, síðar komu svo orðin blökku­maður og þeldökkur eða dökkur á hör­und. Margir fá kannski vatn í munn­inn þegar minnst er á súkkulaði­boll­urnar, sem einu sinni voru kall­aðar negrakossar. Þetta orð er enn í gömlum upp­skrifta­bókum en ekki notað dags dag­lega og boll­urnar kannski ekki fram­leiddar lengur á Íslandi.

Íslend­ingar eru ekki eina þjóðin sem hefur verið í vand­ræðum með þess konar orða­notkun. Í Banda­ríkj­unum hefur orðið „negro“ að mestu vikið fyrir orð­inu „black“, svartur, í dag­legu tali. Orðið „nig­ger“, sem áður fyrr var nokkuð algengt þar í landi þykir í dag niðr­andi og nið­ur­lægj­andi. Þegar Barack Obama varð for­seti Banda­ríkj­anna varð tals­verð umræða um þessi mál þar vestra. Hann er afsprengi hins banda­ríska fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lags, móðir hans hvít á hör­und en fað­ir­inn dökkur. Umræður um hör­und­s­lit for­set­ans hljóðn­uðu smám saman sem eðli­legt má telja.

Orðið „negro“ hverfur úr bandarískum lögum og reglum

Síð­ast­lið­inn föstu­dag und­ir­skrif­aði Barack Obama lög um að orðið negro hverfi úr banda­rískum lögum og reglu­gerðum. Í stað­inn komi all­mörg orð sem lýsi upp­runa t.d. „African American“ (notað um þeldökka) „Asian American“ í stað „Oriental“ og „Alaska Native“ í stað „Eskimo“. Dönum þykir það sér­kenni­leg til­viljun að þessi laga­breyt­ing skuli verða á sama tíma og orðið „neger“ (negro) er fyr­ir­ferð­ar­mikið í dönskum fjöl­miðlum.

Auglýsingin með hvíta fólkinu og hundinum

Fyrir skömmu hóf Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn mikla aug­lýs­inga­her­ferð. Aug­lýs­inga­spjöld flokks­ins má víða sjá. Tit­ill­inn er: Vores Danmark og undir stendur „der er så meget vi skal passe på“ og svo merki flokks­ins. Á spjöld­unum er líka mynd, þar má sjá átta „hvíta“ Dani og hund. Það er þessi mynd og text­inn sem hafa vakið athygli og umræður. Og gagn­rýni. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn vill tak­marka eins og mögu­legt aðgang útlend­inga að land­inu, einkum þeirra sem ekki eru hvítir á hör­und. „Danmörk fyrir Dani“ segir Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn gjarna, sumir kalla flokk­inn þjóð­rembu- eða jafn­vel ras­ista­flokk.

Þegar Søren Espersen, þing­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar þings­ins (Fol­ket­inget) var spurður um hvernig á því stæði að á áður­nefndri mynd væri ein­ungis „hvítt“ fólk sagði hann að það væri ein­ungis til­viljun. „Við hefðum allt eins getað sett negra (neger) á mynd­ina, hverju hefði það breytt?“ Þegar Søren Espersen var, í sjón­varps­við­tali, spurður nánar út í hvort honum þætti í lagi að nota orðið „neger“ sagð­ist hann ekki sjá neitt athuga­vert við það og bætti við, orð­rétt „Tag sådan en som Obama – hvad er han? Vi ved godt hvad det drejer sig om. Man taler om den förste neger í USA’s præsidents­em­bede.“

Þingmaður breytti neger í nigger

Jeppe Kofod þing­maður sós­íala­demókrata á Evr­ópu­þing­inu sá ástæðu til að skrifa um þessi ummæli Søren Espersen á twitter síðu sinni. Hann sagði þar hins­vegar að Espersen hefði kallað Barack Obama „nig­ger“ og það væri „skandale“. Eins og allir vita berst allt sem á annað borð ratar inn á netið á auga­bragði um víða ver­öld, þar á meðal í Hvíta húsið í Washington. Þingmenn Danska Þjóð­ar­flokks­ins urðu æfir og heimt­uðu að Jeppe Kofod leið­rétti þessi skrif sín og bæði Søren Espersen afsök­unar. Jafn­framt var þess kraf­ist að Mette Frederik­sen for­maður flokks Sosí­alde­mókrata setti ofan í við þing­mann­inn. Það hefur ekki gerst, ekki opin­ber­lega að minnsta kosti. Danskir fjöl­miðlar hafa harð­lega gagn­rýnt Jeppe Kofod, einn þeirra sagði að honum færi best að þegja og minnti á að árið 2008 hefði Jeppe Kofod gerst sekur um athæfi sem í Banda­ríkj­unum teld­ist nauðgun.

Søren Espersen hættir við Bandaríkjaferð vegna ummælanna

Utan­rík­is­mála­nefnd danska þings­ins, þar sem Søren Espersen gegnir for­mennsku, fer til Banda­ríkj­anna í haust til fundar við banda­ríska þing­menn. Søren Espersen hefur til­kynnt að hann hygg­ist ekki fara þessa ferð. „Ég þekki Banda­ríkja­menn og ég veit um hvað umræð­urnar muni snú­ast. Ég vil ekki eyði­leggja ferð­ina fyrir hinum nefnd­ar­mönn­unum.“

Rasmus Klumpur

Rasmus Klumpur er, ásamt finnsku Múmínálf­unum, þekktasta teikni­mynda­per­sóna (eða fígúra) sem til hefur orðið á Norð­ur­lönd­unum. Hann birt­ist fyrst í dag­blað­inu Berl­ingske Tidende í nóv­em­ber 1951, höf­und­arnir dönsk hjón, Carla og Vilhelm Hansen. Bækurnar um skap­góða björn­inn, í dopp­óttu bux­unum og með bláu húf­una og sem veit ekk­ert betra í henni ver­öld en pönnu­kökur, hafa selst í tug­millj­ón­a­tali og komið út á minnsta kosti þrjá­tíu tungu­málum. Á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes í Frakk­landi kynnti danski kvik­mynda­fram­leið­and­inn Lars Sylvest nýja teikni­mynda­seríu um Rasmus Klump.

Serían er ætluð til sýn­ingar í sjón­varpi og í fyrstu verða gerðir 26 þættir, hver um sig 12 mín­útur á lengd. Fram­leið­and­inn stefnir þó að því að gera 100 þætti og von­ast til að geta selt þá bæði austan hafs og vestan. Í við­tölum við danska blaða­menn í Cannes sagði Lars Sylvest að þegar gera ætti þætti sem ætl­aðir væru til sýn­inga víða um heim væri að mörgu að hyggja. Það sem þætti sjálf­sagt í einu landi væri kannski óboð­legt í öðru landi. Hann nefndi sem dæmi sög­una um Rasmus Klump og Úrsúlu, í þeirri sögu vill hval­ur­inn, sem skip Rasmusar strandar á, ekki kafa. Hval­ur­inn gefur nefni­lega frá sér hljóð sem er öðru­vísi en hjá öðrum hvölum og þeir stríða honum. „Einelti“ sögðu full­trúar stórrar banda­rískrar sjón­varps­stöðvar „og það getum við ekki boðið banda­rískum börnum uppá.“

Lars Sylvest sagði að breyta hefði þurft hand­rit­inu en hval­ur­inn væri enn á sínum stað. Annað dæmi nefndi hann. Rasmus Klumpur klæð­ist ætíð rauðum buxum með hvítum doppum, í Kína táknar þetta gæfu og heppni. Þar að auki er björn­inn lukku­dýr Kínverja. „Þeir munu taka Rasmusi Klump opnum örmum“ sagði fram­leið­and­inn. Danskir fjöl­miðlar telja full­víst að teikni­mynd­irnar um Rasmus Klump muni njóta vin­sælda víða um heim. „Þótt danskar kvik­myndir séu nú orðnar vin­sælar á alþjóða­vett­vangi hafa danskar teikni­myndir ekki enn hitt á töfrafor­múl­una“ sagði blaða­maður Berl­ingske „en Rasmus Klumpur mun breyta því.“ Svo er bara að bíða og sjá.

Sven Hazel (eða Hassel)

Fyrir nokkrum dögum kom út í Danmörku bókin „Hersveit hinna for­dæmdu“ eftir Sven Hazel. Þetta er ekki fyrsta útgáfa þess­arar þekktu bókar, hún kom fyrst út árið 1959. Ef frá er tal­inn H.C. Andersen og kannski Jussi Adler-Olsen er Sven Hazel sá höf­undur danskur sem mestum vin­sældum hefur náð á alþjóða­vett­vangi. Bækur hans, 14 tals­ins, hafa selst í að minnsta kosti 53 millj­ónum ein­taka. Þekktastar eru þær þrjár fyrstu, Hersveit hinna for­dæmdu, sem kom út 1953, Dauðinn á skrið­beltum og Stríðs­fé­lagar.

Sven Hazel, eða Hassel einsog hann kall­aði sig líka, hét þó hvor­u­gru þess­ara nafna, hans rétta nafn, eins og það stendur á skírn­ar­vott­orði var Börge Willy Redsted Pedersen, fæddur á Norður-Sjálandi 1917 og lést í Barcelona 2012. Þá hafði hann reyndar breytt nafni sínu að minnsta kosti tvisvar.

Af hverju vekur það athygli og umtal þótt þekkt bók sé endurútgefin?

Í kynn­ingu á bók­inni, sem for­lagið Turbine gefur út, segir að Sven Hazel hafi barist á aust­ur­víg­stöðv­unum í síð­ari heims­styrj­öld­inni og bækur sínar byggi hann á reynslu sinni úr stríð­inu. Sá hængur er á þess­ari full­yrð­ingu að mik­ill vafi er tal­inn leika á að Sven Hazel, sem skrifar bækur sínar í fyrstu per­sónu, hafi nokkru sinni komið á víg­stöðv­arnar. Claus Bund­gaard Christensen, sagn­fræð­ingur sem rann­sakað hefur sögu danskra nas­ista full­yrðir að Sven Hazel hafi verið vakt­maður hjá þýska hernum í Kaup­manna­höfn nær öll stríðs­árin og bækur hans byggðar á sam­tölum hans við þýska her­menn sem höfðu verið á aust­ur­víg­stöðv­unum. Sagn­fræð­ing­ur­inn undr­ast að for­lagið Turbine skuli vilja leggja nafn sitt við Sven Hazel, án þess að nokkur grein sé gerð fyrir því að inni­hald bók­ar­innar sé hreinn skáld­skapur sem lítið eigi skylt við raun­veru­leik­ann. Fram­kvæmda­stjóri Turbine for­lags­ins segir að þótt tím­arnir séu breyttir og bækur Sven Hazel ekki sagn­fræði sé áhugi á bókum hans mik­ill og bóka­for­lag eigi ekki að setj­ast í dóm­ara­sæti. Það segi sína sögu að bækur Sven Hazel hafi selst í tug­millj­ónum ein­taka.

Eins og áður sagði kom þessi nýja útgáfa Her­sveitar hinna for­dæmdu út í Danmörku fyrir nokkrum dögum. Hvort Danir flykkj­ast í bóka­búð­irnar til að krækja sér í ein­tak leiðir tím­inn í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár