Brosmildur strákur
Brosmildur strákur Oscar lifði í mik­illi óvissu sem barn á flótta en er nú orð­inn íslenskur rík­is­borg­ari og órjúf­an­legur hluti af hafn­firskri fjöl­skyldu. Mynd: Golli

Óttuðust á hverjum degi að hann yrði tekinn

Svavar Jóhannsson og Sonja Magnúsdóttir segja að Oscar Andreas Boganegra Florez verði alinn upp alveg eins og hin börnin þeirra. Oscar hlaut ríkis­borgararétt í júlí eftir langa baráttu. Heimildin fékk að skyggnast inn í líf fjöl­skyldunnar sem hefur lítið látið fyrir sér fara eftir mikla umræðu í þjóð­félaginu í vor.

Svavar Jóhannsson og Sonja Magnúsdóttir kynntust Oscari Andreas Boganegra Florez fyrst árið 2023 en þá var hann skóla­félagi yngri barna þeirra hjóna. „Hann byrjaði að venja komur sínar hérna á heimilið og var fljótlega orðinn daglegur gestur,“ segir Sonja. Hjónin hrifust strax af drengnum sem er vinamargur, vel liðinn og bros­mildur. 

Þau vissu þá þegar að hann væri barn á flótta sem væri hér á landi með föður sínum. „En fljótlega fór okkur að gruna að eitthvað væri að,“ segir Sonja um samskipti þeirra feðga. „Hann sótti mikið í að vera hérna. Hann fékk oft að leggja sig og svaf rosa mikið og þá fór mig að gruna að hann væri ekkert að sofa á næturnar.“ Svavar bætir við: „Hann var hérna allan daginn eftir skóla og vildi fara sem seinast heim á kvöldin.“ 

Fjöl­skyldu­sam­ein­ingOscar byrj­aði að venja komur sínar á heim­ilið og var …
Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Ingimundardottir skrifaði
    Þið gerið mig stolta. Takk kæra fjölskylda og allir sem reru í sömu átt og þið
    7
  • Margrét Andrésdóttir skrifaði
    Flott grein og mættu taka fleiri börn inn
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár