Trump ekki með kórónuveiruna

Forseti Banda­ríkj­anna hefur verið próf­aður til að kanna hvort hann væri með COVID-19. Nið­ur­staðan er að svo er ekki.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, er ekki með kór­ónu­veiruna. Þetta kom fram í minn­is­blaði sem læknir Hvíta húss­ins birti í morgun.

Trump stað­festi á blaða­manna­fund­i í gær að hann hefði und­ir­geng­ist próf­anir til að kanna hvort hann væri með COVID-19 og að nið­ur­stöðu væri að vænta á næstu tveimur sól­ar­hring­um. Á­stæðan er sú að fjöl­miðla­­full­­trúi for­­seta Bras­il­­íu, sem var við­staddur fund hans með Trump á laug­­ar­dag fyrir viku, hefur greinst með COVID-19.

[links]Nú liggur sú nið­ur­staða fyrir. Í minn­is­blaði lækn­is­ins, Sean P. Conley, segir að Trump sé með öllu ein­kenna­laus.

Trump forð­að­ist að svara því beint í vik­unni hvort hann myndi láta prófa sig til að kanna hvort hann væri smit­aður. Hann gaf það svo til kynna á blaða­manna­fundi á föstu­dags­kvöld, þar sem hann lýsti yfir neyð­ar­á­standi í Banda­ríkj­unum, að hann myndi reyna að koma því að að láta prófa sig.

Gripið hefur verið til fjöl­margra aðgerða til að reyna að koma í veg fyrir að for­set­inn smit­ist. Meðal ann­ars er hiti allra sem koma í návígi við hann mældur. Trump sjálfur hefur hins vegar átt erfitt með að til­einka sér ýmsar var­úð­ar­ráð­staf­anir eins og að hætta að taka í hend­urnar á fólki eða nota sama hljóð­nema og aðrir.

[adspot]Á blaða­manna­fund­inum í gær við­ur­kenndi hann að handa­böndin væru ávani sem erfitt væri að venja sig af en að það væri gott að hætta þeim.

Smitum fjölgar og dreifast víða

Í morgun höfðu 2.759 greinst smit­aðir í Banda­ríkj­unum og 59 lát­ist vegna veirunn­ar. Smitaðir hafa greinst í Puerto Rico, Washington D.C. og 49 ríkjum Banda­ríkj­anna.

Á blaða­manna­fundi sem Trump og Pence héldu í gær kom fram að allir Banda­ríkja­menn myndu geta látið skima fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum án þess að greiða fyrir það.

Stefnt er að því að setja upp skimun­ar­stöðvar í stærstu dag­vöru­versl­un­ar­keðjum Banda­ríkj­anna og víð­ar. 

Á sama fundi greindi Mike Pence frá því að ferða­bannið til Banda­ríkj­anna, sem tók gildi á mið­nætti á laug­ar­dag, myndi frá og með mið­nætti á mánu­dag líka ná yfir Bret­land og Írland. Ríkin tvö voru upp­haf­lega und­an­skilin frá bann­inu þegar Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti greindi frá því í síð­ustu viku.

Ferða­­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga, virkar þannig að öllum íbúum landa sem til­­heyra Schengen-­­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­­ópu, verður meinað að koma til Banda­­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­­is­­borg­­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­­ríkj­unum munu fá að ferð­­ast ef þeir vilja en sam­­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í kjöl­far yfir­­lýs­ingar Trump um ferða­­bannið á vef heima­varn­­ar­ráðu­­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-­­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­­velli þar sem sér­­stakar ráð­staf­­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár