Trump: Kemur til greina að aflétta ferðabanni á ákveðin ríki

Banda­ríkja­for­seti segir að Bretland gæti bæst á lista yfir þau lönd sem ferða­bannið nær yfir. Það komi líka til greina að taka ríki af list­anum.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði á blaða­manna­fundi í dag að til greina kæmi að bæta Bret­landi á lista yfir þau Evr­ópu­lönd sem ferða­bannið til Banda­ríkj­anna sem hann lýsti í vik­unni yfir að sett yrði á. 

Þá kæmi einnig til greina að end­ur­skoða veru ann­arra ríkja sem eru sem stendur á list­anum. Á meðal þeirra ríkja sem ferða­bannið, sem tekur gildi á mið­nætti, nær yfir er Ísland.

Trump greindi frá því að ferða­bannið yrði sett á aðfara­nótt fimmtu­dags. Ferða­bannið, sem á að standa yfir í 30 daga, mun að óbreyttu virka þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schengen-svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evrópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í kjöl­far yfir­lýs­ingar Trump um ferða­bannið á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schengen-svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

[adspot]Sú stað­reynd, að Banda­ríkja­menn eru allra þjóða lík­leg­astir til að heim­sækja Ísland heim, gera Banda­ríkin að stærsta ein­staka við­skipta­land Íslands í þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem í felst aðal­lega sala á ferða­þjón­ustu. Á árinu 2018, þegar sá þjón­ustu­út­flutn­ingur náði hámarki, var hann 32 pró­sent af öllum heild­ar­út­flutn­ingi Íslands á þjón­ustu. Samkvæmt bráða­birgð­ar­tölum Hagstofu Íslands fyrir síð­asta ár var hann 29,2 pró­sent það árið. Alls var um að ræða 202 millj­arða króna í þjón­ustu­tekjum sem koma frá þessu eina landi. 

Þjón­ustu­jöfn­uður Íslands, mun­ur­inn á útfluttri og inn­fluttri þjón­ustu, var jákvæður um 239 millj­arða króna í fyrra sam­kvæmt bráða­birgða­tölum. Heild­ar­tekjur íslenska þjóð­ar­bús­ins af þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem aftur er að lang­mestu leyti ferða­þjón­ustu­tengdur, voru 692 millj­arðar króna í fyrra. Þessar tekjur eru nú ekki að koma inn í landið að stóru leyti ekki að koma inn í landið og algjör óvissa ríkir um hvernig háanna­tím­inn í ferða­þjón­ustu, sem er sum­ar­tím­inn, muni koma út þótt að við­búið sé að sam­dráttur upp á tugi pró­senta muni eiga sér stað.

Íslensk stjórn­völd komu á fram­færi í gær­morgun hörðum mót­mælum við aðgerð­unum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra átti þá sam­tal við sendi­herra Banda­ríkj­anna, og í kjöl­farið fund með stað­gengli hans, til þess að koma mót­mælum á fram­færi. Guð­laugur Þór á að eiga fund með Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í næstu viku vegna máls­ins. Þar verður farið fram á að Ísland verði und­an­skilið frá ferða­bann­inu, meðal ann­ars vegna land­fræði­legrar legu lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár