Langtímaatvinnuleysi 143 prósent meira en það var fyrir kórónuveirufaraldur

Þótt almennt atvinnu­leysi sé komið niður í sömu hlut­falls­tölu og fyrir far­aldur þá er atvinnu­leysið ann­ars konar nú. Þúsundir eru á tíma­bundnum ráðn­inga­styrkjum og 44 pró­sent atvinnu­lausra hafa verið án vinnu í ár eða lengur.

Þótt ferðamenn séu farnir að heimsækja Ísland í meira magni en í fyrra, og störfum í geiranum hafi samhliða fjölgað, er langur vegur að því að ferðaþjónustan skapi jafn mörg störf og hún gerði fyrir heimsfaraldur.
Þótt ferða­menn séu farnir að heim­sækja Ísland í meira magni en í fyrra, og störfum í geir­anum hafi sam­hliða fjölgað, er langur vegur að því að ferða­þjón­ustan skapi jafn mörg störf og hún gerði fyrir heims­far­aldur. Mynd: Bára Huld Beck

Í lok síð­asta mán­aðar var atvinnu­leysi hér­lendis komið niður í fimm pró­sent, og var þá hlut­falls­lega jafn mikið og það var í febr­úar 2020, áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Í apríl 2020, þegar fjöldi fyr­ir­tækja setti starfs­fólk sitt á hluta­bætur, mæld­ist atvinnu­leysið 17,8 pró­sent en 10,3 pró­sentu­stig féllu til vegna þeirra sem voru tíma­bundið sett á hluta­bætur. Almennt atvinnu­leysi mæld­ist mest í jan­úar síð­ast­liðnum, 11,6 pró­sent, og heild­ar­at­vinnu­leysi að með­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­sent.

Þrátt fyrir að atvinnu­leysið hafi minnkað skarpt, og sé á sama stað hlut­falls­lega og það var fyrir far­ald­ur­inn, þá er ýmis­legt enn ólíkt með stöð­unni þá og nú. Þar ber helst að nefna lang­tíma­at­vinnu­leysi og fjölda þeirra ein­stak­linga sem telj­ast starf­andi vegna þátt­töku í úrræðum á vegum hins opin­bera.

Næstum helmingur án vinnu í meira en ár

Í febr­úar 2020 voru aðstæður í íslensku atvinnu­lífi ekki full­komnar. Atvinnu­leysið, þá fimm pró­sent, hafði ekki mælst meira í næstu átta ár, eða síðan í apríl 2012. Eftir gjald­þrot WOW air og loðnu­brest var lít­ill hag­vöxtur á árinu 2019 og vonir stóðu til að árið 2020 yrði ár við­spyrnu. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gerði þær vonir síðan að engu.

[adspot]Í síð­asta mán­uð­inum áður en far­ald­ur­inn lok­aði Íslandi og ger­breytti sam­fé­lag­inu voru 9.162 manns atvinnu­lausir hér­lendis. Af þeim höfðu 1.893 verið án atvinnu í meira en 12 mán­uði sem voru 1.137 fleiri en höfðu verið án atvinnu í ár eða lengur í lok febr­úar 2019. Því voru um 21 pró­sent atvinnu­lausra í febr­úar 2020 flokk­aðir sem lang­tíma­at­vinnu­lausir.

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum var fjöldi þeirra sem hafði verið án atvinnu í meira en ár 4.598. Hlutfall atvinnu­lausra sem hafði verið án starfs í ár eða lengur var 44 pró­sent og fjöldi lang­tíma­at­vinnu­lausra er 143 pró­sent meiri en hann var áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

Þúsundir á tímabundnum ráðningastyrkjum

Sem stendur eru enn í gildi svo­kall­aðir ráðn­inga­styrkir, sem greiddir eru út í tengslum við atvinnu­átakið Hefjum störf. Það snýst um að rík­is­sjóður greiði þorra launa nýrra starfs­manna fyr­ir­tækja tíma­bund­ið, en þeir renna flestir út á næstu vik­um. Í síð­asta mán­uði voru 89 pró­sent aug­lýstra starfa átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­ingar og mörg þús­und manns eru ráðin á þessum ráðn­ing­ar­styrkj­u­m.

Samkvæmt mæla­borði Vinnu­mála­stofn­unar hafa 6.702 ráðn­ingar átt sér stað á grund­velli átaks­ins frá 1. mars. Um 75 pró­sent þeirra ráðn­inga hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum. Lang­flest störfin sem ráðið hefur verið í á grund­velli ráðn­inga­styrks tengj­ast ferða­þjón­ustu eða tengdum greinum.

Í ljósi þess að störfum í og í kringum ferða­þjón­ustu fjölgar iðu­lega mikið yfir sum­ar­tím­ann, þegar háanna­tími er í geir­anum, má gera ráð fyrir því að störfum í geir­anum fækki með haustinu þegar ferða­menn verða færri.

Atvinnuleysi útlendinga svipað og fyrir faraldur

Alls voru 4.144 erlendir atvinnu­leit­endur án atvinnu í lok sept­em­ber og fækk­aði um 348 frá ágúst. Það þýðir að 40 pró­sent allra atvinnu­lausra voru erlendir atvinnu­leit­endur, sem er nán­ast sama hlut­fall og var í febr­úar 2020.

Atvinnu­leysið er mest á Suð­ur­nesjum nú, eða 9,1 pró­sent, en atvinnustigið þar er mjög háð því að mikið sé að gera í ferða­þjón­ustu vegna nálægðar við Kefla­vík­ur­flug­völl. Atvinnu­leysið hefur hríð­fallið þar frá því í byrjun árs þegar það var 23,3 pró­sent og er nú hlut­falls­lega það sama og það var fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár