Heimildarmynd um nauðgun og morð í Indlandi bönnuð

Indversk stjórn­völd hafa bannað sýn­ingu á heim­ild­ar­mynd­inni India's Daughter, sem fjallar um nauðgun og morð á hinni 23 ára gömlu Jyoti Singh í Delhi í lok árs 2012. Þau ætla jafn­framt að reyna að koma í veg fyrir að myndin verði sýnd ann­ars staðar í heim­inum, að sögn inn­an­rík­is­ráð­herra Indlands, Rajnath Singh, sem tal­aði um málið í ind­verska þing­inu. Hann segir að eng­inn fái að nýta sér atburð­inn á nokkurn hátt.

Frumsýna á mynd­ina á sunnu­dag­inn, en sunnu­dag­inn ber upp á 8. mars sem er alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna. Myndin markar einnig upp­haf víð­tækrar her­ferðar gegn ofbeldi gegn konum. Sýna átti hana í Indlandi og sjö öðrum löndum á sunnu­dag­inn, þar á meðal á BBC4 í Bret­landi. Búið er að fara þess á leit við BBC að myndin verði ekki sýnd, en við því verður ekki orðið að sögn tals­konu BBC. Þá á að sýna mynd­ina víðar næstu daga á eftir.

Aðgengi að nauðgara fordæmalaust


Inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Rajnath Singh segir jafn­framt að hann muni láta rann­saka hvernig aðstand­endur mynd­ar­innar hafi fengið að fara inn í fang­elsi og tala við fanga á dauða­deild, en í mynd­inni er rætt við einn nauð­gar­anna, Mukesh Singh. Hann sýnir ekki nokkra iðrun í við­tal­inu heldur kennir fórn­ar­lamb­inu um. Hún hafi ekki hagað sér eins og konu sæmi og að ef hún hefði ekki barist gegn nauðg­un­inni hefði hún ekki verið myrt.

Breska kvik­mynda­gerð­ar­konan Leslee Udwin gerði mynd­ina og hún ætlar að berj­ast gegn lög­bann­inu á mynd­ina. Hún segir að bæði fang­elsið og ráðu­neytið hafi gefið leyfi fyrir við­tal­inu og að hún hafi sýnt fang­els­is­yf­ir­völdum við­tölin eftir á. Aðgangur hennar að fang­els­inu er næstum for­dæma­laus, hún tók við­tal við nauð­gar­ann í sextán klukku­stundir yfir þriggja daga tíma­bil. Mann­rétt­inda­sam­tök fá sjaldn­ast aðgang að fang­elsum lands­ins, hvað þá að mynda þar, og hefur þetta vakið athygli margra.

Lögregla fór fram á lög­bann á mynd­ina vegna ummæla Mukesh Singh í henni, sem lög­regla segir að veki upp and­rúms­loft ótta og spennu og að ummælin geti valdið háværum mót­mælum og óeirðum.

Ekki hægt að horfa framhjá vandanum


Annar ráð­herra, Venkaiah Naidu, segir að myndin sé í raun alþjóð­legt sam­særi sem snú­ist um að rægja Indland og að ríkið myndi bíða skaða af því að myndin verði sýnd um heim­inn.

Þing­konan Anu Agha segir hins vegar að bann við mynd­inni sé ekki svarið. „Við verðum að takast á við það vanda­mál að margir karlar í Indlandi bera ekki virð­ingu fyrir konum. Það sem nauð­gar­inn sagði er við­horf margra karla í Indlandi. Af hverju erum við að forð­ast þetta? Verum með­vituð og látum ekki eins og allt sé í lagi,“ sagði hún í dag.

Talskona BBC hefur einnig tjáð sig um málið og sagt að þessi átak­an­lega mynd veiti inn­sýn inn í hræði­legan glæp, sem þó leiddi til umfangs­mik­illa mót­mæla þar sem þess var kraf­ist að við­horf gagn­vart konum breyt­ist.

Udwin sjálf hefur talað á svip­uðum nótum. Hún hefur sagt að Ind­verjar ættu í raun að fagna mynd­inni, nú sé komið tæki­færi fyrir Indland til að halda áfram að sýna heim­inum hversu mikið hefði breyst eftir þennan sví­virði­lega glæp. „Því miður mun bann mynd­ar­innar ein­angra landið í augum heims­ins. Það mun hafa þver­öfug áhrif.“

BBC segir að margir taki undir þennan mál­flutn­ing, það komi ekki vel út fyrir stjórn­völd að líta út fyrir að vera á móti tján­ing­ar­frels­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár