Ekkert ólöglegt við nafnlausan áróður í þingkosningum

Engir flokkar eru ábyrgir fyrir nafn­lausum áróðri huldu­að­ila í aðdrag­anda kosn­inga og stjórn­völd telja sig ekki geta graf­ist um hverjir standi á bak við slíkan áróður.

Ekkert liggur fyrir um það hvaða huldu­að­ilar stóðu að nafn­lausum áróðri í kringum alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og 2017 og ekk­ert liggur fyrir hvort stjórn­mála­sam­tök sem lúta eft­ir­liti Rík­is­end­ur­skoð­unar hafi „staðið á bak við umræddar her­ferðir eða notið góðs af þeim þannig að slíks fram­lags bæri að geta í reikn­ingum stjórn­mála­sam­tak­anna eða ein­stakra fram­bjóð­enda.“ Þá er vand­séð hvað stjórn­völd geti gert til að graf­ast fyrir um hverjir standi á bak við þær.

[links]Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um aðkomu og hlut­deild huldu­að­ila í kosn­ingum til Alþingis. Skýrslan er átta blað­síður og var unnin að beiðni þing­manna úr fjórum flokkum.

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni kom fram að nafn­lausar aug­lýs­ingar sem beindust gegn ákveðnum stjórn­mála­flokkum hefðu verið áber­andi á sam­fé­lags­miðlum fyrir alþing­is­kosn­ingar haustin 2016 og 2017. Í skýrsl­unni segir: „Þær síður sem voru mest áber­andi voru Kosn­ingar 2016 og Kosn­ingar 2017 sem beindu spjótum sínum að flokkum á vinstri væng stjórn­mál­anna og Kosn­inga­vaktin sem rak áróður gegn flokkum á hægri vængnum. Umræddar síður voru allar vistaðar á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Ekkert bendir til þess að umræddar her­ferðir hafi verið ólög­legar miðað við núgild­andi lög og því er vand­séð hvað stjórn­völd geti gert til að graf­ast nánar fyrir um hverjir stóðu á bak við þær.“

[adspot]Þegar beiðnin um skýrsl­una var lögð fram í mars síð­ast­liðnum var sér­stak­lega óskað eftir því að skýrslan myndi kanna hvort stjórn­mála­flokk­ar, sem buðu fram í kosn­ingum til Alþingis 2016, hafi gert grein fyrir fram­lögum til kosn­inga­bar­áttu sinnar í formi aug­lýs­inga­her­ferða á vef- og sam­fé­lags­miðlum sem kost­aðar voru af þriðja aðila. Einnig er beðið um að mat fari fram á verð­mæti þeirra fram­laga sem falli undir fram­an­greinda skil­grein­ingu og ekki var gerð grein fyrir í árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokk­anna.

Í skýrsl­unni segir að eft­ir­lit Rík­is­end­ur­skoð­unar bein­ist fyrst og fremst að fjár­málum stjórn­mála­sam­taka og ekk­ert liggi fyrir um hvort stjórn­mála­sam­tök sem lúta því eft­ir­liti hafi staðið á bak við umræddar her­ferðir eða notið góðs af þeim þannig að slíks fram­lags bæri að geta í reikn­ingum stjórn­mála­sam­tak­anna eða ein­stakra fram­bjóð­enda.

Æskilegt að í gildi væru reglur

Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma í veg fyrir „óeðli­leg áhrif á kosn­ingar þar sem stjórn­mála­sam­tök, aðilar tengdir þeim eða aðilar sem draga taum til­tek­inna stjórn­mála­afla geta beitt sér með óprút­tnum hætti án þess að kjós­endur geti áttað sig á hver eigi í hlut eða varað sig á ann­ar­legum hvötum og hags­munum sem kunna að búa að baki.“

Þar stendur einnig að gæta þurfi að því að reglur sem tryggja eigi gagn­sæi fjár­mögn­unar stjórn­mála­starf­semi virki eins og til er ætl­ast. Sama kunni að eiga við um her­ferðir í þágu til­tek­inna mál­efna án þess að þær teng­ist til­teknum stjórn­mála­sam­tökum. „Þá væri æski­legt að í gildi væru reglur um póli­tískar aug­lýs­ingar, ekki síst í aðdrag­anda kosn­inga, og óháð miðl­un­ar­formi.“

Í nið­ur­stöð­unum segir að engar vís­bend­ingar séu um aðkomu erlendra aðila að kosn­inga­bar­áttu hér á landi líkt og verið hefur í mörgum öðrum ríkjum. „Fyllsta ástæða er þó til að vera á varð­bergi. Fylgjast þarf vel með umræðu í öðrum Evr­ópu­ríkjum um aðgerðir til að draga úr umfangi og áhrifum rangra og vill­andi upp­lýs­inga og eftir atvikum fara í sams konar leiðir hér á landi og þar er verið að ræða.“

Athugasemdir ÖSE

Í grein­ar­gerð með skýrslu­beiðn­inni, sem lögð var fram í mars, kom meðal ann­ars fram að í skýrslu Örygg­is- og sam­vinnu­stofn­unar Evr­ópu (ÖSE) í kjöl­far alþing­is­kosn­ing­anna árið 2017 hafi sagt að „að umboð eft­ir­lits­að­ila til eft­ir­lits með ólög­mætum og nafn­lausum kosn­inga­á­róðri á net­miðlum væri ófull­nægj­andi. Athuga­semdir ÖSE eru alvar­legar og renna stoðum undir mik­il­vægi þess­arar skýrslu­beiðn­i.“

Þar sagði enn fremur að leggja þyrfti mat á það hvort stjórn­mála­flokk­arnir sem hag höfðu af her­ferð­unum teld­ust hafa hlotið fram­lag sem nemur kostn­aði við fram­leiðslu og dreif­ingu þeirra og ef svo er, hvort gerð hafi verið grein fyrir þeim fram­lögum í árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokk­anna. „Þá þarf að kom­ast að því hverjir stóðu að áróðr­inum og kanna tengslin milli þeirra og stjórn­mála­flokk­anna sem buðu fram til Alþing­is.“

Samkvæmt skýrslu for­sæt­is­ráð­herra er ekk­ert af þessu hægt.

Framlög til stjórnmálaflokka hækkuð um 127 prósent

Það var nokkuð arð­bært að kom­ast inn á Alþingi eftir síð­ustu kosn­ingar, þar sem fram­lög til stjórn­mála­flokka voru hækkuð um 127 pró­sent á milli jóla og nýárs 2017 sam­kvæmt til­lögu sex þeirra átta flokka sem sæti eiga á Alþingi nú. Nú fá flokk­arnir 648 millj­ónir króna árlega til að skipta á milli sín. Flokk­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.­

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fá sam­tals 347,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði í ár og fram­lög til þeirra hækka um 195 millj­ónir króna. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fá 300,5 millj­ónir króna, sem er 137 millj­ónum króna meira en þeir hefðu fengið ef fram­lögin hefðu ekki verið hækk­uð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár