Vilja opinbera þá sem stóðu að nafnlausum áróðri í Alþingiskosningum

Þingmenn úr fjórum flokkum vilja að for­sæt­is­ráð­herra láti gera skýrslu um aðkomu huldu­að­ila að kosn­inga­á­róðri í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga. Þeir vilja að tengsl milli þeirra og stjórn­mála­flokka verði könnuð.

Þingmenn fjög­urra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um aðkomu og hlut­deild huldu­að­ila í kosn­ingum til Alþingis. Þeir vilja meðal ann­ars að kom­ist verði að því hverjir stóðu að nafn­lausum áróðri í kringum alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og 2017 og kanna tengslin milli þeirra og stjórn­mála­flokk­anna sem buðu fram til Alþingis.

[links]Í beiðn­inni er farið fram á að skýrslan muni m.a. kanna hvort stjórn­mála­flokkar, sem buðu fram í kosn­ingum til Alþingis 2016, hafi gert grein fyrir fram­lögum til kosn­inga­bar­áttu sinnar í formi aug­lýs­inga­her­ferða á vef- og sam­fé­lags­miðlum sem kost­aðar voru af þriðja aðila. Einnig er beðið um að mat fari fram á verð­mæti þeirra fram­laga sem falli undir fram­an­greinda skil­grein­ingu og ekki var gerð grein fyrir í árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokk­anna.

Þá vilja þing­menn­irnir að skýrslan fjalli um hvort og þá hvernig unnt sé að greina aðkomu og hlut­deild huldu­að­ila í síð­ustu tvennum kosn­ingum til Alþingis og hvort og þá hvernig komið verði í veg fyrir nafn­lausar kosn­inga­aug­lýs­ingar og áróður.

Að lokum er þess óskað að for­sæt­is­ráð­herra taki afstöðu til þess hvernig komið verði í veg fyrir nafn­lausar kosn­inga­aug­lýs­ingar og áróður inn­lendra aðila og jafn­framt hvernig bregð­ast megi við hætt­unni á inn­gripi erlendra aðila í kosn­ingum á Íslandi.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Auk þessar eru þrír aðrir þing­menn Við­reisnar flutn­ings­menn ásamt þremur þing­mönnum Pírata, Loga Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, og stjórn­ar­þing­mann­inum Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, sem situr á þingi fyrir Vinstri græna.

Markmiðið að styrkja lýðræðið

Í grein­ar­gerð sem fylgir beiðn­inni segir að mark­mið hennar sé að styrkja lýð­ræðið á Íslandi með því að auka gegn­sæi í kosn­inga­bar­áttu og stuðla að því að öllum verði ljóst hverjir standi að baki kosn­inga­á­róðri, hverju nafni sem hann nefn­ist. Með huldu­að­ilum í skýrslu­beiðn­inni er átt við aðila sem fram­leiða og dreifa aug­lýs­ingum í þágu eða gegn til­teknum stjórn­mála­flokkum eða ein­stak­lingum í skjóli nafn­leyndar.

[adspot]Þar segir enn fremur: „Í alþing­is­kosn­ingum árin 2016 og 2017 var nafn­laus áróður gegn ákveðnum stjórn­mála­flokkum áber­andi á sam­fé­lags­miðlum. Um var að ræða rætnar og and­lýð­ræð­is­legar her­ferðir sem eng­inn vill gang­ast við. Á skömmum tíma höfðu tug­þús­undir ein­stak­linga séð og dreift umræddum mynd­böndum og áróðri á sam­fé­lags­miðlum (einkum á Facebook og YouTube) þar sem veist var að póli­tískum and­stæð­ingum í skjóli nafn­leyndar og ráð­ist að þeim per­sónu­lega með ósann­indum og skrum­skæl­ingum án þess að kjós­endum væri ljóst hverjir stæðu á bak við áróð­ur­inn. Þær síður sem mest voru áber­andi voru ann­ars vegar Facebook-síð­urnar Kosn­ingar 2016 og Kosn­ingar 2017, sem beindu spjótum sínum að flokkum á vinstri væng stjórn­mál­anna, og hins vegar Facebook-síðan Kosn­inga­vaktin, sem beindi spjótum sínum að hægri væng stjórn­mál­anna.

Í skýrslu Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu (ÖSE) í kjöl­far alþing­is­kosn­ing­anna árið 2017 kom m.a. fram að umboð eft­ir­lits­að­ila til eft­ir­lits með ólög­mætum og nafn­lausum kosn­inga­á­róðri á net­miðlum væri ófull­nægj­andi. Athuga­semdir ÖSE eru alvar­legar og renna stoðum undir mik­il­vægi þess­arar skýrslu­beiðni.“ Hér að neðan má sjá mynd­band sem Facebook-síðan Kosn­ingar 2017 lét gera og birta fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar.

Þar segir að leggja þurfi mat á það hvort stjórn­mála­flokk­arnir sem hag höfðu af her­ferð­unum telj­ist hafa hlotið fram­lag sem nemur kostn­aði við fram­leiðslu og dreif­ingu þeirra og ef svo er, hvort gerð hafi verið grein fyrir þeim fram­lögum í árs­reikn­ingum stjórn­mála­flokk­anna. „Þá þarf að kom­ast að því hverjir stóðu að áróðr­inum og kanna tengslin milli þeirra og stjórn­mála­flokk­anna sem buðu fram til Alþingis.“

Vilja líka skoða aðkomu erlendra aðila

Í grein­ar­gerð­inni er sagt að ekki þurfi ein­göngu að taka til­lit til athug­unar kosn­inga­á­róður inn­lendra huldu­að­ila. Fréttir hafi verið áber­andi víða um heim af áróðri huldu­að­ila og mögu­legum tengslum þeirra við vald­hafa utan þess ríkis sem áróðr­inum er beint að. Þar er verið að vísa til frétta um fyr­ir­tækið Cambridge analytica, sem opin­berað hefur verið að hafi beitt ýmsum póli­tískum brögðum gegn póli­tískum and­stæð­ingum þeirra sem fyr­ir­tækið væri að vinna fyr­ir, Þá hefur komið fram að fyr­ir­tækið beiti kerf­is­bund­inni dreif­ingu á umfjöll­unum og efni á sam­fé­lags­miðl­um, sem gæti náð til hópa sem gætu verið lík­legir til að kjósa þann sem unnið væri fyr­ir. Auk þess nýtti Cambridge analytica sér per­sónu­upp­lýs­ingar um 50 millj­ónir not­endur Facebook sem aflað var í gegnum per­sónu­leika­próf í ofan­greindum erinda­gjörðum.

Þing­menn­irnir segja að full ástæða sé til þess að sam­hliða mati á hlut­deild og aðkomu inn­lendra aðila að þing­kosn­ingum á Íslandi að í skýrsl­unni verði lagt mat á hætt­una sem lýð­ræð­inu gæti stafað af slíkum her­ferðum erlendra aðila og tekin afstaða til fyr­ir­byggj­andi aðgerða gegn þeim. „Tján­ing­ar­frelsið er nauð­syn­legt allri lýð­ræð­isum­ræðu og er því rétt að við gerð skýrsl­unnar verði tekin afstaða til þess hvernig umræddar aug­lýs­inga­her­ferðir rúmist innan þess réttar og þeirra tak­mark­ana sem kveðið er á um í tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði 73. gr. stjórn­ar­skrár­innar. Þá er mik­il­vægt að Alþingi sýni frum­kvæði og stuðli að því að for­sæt­is­ráð­herra skoði þessi mál. Til þess verði m.a. fengnir sér­fræð­ingar sem geti greint stöð­una og lagt fram til­lögur sem styrkja opið og gegn­sætt lýð­ræð­is­sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár