Annar bátur að sökkva í Miðjarðarhafi - 300 taldir um borð

Neyð­ar­kall hefur borist frá sökkvandi báti í Mið­jarð­ar­haf­inu, en um borð eru 300 flótta­menn. Að sögn Alþjóða­stofn­unar um fólks­flutn­inga (IOM) eru minnst 20 látnir. Samkvæmt neyð­ar­kall­inu sem IOM barst fyrir skömmu síðan eru þrír bátar í vanda á svæð­inu.

Stórslys varð í Mið­jarð­ar­haf­inu um helg­ina þegar bát með fjölda flótta­manna um borð hvolfdi. Talið er að á bil­inu 700 til 950 manns hafi verið um borð í bátnum og flestir drukkn­uðu.

Ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna funda um mál­efni flótta­manna seinna í dag í Lúx­em­borg vegna slyss­ins um helg­ina. Federica Mog­her­ini, yfir­maður utan­rík­is­mála hjá ESB, hefur sagt að Evrópa hafi sið­ferð­is­legum skyldum að gegna gagn­vart flótta­mönnum sem leggja sig í mikla hættu við að kom­ast til Evrópu. "Mið­jarð­ar­hafið er okkar haf og við þurfum að grípa til aðgerða saman. Það er líka í okkar þágu, okkar trú­verð­ug­leika; Evr­ópu­sam­bandið var stofnað og grund­vall­ast á vernd mann­rétt­inda, og virð­ingu fyrir manns­lífum - við þurfum að vera sam­kvæmt sjálfum okkur.“

Evr­ópu­sam­bandið hefur und­an­farið dregið úr aðgerðum sínum á Mið­jarð­ar­hafi, en gríð­ar­legur fjöldi fólks reynir að kom­ast frá Afr­íku­ríkjum yfir til Ítalíu og Möltu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár