Óljóst hvernig sveitarfélög eigi að bera sig að við uppsetningu neyslurýma

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga skil­aði nýlega inn umsögn við reglu­gerð um neyslu­rými. Sam­bandið segir sveit­ar­fé­lög „hafa ekki góða reynslu af því að verk­efni með fremur óskýrri sam­eig­in­legri ábyrgð séu fjár­mögnuð með skúffu­pen­ingum“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra lagði fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni. Mynd: Bára Huld Beck

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga telur það ekki vera nógu skýrt í drögum að reglu­gerð um neyslu­rými hver muni beri ábyrgð á þeirri starf­semi sem fram fer í tengslum við neyslu­rými. Þetta kemur fram í nýrri umsögn sam­bands­ins um drögin sem finna má í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Á vor­dögum sam­þykkti Alþingi frum­varp til laga um um breyt­ingu á lögum um ávana- og fíkni­efni sem heim­ilar sveit­ar­fé­lögum að stofna og reka neyslu­rými ef skil­yrði reglu­gerðar sem ráð­herra setur um neyslu­rými eru upp­fyllt. Reglu­gerð ráð­herra var birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þann 2. júní síð­ast­lið­inn en umsögn sam­bands­ins barst nú í vik­unni.

Þörf á greiningu á samspili heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu

Í umsögn sam­bands­ins segir: „Áformuð reglu­gerð sækir stoð sína til laga­breyt­ingar sem Alþingi gerði þann 20. maí sl. Í grein­ar­gerð með frum­varpi til þeirra breyt­inga er vísað til skýrslu heil­brigð­is­ráð­herra um skaða­minnkun (þing­skjal 1595 á 846. máli 145. lþ.) og þeirrar nið­ur­stöðu „að líta ætti á vanda neyt­enda ávana- og fíkni­efna í íslensku sam­fé­lagi sem heil­brigð­is­vanda­mál fremur en við­fangs­efni lög­reglu og refsi­vörslu­kerf­is­ins, að neyt­endur í vanda væru fyrst og fremst sjúk­lingar en ekki afbrota­menn.““

Þörf hafi verið á hlið­stæðri grein­ingu á sam­spili heil­brigð­is­þjón­ustu og félags­þjón­ustu áður en laga­stoð var sett inn í reglu­gerð sem gengur út frá því að sveit­ar­fé­lög beri ábyrgð á rekstri og starf­semi neyslu­rýma að mati sam­bands­ins.

[adspot]

Ábyrgð á heilbrigðisþjónustu liggi hjá ríkinu

Enn fremur segir í umsögn­inni: „Sam­bandið leggur meg­in­á­herslu á að þeir sem glíma við mik­inn neyslu­vanda eru „fyrst og fremst sjúk­lingar“ en hafa einnig brýna þörf fyrir félags­lega aðstoð og stuðn­ing. Minnt er á að meg­in­reglur íslenskra laga eru alveg skýrar um að ábyrgð á heil­brigð­is­þjón­ustu liggi hjá rík­inu en ekki sveit­ar­fé­lög­unum.“

Þá telur sam­bandið að álita­efni geti komið komið upp ef ekki verður ráð­ist í að gera áður­nefnda grein­ingu á sam­spili heil­brigð­is­þjón­ustu og félags­þjón­ustu. Í álit­inu eru nefnd nokkur dæmi: „Teljast not­endur vera sjúk­lingar í skiln­ingi laga nr. 74/1997, um rétt­indi sjúk­linga? Taka lög nr. 111/2000, um sjúk­linga­trygg­ingu, til lík­am­legs eða geð­ræns tjóns sem verður í neyslu­rými? Geta starfs­menn sveit­ar­fé­lags í neyslu­rými, sbr. IV. kafla áform­aðrar reglu­gerðar orðið bóta­skyldir gagn­vart not­endum vegna tjón­stil­vika sem eiga sér stað í neyslu­rými? Hvað merkir í því sam­bandi að neyslu­rými telj­ist „laga­lega verndað umhverfi“ sbr. 3. gr. áform­aðrar reglu­gerðar?“

Nýtt grátt svæði í samskiptum ríkis og sveitarfélaga

Í umsögn­inni er það sagt áhyggju­efni að óskýrt fyr­ir­svar fyrir þeirri starf­semi sem ráð­gerð sé í neyslu­rýmum kunni að leiða til þess að nýtt grátt svæði verði til í sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga. Þar segir einnig að við með­ferð frum­varps­ins hafi komið fram að gert hefði verið ráð fyrir 50 millj­óna króna fram­lagi frá heil­brigð­is­ráðu­neyti til að koma úrræð­inu á fót. Það fjár­magn fari í að koma úrræð­inu á fót í Reykja­vík.

„Þótt lík­legt megi telja að samn­inga­við­ræður heil­brigð­is­ráðu­neytis og Reykja­vík­ur­borgar leiði til nið­ur­stöðu er hitt óút­kljáð hvernig önnur sveit­ar­fé­lög eigi að bera sig að komi fram þrýst­ingur um að þau taki til við að starf­rækja slík rými,“ segir um stöðu ann­arra sveit­ar­fé­laga í umsögn­inni.

Segja starfsemi neyslurýma mikilvæga

Hætta sé á því að sveit­ar­fé­lög sitji uppi með verk­efni án fjár­magns að mati sam­bands­ins: „Þá skal enn­fremur minnt á að sveit­ar­fé­lögin hafa ekki góða reynslu af því að verk­efni með fremur óskýrri sam­eig­in­legri ábyrgð séu fjár­mögnuð með skúffu­pen­ingum eða í gegnum tíma­bundin til­rauna­verk­efni. Fjölmörg dæmi eru um að fjár­veit­ingar rík­is­ins þverri á til­tölu­lega fáum árum en sveit­ar­fé­lög sitji þá eftir með verk­efni og ábyrgð á því að mæta vænt­ingum not­enda um þjón­ustu“

Í sam­an­tekt­ar­kafla umsagn­ar­innar segir að sam­bandið taki heils­hugar undir nauð­syn þess að þróa áfram skaða­minnk­andi aðgerðir í opin­berri vel­ferð­ar­þjón­ustu og að starf­semi neyslu­rýma sé mik­il­vægur þáttur í þeirri nálgun. Hins vegar vanti að skýra það betur hver beri ábyrð á þeirri starf­semi sem fram fer í tengslum við neyslu­rými.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár