Norðmenn fikra sig út úr svartnættinu

Flestar tölur um far­ald­ur­inn hafa síð­asta mán­uð­inn verið á upp­leið í Noregi. Smit­fjöldi. Inn­lagnir á sjúkra­hús. Inn­lagnir á gjör­gæslu. Eftir dumb­ungs­legar vikur hvað þetta varðar er loks farið að birta eilítið til. Pestin mun þó lík­lega geisa til maíloka.

Hjukrunarfræðingur sinnir COVID-veikum sjúklingi á spítala í Ósló.
Hju­kr­un­ar­fræð­ingur sinnir COVID-veikum sjúk­lingi á spít­ala í Ósló. Mynd: EPA

Síðustu vikur hafa ekki beint aukið Norð­mönnum bjart­sýni í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Það er auð­velt að benda fingri á söku­dólg­inn: Hið breska afbrigði kór­ónu­veirunnar. Það greind­ist fyrst í Noregi í des­em­ber en hefur síðan þá orðið það fyr­ir­ferða­mesta í rað­grein­ingum á veirunni og vel yfir 70 pró­sent allra sem greinst hafa í mars eru smit­aðir af afbrigð­inu sem Bretar kenna við Kent en flestir aðrir ein­fald­lega við Bretland. Það ber orðið ábyrgð á meiri­hluta allra dauðs­falla vegna COVID-19 í Bret­landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins og er það langút­breiddasta í allri Evrópu.

Þetta er ekki ný kór­ónu­veira. Heldur stökk­breytt kór­ónu­veira. Og meira að segja hefur breska afbrigðið stökk­breyst síðan það upp­götv­að­ist fyrst. Nú er talað um stökk­breytt stökk­breytt afbrigði – svona til að flækja málin aðeins meira.

[adspot]

Þetta kemur hins vegar ekk­ert á óvart frá far­alds­fræði­legu sjón­ar­horni í það minnsta. Í upp­hafi far­ald­urs­ins voru allar veir­urnar sem voru að sýkja fólk af sjúk­dómi sem fékk svo nafnið COVID-19 mjög svip­aðar. En með hverju smiti eru líkur á stökk­breyt­ingum. Og þó að flestar þessar stökk­breyt­ingar skipti litlu eða engu hvað varðar breytt ein­kenni sjúk­dóms­ins gerir hinn gríð­ar­legi fjöldi smita það að verkum að veiran, SARS-CoV-2, hefur í ein­hverjum til­vikum breyst til hins verra (fyrir okkur) og náð að auka færni sína til að smita fólk og jafn­vel valda alvar­legri ein­kennum. Um þetta allt saman getur þú lesið hér, í nýlegu við­tali Kjarnans við Arnar Pálsson erfða­fræð­ing.

Og eitt þess­ara stökk­brigða, fyrst greint í Bret­landi í nóv­em­ber, hefur náð að dreifa sér til yfir 130 landa. Fleiri bráðsmit­andi stökk­brigði eru á kreiki en hér skal fjallað um hið breska og þá helst óskund­ann sem það hefur gert í nágranna­ríki okkar Noregi.

Meira smitandi og hættulegra

„Þetta er alvar­legt,“ sagði Line Vold, deild­ar­stjóri hjá Lýð­heilsu­stofnun Noregs fyrir nokkrum dögum. Hún var að tala um veiru­af­brigðið breska sem tölur sýna nú svart á hvítu að er mun meira smit­andi en þau afbrigði sem við höfum glímt við hingað til. Það getur því breiðst út um sam­fé­lag á skemmri tími en við höfum hingað til átt að venj­ast.

En það er ekki það eina sem Vold og félagar hafa kom­ist að.

Þeir sem grein­ast með hið breska afbrigði kór­ónu­veirunnar eru í 2,6 sinnum meiri hættu á að þurfa að leggj­ast inn á sjúkra­hús en þeir sem sýktir eru af öðrum afbrigðum veirunnar. Þessi aukna áhætta á við um alla ald­urs­hópa 20 ára og eldri. Áhættan er einnig meiri meðal barna en af öðrum afbrigðum þó að hún sé minni en hjá ung­mennum og full­orðnum.

Þetta þýðir ein­fald­lega að veiru­af­brigðið veldur alvar­legri veik­indum en önnur.

Á síð­ustu viku hafa 43 verið lagðir inn á gjör­gæslu­deildir norskra sjúkra­húsa með COVID-19. Það er mesti fjöldi á einni viku síðan í lok mars í fyrra. Fyrir nokkurn veg­inn sléttu ári síðan. Fjöldi inn­lagna á gjör­gæslu hefur auk­ist fjórar vikur í röð.

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa um 90.500 manns greinst með sjúk­dóm­inn í Noregi. Um 650 hafa dáið.

Hingað til hefur yngra fólk verið í hvað minnstri áhættu á því að veikj­ast af COVID-19. Sjúk­dóm­ur­inn lagð­ist lang­verst á fólk 70 ára og eldra. En nú hefur norska Lýð­heilsu­stofn­unin kom­ist að því að meiri líkur eru orðnar á því að fólk yngra en fer­tugt veik­ist alvar­lega. Allt er það breska afbrigð­inu að kenna.

Hópsmit hafa komið upp í grunn­skólum á nokkrum stöðum í Noregi og það er líka nýtt þó að taka verði stað­festum smit­tölum meðal barna með ákveðnum fyr­ir­vara þar sem þau voru lítið sem ekk­ert skimuð í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Sam­an­burð­ur­inn er því lít­ill. En vís­bend­ingar eru þó til staðar.

Mun reyna á þolmörk sjúkrahúsanna

Eftir að nýja afbrigðið upp­götv­að­ist í Bret­landi ákvað Noregur eins og fleiri lönd að stöðva beint flug milli land­anna í þeirri von að halda mætti þess­ari stökk­breyttu veiru úti. En allt kom fyrir ekki.

Líkt og í Noregi ganga sótt­varna­að­gerðir yfir­valda út á það að verja heil­brigð­is­kerfið frá hruni. Það gafst vel í fyrri bylgjum hjá okkur og Norð­mönnum en deild­ar­stjór­inn Vold ótt­ast að sú breska geti átt eftir að reyna ræki­lega á þol­mörk sjúkra­hús­anna.

Til að verj­ast veirunni nú þarf því harð­ari aðgerðir. Það duga engin vett­linga­tök, eins og Runólfur Ólafsson yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi dags­ins.

Undir orð Vold hafa fleiri sér­fræð­ingar í Noregi tekið, m.a. Espen Nakstad, aðstoðar land­læknir. „Ef inn­lagnir halda áfram að aukast þá verður þetta mjög erfið staða.“

Hann minnir á að ein­kenna­lausir smiti og geti jafn­vel smitað meira en þeir sem þegar eru komnir með fyrstu ein­kenni. Þetta er nokkuð óvenju­legt þegar veirur eru ann­ars vegar. En við ættum að vera farin að vita það núna að nýja kór­ónu­veiran, sem er nú kannski ekk­ert ný lengur, er ólík­inda­tól. Nakstad segir að þar sem veiran sé meira smit­andi en áður fái fólk meira magn af henni inn í lík­amann er það smit­ast. Það eitt og sér geti orsakað alvar­legri veik­indi.

En ljóstíran handan gang­anna er til staðar þó að það þurfi kannski að píra augun til að sjá hana. Því ólíkt því sem var í hápunkti far­ald­urs­ins fyrir nákvæm­lega ári síðan er bólu­setn­ing við COVID-19 ekki lengur fjar­lægur draumur og ósk­hyggja. Bóluefni er til og bólu­setn­ing­ar­her­ferðir eru hafnar þó að flestir, fyrir kannski utan Ísraela, Banda­ríkja­menn og Breta, vildu gjarnan að hún gengi mun hraðar fyrir sig.

En talandi um Ísrael, Banda­ríkin og Bretland. Þar hefur dregið veru­lega og nokkuð hratt úr smit­fjölda dag frá degi og því blasir aug­ljós stað­reynd við: Bólu­efnin virka.

Líkt og hér eru Norðmenn orðnir óþreyju­fullir að fá bólu­setn­ingu. Tíundi hver þeirra er þó kom­inn með að minnsta kosti fyrri spraut­una. Nýjasta spá norsku Lýð­heilsu­stofn­un­ar­innar um þróun far­ald­urs­ins er þrátt fyrir allt ekki svo dökk lengur. Að minnsta kosti ekki miðað við í síð­ustu viku þegar hún var kol­bika­svört. Samkvæmt spánni eru enn tveir mán­uðir í að hátindi far­ald­urs­ins verði náð.

[adspot]

Og í gær sást von­ar­glæta í smit­tölum vik­unnar: Þær voru lægri og benda því, að mati Lýð­heilsu­stofn­un­ar­innar, til þess að hægt hafi á útbreiðsl­unni. Færri börn hafa t.d. smit­ast síð­ustu daga en vik­urnar á undan. Smitin almennt verða þó lík­lega á svip­uðu bili áfram en ekki í stöð­ugum veld­is­vexti. Spá um fram­haldið er gerð út frá ýmsum for­sendum. Að áfram verði hörðum aðgerðum beitt inn­an­lands og að bólu­setn­ing sé í ákveðnum og góðum takti. Það síð­ar­nefnda er auð­vitað ekki full­víst. Reynslan hefur sýnt okkur að ekki er hægt að stóla á dreif­ing­ar­á­ætl­anir lyfja­fyr­ir­tækj­anna. Í gær – svo dæmi sé tekið – bár­ust fréttir af því að bólu­efni Jansen (sem er í eigu Johnson & Johnson) verði ekki afgreitt í jafn miklum mæli næstu vikur og til stóð. Svipaðar fréttir hafa fyrr í vetur borist frá öðrum fram­leið­endum.

Pásk­arnir verða óvenju­legir í ár – eins og í fyrra reyndar. Hér á Íslandi biðja yfir­völd fólk að búa sér til „páskakúlur“ og gæta þess að umgang­ast ekki marga.

Í Noregi er staða svipuð. Yfirvöld biðja fólk að halda ekki fjöl­mennar veislur. Þau ótt­ast líka umferð­ar­öng­þveiti á vegum. Norð­mönnum líður mörgum hvergi betur en í sum­ar­hús­inu sínu. Og þangað munu þeir lík­lega streyma hvað sem tautar og raular.

Enda hefur kon­ung­legt for­dæmi fyrir slíku líka verið gefið. Sonja drottn­ing og Haraldur kon­ungur ætla að dvelja í sinni „hyttu“ í Jöt­un­heimum um pásk­ana. Höllin til­kynnti þetta í dag og bætti við að með ferða­lag­inu væri ekki verið að brjóta neinar sótt­varna­reglur. Í land­inu gilda tíu manna fjölda­tak­mörk, rétt eins og á Íslandi nú, og ætla kon­ungs­hjónin því að fækka í fylgd­ar­liði sínu en munu eftir sem áður njóta aðstoðar starfs­fólks hall­ar­innar í frí­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár