Grikkir farnir að hamstra evrur vegna ótta við gjaldeyrishöft og útgöngu úr ESB

Grikkir ætla ekki að borga Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum 1,6 millj­arð evra í þessum mán­uði eins og þeir eiga að gera ef ekki verður búið að semja um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til þeirra. Seðla­banki Grikk­lands varar við því að ef ekki semst verði greiðslu­fall hjá Grikkjum og þá muni þeir segja sig úr evr­unni og Evr­ópu­sam­band­inu.

Núver­andi sam­komu­lag Grikk­lands við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn rennur út 30. júní og á sama tíma eiga þeir að end­ur­greiða AGS.

Þá eru Grikkir farnir að taka út evrur úr bönk­unum vegna ástands­ins sem komið er upp. „Allir eru að gera þetta. Vinir okkar eru búnir að þessu. Enginn vill að pen­ing­arnir þeirra verði verð­lausir á morgun. Enginn vill lenda í því að geta ekki náð í pen­ing­ana,“ segir Joanna Christofosaki í við­tali við Guardian. Viðtalið var tekið fyrir framan hrað­banka í Kolonaki-hverf­inu í Aþenu. Hún seg­ist þekkja fjölda fólks sem búið sé að fela 10 þús­und evrur á heim­ilum sínum og margir til við­bótar feli pen­inga á vinnu­staðnum.

Inni­stæður í grískum bönkum hafa farið stöðugt lækk­andi síðan í októ­ber og hafa ekki verið lægri síðan árið 2004. Und­an­farnar vikur hafa 200 til 250 millj­ónir evra verið teknar út á hverjum degi, en á mánu­dag­inn, eftir að greint var frá því að við­ræðum við lán­ar­drottna hefði verið hætt, voru teknar út 400 millj­ónir evra á einum degi. Að hluta til ótt­ast fólk að sett verði á gjald­eyr­is­höft eins og gert var á Kýpur, þar sem fólk mun ekki geta tekið út nema mjög tak­markað magn af pen­ingum í einu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár