Þessi færsla er meira en ársgömul.

Já, það skiptir sko máli hver stjórnar

Slagorð VG í komandi kosningum segir okkur allt sem við þurfum að vita um megináherslu flokksins. Það hlýtur um leið að vera Norðurlandamet í sjálfsmeðvitundarleysi:

„Það skiptir máli hver stjórnar.“

Hið fyndna er að þetta er ekki rangt. Nei, þvert á móti er þetta slagorð í senn dagsönn fullyrðing og helsta ástæðan fyrir því að enginn vinstrimanneskja ætti að kjósa VG. Ætlunin er sýnilega að höfða til þeirra kjósenda sem vildu ekki samstarf við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk en finnst nægur sigur unninn með því að hvorugur hægriflokkanna eigi fulltrúa í forsætisráðuneytinu. Að hughreysta þá kjósendur VG sem finnst nóg að Katrín sé forsætisráðherra. Svipuð nálgun og hjá demókrötum í bandarísku forsetakosningunum árið 2016, þar sem slagorðið vísaði ekki í samfélagsmál eða stefnu heldur í frambjóðandann sjálfan, Hillary Clinton; “I’m with her!”

VG býr yfir mörgum gegnheilum hugsjónamanneskjum en flokksforystan velur að einblína á frúna í brúnni og framlengja mefistófelískt bandalag sitt við myrkraöflin í Valhöll. Ég hlýt því að beina orðum mínum beint til þín, Katrín, þar sem þín persóna er framlag flokksins til þessara kosninga. Frambjóðendur VG leggja jú mikið upp úr því að vera viðræðugóðir og opnir fyrir hugmyndum annarra. Þú sagðir sjálf:

„Við Vinstri græn tökum glöð að okkur það hlutverk að leiða saman ólík öfl að niðurstöðu. Við veljum samtalið fram yfir bergmálshellinn; það er lykilatriðið í okkar stjórnmálum og okkar sýn.“

Það er einmitt þessi margbásúnaði sáttavilji sem mig langar að taka fyrir sérstaklega. Hvaða ólíku öfl viljið þið leiða saman að niðurstöðu? Er ekki rétt skilið hjá mér að þarna sért þú að vísa til þeirrar ákvörðunar ykkar að bjóða flokki sem var forugurupp fyrir haus af spillingumeð ykkur í stjórnarsamstarf? Er það hugmynd ykkar um að „velja samtalið fram yfir bergmálshellinn“? Aðkoma almennings að ákvarðanatöku hefur ekki aukist, sér í lagi vegna þess að þið hafið ákveðið að standa ekki við loforð ykkar um að lögfesta nýju stjórnarskrána, en aðgengi Sjálfstæðisflokksins að fimm ráðuneytum var alla vega tryggður.

Af ávöxtunum þekkjum við ykkur.

Ávextirnir eru svo sannarlega ekki allir súrir, það ber að viðurkenna. Lenging fæðingarorlofs og hækkun barnabóta koma sér t.d. óneitanlega vel fyrir barnafjölskyldur. En hefur hvarflað að ykkur að hagsmunum ungra foreldra og barnanna þeirra væri enn betur borgið ef eitthvað hefði einnig verið gert til að koma í veg fyrir braskvæðingu húsnæðismarkaðarins á ykkar vakt? Ef hlutfall félagshúsnæðis af heildinni væri ekki rétt um þriðjungur af því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar? Ef hið svokallaða vinstri hefði ekki svikið launafólk og leyft málsvörum auðvaldsins að gera húsnæðismarkaðinn að trogi fyrir kapítalista? Ef þetta er það sem þið kallið „styrkingu almenna íbúðakerfisins“ þá vaknar spurningin: Hver er það sem er sterkur í þessu fyrirkomulagi? Launamanneskjan eða leigubraskarinn?

Allir vita svarið við því.

„Þrepaskipt skattkerfi,“ segir þú, Katrín. En auðvitað innleiðið þið ekki auðlegðarskatt og auðvitað á ekki að lyfta litlafingri þegar fjármálaráðherra dregur tennurnar úr stofnun Skattrannsóknarstjóra.

Það skiptir nefnilega máli hver stjórnar.

„Raunhæf og fjármögnuð aðgerðaáætlun í loftslagsmálum,“ segir þú. En að gefa afslætti á rafbílum sem aðeins hátekjuheimili eiga efni á í stað þess að styrkja hina tekjulágu í kaupum á umhverfisvænni farartækjum heitir að byrja á röngum enda. Að „áttfalda fjárframlög til málaflokksins“ og „friðlýsa fleiri svæði en nokkur önnur ríkisstjórn“ dugir okkur skammt gegn loftslagsvánni á meðan áherslan er alltaf sett á að láta alþýðuna axla ábyrgð án þess að krefjast hins sama af þeim sem menga mest; stórfyrirtæki.

Það skiptir öllu máli hver stjórnar.

„Velsældarhugmyndafræði,“ kallar þú grundvöll stefnu VG og sæmir hana yfirskriftinni: „Félagshyggja þessarar aldar.“

„Hún snýst um að hlutverk stjórnvalda sé að tryggja velsæld allra þannig að hvert og eitt okkar geti leitað hamingjunnar og þroskað hæfileika sína.“

Þetta gæti allt eins verið bein tilvitnun í Rósu Lúxemburg, Emmu Goldman eða Karl Marx. Hugsjónin um „brauð og rósir“ er samofin sögu sósíalískrar verkalýðsbaráttu og Oscar Wilde áréttaðiþað að megintilgangur sósíalisma væri að greiða götuna fyrir raunverulegt persónufrelsi og listræna sjálfstjáningu. Stundum talar nefnilega þú eins og sósíalisti. En sósíalisti hefði þó aldrei fallið í þá gryfju eins og VG að láta selja sér hugmyndafræðilega gjaldþrota markaðslausnir í húsnæðismálum eða loftslagsmálum, leyfa aflandsfélagaeigendumað hefja endureinkavæðingu Íslandsbanka eða veita auknum fjármunum í NATO um leið og hernaðarbandalagið smellti fingrum.

Flokkurinn þinn hefur samt sem áður algjörlega rétt fyrir sér með eitt:

Það skiptir máli hver stjórnar.

Og þú stjórnar ekki.

Þú stjórnaðir aldrei.

Í flokknum þínum og á meðal kjósenda þinna eru margir sem aðhyllast raunverulega félagshyggju og hafa einlægan vilja til að starfa í þágu lýðræðis frekar en auðræðis. En á meðan forystan situr fast við sinn keip og leggur meiri áherslu á að miðla málum með hægriflokkunum en að berjast fyrir jöfnuði og réttlæti þá er Vinstri hreyfingin græna álíka gagnleg vinstrifólki og skutbíll á þremur felgum. Eignastéttin stjórnar í gegnum skósveina sína í stjórnarráðinu og mun halda áfram að gera það á meðan nógu margir halda áfram að spandera atkvæði sínu í framboð eins og Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.

Og VG.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Lífsgildin
1
Blogg

Lífsgildin

Til­finn­inga­mál fyr­ir lang­reyð­ar

Um­ræða um af­líf­un hvala í land­helgi Ís­lands fór fram í Viku­lok­un­um á Rás 1, laug­ar­dag­inn 13. maí 2023. Þar voru rædd­ar slá­andi nið­ur­stöð­ur í skýrslu Mat­væla­stofn­un­ar um með­ferð á lang­reyð­um, hvort rétt­læt­an­legt væri að veiða hvali með þeim hætti sem gert er. Vel­ferð þeirra er aug­ljós­lega fórn­að fyr­ir óljósa hags­muni en dauða­stríð­ið er oft veru­lega lang­vinnt og sárs­auka­fullt....

Nýtt efni

Hagsmunaöflin höfðu betur
Greining

Hags­muna­öfl­in höfðu bet­ur

Ekki verð­ur fram­hald á tákn­ræn­um og efna­hags­leg­um stuðn­ingi Ís­lands við Úkraínu með nið­ur­fell­ingu tolla. Hags­muna­öfl í land­bún­aði lögð­ust þungt á þing­menn í því skyni að koma í veg fyr­ir áfram­hald­andi tolla­leysi á kjúk­lingi, sem hin sömu öfl hafa með­al ann­ars flutt inn sjálf. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lagð­ist þver gegn áfram­hald­andi tolla­leysi og hluti Sjálf­stæð­is­flokks­þing­manna, í óþökk ut­an­rík­is­ráð­herra með­al annarra.
Íslensk stjórnvöld hafa ekkert eftirlit eða aðkomu að rannsóknarmistöð Kína
FréttirKína og Ísland

Ís­lensk stjórn­völd hafa ekk­ert eft­ir­lit eða að­komu að rann­sókn­ar­mi­stöð Kína

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla,-iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra, seg­ir að ís­lensk stjórn­völd hafi enga að­komu að rann­sókn­ar­mið­stöð kín­verskr­ar rík­i­s­tofn­un­ar á Kár­hóli í Þing­eyj­ar­sýslu. Húnsvar­aði spurn­ing­um Andrés­ar Inga Jóns­son­ar, þing­manns Pírata, á Al­þingi.
Misvísandi upplýsingar í matarkörfu Verðgáttarinnar
Fréttir

Mis­vís­andi upp­lýs­ing­ar í mat­ar­körfu Verð­gátt­ar­inn­ar

Þann 7. júní opn­uðu stjórn­völd nýja vef­síðu, Verð­gátt­ina, sem á að auð­velda neyt­end­um að fylgj­ast með verð­breyt­ing­um á nauð­synja­vör­um. Hag­fræð­ing­ur hjá BHM kall­ar vef­síð­una Verð­sam­ráðs­gátt­ina. Villa í gögn­um gaf ranga mynd af heild­ar­verði mat­ar­körfu.
Hafnarfjarðarbær vottar aðstandendum hins látna innilega samúð
Fréttir

Hafn­ar­fjarð­ar­bær vott­ar að­stand­end­um hins látna inni­lega sam­úð

„Eng­um ein­stak­lingi hef­ur ver­ið vís­að frá án boða um önn­ur úr­ræði og ráð­gjaf­ar sveit­ar­fé­lags­ins boðn­ir og bún­ir til að finna leið­ir og lausn­ir í öll­um mál­um,“ seg­ir í svari frá Hafn­ar­fjarð­ar­bæ við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­inn­ar vegna heim­il­is­lauss manns með lög­heim­ili í Hafnar­firði sem var end­ur­tek­ið vís­að frá neyð­ar­skýli í Reykja­vík að kröfu bæj­ar­fé­lags­ins, og svipti sig lífi í lok síð­asta mán­að­ar.
Fjárkúgunarmál á hendur Vítalíu fellt niður
Fréttir

Fjár­kúg­un­ar­mál á hend­ur Vítal­íu fellt nið­ur

Hér­aðssak­sókn­ari hef­ur fellt nið­ur rann­sókn sem hófst með kæru Ara Edwald, Hreggviðs Jóns­son­ar og Þórð­ar Más Jó­hann­es­son­ar á hend­ur Vítal­íu Lazarevu. Kærðu þre­menn­ing­arn­ir hana, ásamt Arn­ari Grant, fyr­ir til­raun til fjár­kúg­un­ar, hót­an­ir og fyr­ir brot á frið­helgi einka­lífs.
Greinir á um skammtastærðina
FréttirLífskjarakrísan

Grein­ir á um skammta­stærð­ina

Þing­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ir mik­il­vægt að all­ir legg­ist á ár­arn­ar við að ná nið­ur verð­bólg­unni. Þing­mað­ur Við­reisn­ar seg­ir aft­ur á móti að ekki sé hægt að biðja aðra um að standa sig bet­ur „þeg­ar rík­is­stjórn­in hef­ur ekki stað­ið vakt­ina.“
Sendiráði Íslands í Rússlandi lokað og Rússum gert að minnka sitt hér
Fréttir

Sendi­ráði Ís­lands í Rússlandi lok­að og Rúss­um gert að minnka sitt hér

Sendi­ráð Ís­lands í Moskvu lok­ar 1. ág­úst og Rúss­um hef­ur ver­ið gert að minnka um­svif í sendi­ráði sínu hér á móti. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra kall­aði Mik­haíl Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Ís­landi, á fund í dag til að til­kynna þetta.
Skýringar Íslenska gámafélagsins um endurvinnslu á fernum stangast á
FréttirFernurnar brenna

Skýr­ing­ar Ís­lenska gáma­fé­lags­ins um end­ur­vinnslu á fern­um stang­ast á

Þeg­ar leit­að er upp­lýs­inga um hvað verð­ur um fern­urn­ar sem Ís­lend­ing­ar þrífa, brjóta sam­an og flokka hjá sum­um fyr­ir­tækj­anna sem fá greitt fyr­ir að end­ur­vinna þær hafa feng­ist loð­in svör. Ís­lenska gáma­fé­lag­ið hef­ur til að mynda gef­ið þrjár mis­mun­andi skýr­ing­ar.
Væntingalaus eftir reynslu af fyrra verkfalli
FréttirKjarabaráttan

Vænt­inga­laus eft­ir reynslu af fyrra verk­falli

Þriggja barna móð­ir í Kópa­vogi hef­ur á stutt­um tíma lent í tveim­ur mis­mun­andi leik­skóla­verk­föll­um.
„Það er nýtt Ísland að vaxa þarna undir“
Úttekt

„Það er nýtt Ís­land að vaxa þarna und­ir“

Stjórn­andi hjá vísi­sjóði seg­ir að ef þeir sem stýra mál­um í fyr­ir­tækja­heim­in­um fari ekki að átta sig á því að eins­leit teymi séu ekki rétta leið­in, þá muni þeir senni­lega tapa. Þetta sé ein­fald­lega ekki góð­ur bis­ness.
Þvöl depurð nýhyggjunar
GagnrýniLónið

Þvöl dep­urð ný­hyggj­un­ar

„Heim­ur versn­andi fer en nýja kyn­slóð­in vek­ur von.“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir rýn­ir í leik­verk­ið Lón­ið í Tjarn­ar­bíói.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bend­ir þing­inu á að rann­saka að­drag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þór­unni Svein­bjarn­ar­dótt­ur, for­manni stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Al­þing­is, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á veg­um Al­þing­is væri til þess fall­in að skapa traust um nið­ur­stöð­ur rann­sókn­ar á að­drag­anda og eft­ir­mál­um snjóflóð­anna í Súða­vík 1995. Flóð­in hafi ver­ið reið­arslag fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag.
Loka auglýsingu