Þessi færsla er meira en ársgömul.

Málamiðlun og uppgjöf eru tvennt ólíkt

Málamiðlun og uppgjöf eru tvennt ólíkt

„Andstæðingar Sósíalistaflokksins eru auðvaldið og allir sem ganga erinda þess. Stéttabarátta er staðreynd.“ - úr ávarpi Sósíalistaflokks Íslands þann 1. maí 2021.

Ég veit hvaða viðbrögð svona orðalag vekur í vissum kreðsum á vinstri væng íslenskra stjórnmála; „Hvernig er hægt að stjórna landinu án þess að gera málamiðlanir?“

Í nóvember síðastliðnum fagnaði líka Kolbeinn Óttarsson Proppé sigri Bidens í Bandaríkjunum með hómilíu til málamiðlunar: „Bylgjan að baki Biden, því bylgja var það, sýnir svo glöggt að stundum eru málamiðlanir það sem kemur okkur áfram.“ Hann datt meira að segja í netta ljóðrænu: „Eins gott og hreinsandi og það er að æpa hátt og gefa ekkert eftir, þá er oft skynsamlegra að fara aðra leið ef ópin skila engu.“ Lokapunkturinn var á þann veg að „við þurfum að geta hlustað hvert á annað, annars komumst við ekkert áfram.“ Þessar athugasemdir Kolbeins beindust eflaust að þeim kjósendum VG sem hugnaðist ekki samstarf flokksins með Framsókn og Sjálfstæðisflokki en þær afbaka algjörlega merkingu raunverulegrar málamiðlunar og gildi hennar í stjórnmálum.

Flokkurinn sem skilgreinir auðvaldið og skósveina þess sem andstæðing sinn er í raun helsti boðberi málamiðlunar í þessum kosningum. Hvernig fæ ég það út? Ég skal útskýra.

Málamiðlun við þá sem ganga erinda eignastéttarinnar er ekki málamiðlun heldur uppgjöf. Segjum sem svo að maður sem er fimmfalt sterkari en þú krói þig af úti í húsasundi með hug á að hafa af þér fé. Þú dirfist að óska eftir því að hann taki ekki peninginn þinn og hann sættist á að taka bara helminginn. Myndirðu kalla það málamiðlun? Varst þú í einhverri samningsstöðu? Var það í valdi einhvers annars en ræningjans hversu miklum peningum yrði stolið af þér þann daginn? Nei, þú miðlaðir ekki málum. Þú gafst einfaldlega upp.

„Við höfum haldið því til haga að friðsamleg sambúð þjóða felur ekki í sér sambúð arðræningja og hinna arðrændu, kúgaranna og hinna kúguðu.“
- Ernesto Ché Guevara

Ætlar Sósíalistaflokkur Íslands að berjast gegn auðvaldinu? Já. Með kalasnikoff-rifflum eins og Ché og félagar? Nei. Ólíkt þeim sem aðhyllast nýfrjálshyggju hafa sósíalistar lært af sögunni. En hver á nálgunin þá að vera ef hvorki á að vinna með kapítalistum né skjóta þá? Því er auðsvarað: Samtstaðan er vopnið. Ekki samstaða með einhverjum flokkum á Alþingi heldur samstaða með hreyfingum almennings. Í samfélagi þar sem auður og völd eru órjúfanleg hefur launafólk engra annarra kosta völ en að standa saman og neita að láta kúga sig. Verkalýðshreyfingin hefur sýnt það undanfarin misseri að þegar allir leggjast á eitt er ekkert sem auðvaldið getur gert til að beygja okkur undir sinn vilja.

Síðustu þrjátíu ár hefur átt sér stað fordæmalaus tilfærsla á auði upp á við í þessu samfélagi, þannig að þegar sósíalistar segja að stéttabarátta sé staðreynd þá eru þeir ekki að lýsa yfir stríði. Þeir eru að benda á að stríð arðræningja gegn hinum arðrændu hefur staðið yfir áratugum saman. Allt jarm um að það sé ólýðræðislegt að útiloka samstarf með kapítalískum flokkum er viðsnúningur á sannleikanum. Sönn málamiðlun á sér stað á jafningjagrundvelli. Þess vegna er það í þágu málamiðlunar að leggjast á eitt til þess að losa krumlu eignastéttarinnar af stjórnkerfi okkar og atvinnulífi. Það er ekki fyrr en lýðræðishalli ójöfnuðarins hefur verið afgreiddur sem við munum geta komið saman og rætt raunverulegar lausnir í húsnæðismálum, loftslagsmálum, heilbrigðismálum eða nokkrum öðrum málaflokki.

Beint lýðræðisskipulag þar sem ekkert tillit þarf að taka til auðsöfnunarfíknar örfárra aðila er vettvangur raunverulegrar og árangursríkrar málamiðlunar – milli eins jafningja og annars, ekki milli undirokaðrar stéttar og þess hóps sem stendur ofan á henni. Ekki láta neinn segja þér að okkur beri að vatna út tryggð okkar við gildi samfélagslegs réttlætis til að komast að samningaborðinu. Við alþýðan erum samningaborðið, þar sem við bogrum yfir dagsverkum okkar, ógreiddum reikningum og lamandi framtíðaráhyggjum. Það eina sem við þurfum að gera til að kollvarpa öllum áformum yfirstéttarinnar er að rétta úr okkur og standa í lappirnar.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Lífsgildin
1
Blogg

Lífsgildin

Til­finn­inga­mál fyr­ir lang­reyð­ar

Um­ræða um af­líf­un hvala í land­helgi Ís­lands fór fram í Viku­lok­un­um á Rás 1, laug­ar­dag­inn 13. maí 2023. Þar voru rædd­ar slá­andi nið­ur­stöð­ur í skýrslu Mat­væla­stofn­un­ar um með­ferð á lang­reyð­um, hvort rétt­læt­an­legt væri að veiða hvali með þeim hætti sem gert er. Vel­ferð þeirra er aug­ljós­lega fórn­að fyr­ir óljósa hags­muni en dauða­stríð­ið er oft veru­lega lang­vinnt og sárs­auka­fullt....

Nýtt efni

Hagsmunaöflin höfðu betur
Greining

Hags­muna­öfl­in höfðu bet­ur

Ekki verð­ur fram­hald á tákn­ræn­um og efna­hags­leg­um stuðn­ingi Ís­lands við Úkraínu með nið­ur­fell­ingu tolla. Hags­muna­öfl í land­bún­aði lögð­ust þungt á þing­menn í því skyni að koma í veg fyr­ir áfram­hald­andi tolla­leysi á kjúk­lingi, sem hin sömu öfl hafa með­al ann­ars flutt inn sjálf. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lagð­ist þver gegn áfram­hald­andi tolla­leysi og hluti Sjálf­stæð­is­flokks­þing­manna, í óþökk ut­an­rík­is­ráð­herra með­al annarra.
Íslensk stjórnvöld hafa ekkert eftirlit eða aðkomu að rannsóknarmistöð Kína
FréttirKína og Ísland

Ís­lensk stjórn­völd hafa ekk­ert eft­ir­lit eða að­komu að rann­sókn­ar­mi­stöð Kína

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla,-iðn­að­ar- og ný­sköp­un­ar­ráð­herra, seg­ir að ís­lensk stjórn­völd hafi enga að­komu að rann­sókn­ar­mið­stöð kín­verskr­ar rík­i­s­tofn­un­ar á Kár­hóli í Þing­eyj­ar­sýslu. Húnsvar­aði spurn­ing­um Andrés­ar Inga Jóns­son­ar, þing­manns Pírata, á Al­þingi.
Misvísandi upplýsingar í matarkörfu Verðgáttarinnar
Fréttir

Mis­vís­andi upp­lýs­ing­ar í mat­ar­körfu Verð­gátt­ar­inn­ar

Þann 7. júní opn­uðu stjórn­völd nýja vef­síðu, Verð­gátt­ina, sem á að auð­velda neyt­end­um að fylgj­ast með verð­breyt­ing­um á nauð­synja­vör­um. Hag­fræð­ing­ur hjá BHM kall­ar vef­síð­una Verð­sam­ráðs­gátt­ina. Villa í gögn­um gaf ranga mynd af heild­ar­verði mat­ar­körfu.
Hafnarfjarðarbær vottar aðstandendum hins látna innilega samúð
Fréttir

Hafn­ar­fjarð­ar­bær vott­ar að­stand­end­um hins látna inni­lega sam­úð

„Eng­um ein­stak­lingi hef­ur ver­ið vís­að frá án boða um önn­ur úr­ræði og ráð­gjaf­ar sveit­ar­fé­lags­ins boðn­ir og bún­ir til að finna leið­ir og lausn­ir í öll­um mál­um,“ seg­ir í svari frá Hafn­ar­fjarð­ar­bæ við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­inn­ar vegna heim­il­is­lauss manns með lög­heim­ili í Hafnar­firði sem var end­ur­tek­ið vís­að frá neyð­ar­skýli í Reykja­vík að kröfu bæj­ar­fé­lags­ins, og svipti sig lífi í lok síð­asta mán­að­ar.
Fjárkúgunarmál á hendur Vítalíu fellt niður
Fréttir

Fjár­kúg­un­ar­mál á hend­ur Vítal­íu fellt nið­ur

Hér­aðssak­sókn­ari hef­ur fellt nið­ur rann­sókn sem hófst með kæru Ara Edwald, Hreggviðs Jóns­son­ar og Þórð­ar Más Jó­hann­es­son­ar á hend­ur Vítal­íu Lazarevu. Kærðu þre­menn­ing­arn­ir hana, ásamt Arn­ari Grant, fyr­ir til­raun til fjár­kúg­un­ar, hót­an­ir og fyr­ir brot á frið­helgi einka­lífs.
Greinir á um skammtastærðina
FréttirLífskjarakrísan

Grein­ir á um skammta­stærð­ina

Þing­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ir mik­il­vægt að all­ir legg­ist á ár­arn­ar við að ná nið­ur verð­bólg­unni. Þing­mað­ur Við­reisn­ar seg­ir aft­ur á móti að ekki sé hægt að biðja aðra um að standa sig bet­ur „þeg­ar rík­is­stjórn­in hef­ur ekki stað­ið vakt­ina.“
Sendiráði Íslands í Rússlandi lokað og Rússum gert að minnka sitt hér
Fréttir

Sendi­ráði Ís­lands í Rússlandi lok­að og Rúss­um gert að minnka sitt hér

Sendi­ráð Ís­lands í Moskvu lok­ar 1. ág­úst og Rúss­um hef­ur ver­ið gert að minnka um­svif í sendi­ráði sínu hér á móti. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra kall­aði Mik­haíl Noskov, sendi­herra Rúss­lands á Ís­landi, á fund í dag til að til­kynna þetta.
Skýringar Íslenska gámafélagsins um endurvinnslu á fernum stangast á
FréttirFernurnar brenna

Skýr­ing­ar Ís­lenska gáma­fé­lags­ins um end­ur­vinnslu á fern­um stang­ast á

Þeg­ar leit­að er upp­lýs­inga um hvað verð­ur um fern­urn­ar sem Ís­lend­ing­ar þrífa, brjóta sam­an og flokka hjá sum­um fyr­ir­tækj­anna sem fá greitt fyr­ir að end­ur­vinna þær hafa feng­ist loð­in svör. Ís­lenska gáma­fé­lag­ið hef­ur til að mynda gef­ið þrjár mis­mun­andi skýr­ing­ar.
Væntingalaus eftir reynslu af fyrra verkfalli
FréttirKjarabaráttan

Vænt­inga­laus eft­ir reynslu af fyrra verk­falli

Þriggja barna móð­ir í Kópa­vogi hef­ur á stutt­um tíma lent í tveim­ur mis­mun­andi leik­skóla­verk­föll­um.
„Það er nýtt Ísland að vaxa þarna undir“
Úttekt

„Það er nýtt Ís­land að vaxa þarna und­ir“

Stjórn­andi hjá vísi­sjóði seg­ir að ef þeir sem stýra mál­um í fyr­ir­tækja­heim­in­um fari ekki að átta sig á því að eins­leit teymi séu ekki rétta leið­in, þá muni þeir senni­lega tapa. Þetta sé ein­fald­lega ekki góð­ur bis­ness.
Þvöl depurð nýhyggjunar
GagnrýniLónið

Þvöl dep­urð ný­hyggj­un­ar

„Heim­ur versn­andi fer en nýja kyn­slóð­in vek­ur von.“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir rýn­ir í leik­verk­ið Lón­ið í Tjarn­ar­bíói.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bend­ir þing­inu á að rann­saka að­drag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þór­unni Svein­bjarn­ar­dótt­ur, for­manni stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar Al­þing­is, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á veg­um Al­þing­is væri til þess fall­in að skapa traust um nið­ur­stöð­ur rann­sókn­ar á að­drag­anda og eft­ir­mál­um snjóflóð­anna í Súða­vík 1995. Flóð­in hafi ver­ið reið­arslag fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag.
Loka auglýsingu