Framandi breytingar framundan sem munu bylta hinu daglega lífi

Gríðarlegar breytingar hafa orðið á hversdags­legu lífi fólks – sérstak­lega í hinum vestræna heimi – og þrátt fyrir að sumar þeirra séu tiltölu­lega nýtilkomnar er erfitt að ímynda sér veru­leikann án snjall­síma, samfélags­miðla og svo mætti lengi telja.

Tæknin spilar mikil­vægara og stærra hlutverk í lífi einstaklinga og fyrir­tækja en áður og fyrirséð er að sú þróun muni einungis halda áfram. Ný tækni á borð við 5G ryður sér til rúms og hafa sérfræðingar velt því fyrir sér hvort innviðir landsins geti borið þá miklu byltingu sem boðað hefur verið að fylgi þessari nýju tækni.

Kjarninn náði tali af Halldóri Sigurðs­syni, sérfræðingi í fjar­skiptamálum hjá alþjóð­lega ráðgjafa­fyrirtækinu McKinsey & Company, þegar hann var hér á landi fyrir skömmu. Umræðu­efnin voru meðal annars 5G, netöryggi, nýsköpun og mögu­leikar Íslendinga í breyttum heimi.

5G er fimmta kynslóð farneta en hún hefur verið kölluð net iðnaðarins. Með því geta nettengdir hlutir eða kerfi sent gögn sín á milli en til þess þarf að ráðast í viðamikla uppbyggingu á innviðum. Halldór segir að 5G sé stór hluti af þessari tækni­bylgju sem nú ríður yfir og að einhverju leyti muni sú tækni bera uppi þær nýjungar sem framundan eru, bæði fyrir heimili og fyrirtæki. „Þess vegna er mikilvægt fyrir Ísland að sú orka sem fylgir nýsköpun sé nýtt til að búa til verðmæti fyrir landið sem hægt sé að þróa áfram,“ segir hann.

Nær hjartanu að stuðla að breytingum hér heima

Halldór er fæddur og uppalinn á Íslandi en fór árið 1999 til Danmerkur í háskólanám í verkfræði. Eftir það ílendist hann og hefur síðan þá meira og minna búið þar í landi. Hann segist þó flakka mikið um heiminn en hann hefur starfað hjá McKinsey síðustu tólf til þrettán árin. Hann er með doktors­gráðu í blönduðu námi í hagfræði og verkfræði.

Hann er meðeigandi í fyrir­tækinu og vinnur hann aðallega í fyrirtækja­ráðgjöf fyrir stór fyrirtæki um heim allan sem og stofnanir. Aðallega vinnur hann fyrir síma­fyrirtæki eða í fjarskipta­geiranum. „Í fjarskipta­fyrirtækjum hjálpum við þeim meðal annars að taka ákvarðanir um 5G. Þá vakna spurningar eins og hvenær eigi að byggja 5G, hvað það kosti og hvaða tekju­möguleikar séu í boði.“ McKinsey er ekki með skrif­stofu á Íslandi en Halldór segir að fyrir­tækið taki að sér einstaka ráðgjöf fyrir íslensk fyrirtæki. Hann segir alltaf gott og gaman að koma heim og útskýrir hann það á þá leið að það sé nær hjartanu að reyna að stuðla að einhverjum breytingum hér á landi en annars staðar.

Hann bendir þó á að heimurinn sé að verða meira „glóbal“ og jafnframt séu íslensku fyrir­tækin að verða það líka og stærri. Hann telur að fámenni – eins og á Íslandi – geti skapað vandræði en að sama skapi hafi Íslendingar marga kosti sem reynist vel.

Heimilin borga framkvæmdir á endanum

Eins og áður segir vinnur Halldór aðallega fyrir síma­fyrirtæki og að eigin sögn býr hann nánast í flugvél og flakkar um heiminn. Hann segir að nú séu ákveðin tímamót á Íslandi og þess vegna þurfi að taka ákvörðun hvaða leið sé farin varðandi komandi tækni­nýjungar. „Sumt af því sem verið er að gera virkar ekki endilega eins og það skyn­samasta,“ segir hann og tekur einfalt dæmi því til útskýringar. „Byrjað er að grafa götur upp í annað skiptið til að setja ljós­leiðara ofan á ljós­leiðara. Það þarf ekki doktors­gráðuna hjá mér til að skilja að það sé ekki það hagkvæmasta fyrir þjóð­félagið,“ segir hann.

Hann segir að á endanum lendi það óumflýjanlega á heimilunum að borga slíkar framkvæmdir. Hingað til hafi það verið rétt ákvörðun að nota þrjú farnet en hann bendir á að síður en svo sé augljóst að hið rétta sé að byggja þrjú 5G-net í fram­tíðinni. „Ef öll þrjú fjarskipta­fyrirtækin geta boðið sína þjónustu á einu fylgineti þá er minni kostnaður sem þarf að deila á heildina.“ Halldór segir að í fyrsta lagi hafi 5G ennþá meiri fjár­festinga­þörf en fyrri kynslóðir, sem þýðir að það að halda úti þremur netum sé ekkert endilega hið rétta fyrir næstu bylgju.

5G Mynd: www.123rf.com
5G Mynd: www.123rf.com

„Varðandi fyrri kynslóðir fjarskipta­neta þá voru það fjarskipta­fyrirtækin sem fengu arðinn eða hagnaðinn af þeirri þjónustu sem boðið var upp á,“ segir hann. Í annarri og þriðju kynslóð neta borgaði einstaklingur fyrir að tala í símann. Nú sé öldin önnur þar sem einstaklingar noti símann til að kaupa smáforrit þar sem hagnaðurinn fari til Banda­ríkjanna eða Kísil­dalsins. Minna verði eftir af hagnaði fyrir íslensk síma­fyrirtæki.

Hlutverk fjarskiptafyrirtækja breytst

Halldór segir að gríðar­legir mögu­leikar séu til staðar vegna þeirrar þróunar sem á sér stað og tækifæri í heiminum fyrir Íslands sem og önnur lönd. En á sama tíma sé hlutverk fjarskipta­fyrirtækja að breytast og séu sum hver að verða dreifinga­fyrirtæki eins og orku­fyrirtækin. „Maður notar rafmagn til að gera alls konar hluti en það eina sem orku­fyrirtækið gerir er að tryggja að orka sé í leiðslunum. Að einhverju leyti erum við að fara svipaða leið með símamál. Síma­fyrirtæki tryggja að það sé tenging en svo er annað mál hvernig þú notar hana. Virðis­aukningin sem verður til fer minna til þeirra,“ segir hann.

Aðferðir sem síma­fyrirtæki nota eru mismun­andi, að sögn Halldórs. „Þegar við lítum í kringum okkur – annars staðar í heiminum – þá eru tvær til þrjár leiðir sem hægt er að fara. Ein þeirra er að fara í áttina að efnis­veitu og upplifun; þá verða síma­fyrirtæki ekki lengur eiginleg síma­fyrirtæki, heldur frekar afþreyingar­þjónusta,“ segir hann og bendir á að mörg fyrirtæki fari í þá átt, til dæmis hefur AT&T í Banda­ríkjunum keypt og sameinast Time Warner.

Fjarskiptafyrirtæki sem gagnaveitur

Hinar öfgarnar lýsa sér í því að fyrirtæki verða einungis innviðanet. Halldór útskýrir þessa starfsemi á þann hátt að þá séu fyrir­tækin einungis starfrækt út frá nytsemi á sama máta og orku­fyrirtæki útvega og dreifa orku. Hann segir að slíkar breytingar megi sjá víðsvegar um heim.

Sem dæmi um þetta tekur Halldór TDC í Danmörku sem er stærsta síma­fyrirtæki þar í landi. „Nýir eigendur vilja skipta fyrir­tækinu í tvennt og búa til tvær skilvirkari einingar; aðra sem efnis­veitu – upplifun og afþreyingar­þjónustu – og hina eininguna sem á að vera gagna­veita og fjárfesta enn frekar í innviðum, ljós­leiðurum á heimili, 5G o.s.frv..“ Hann segir að þessar tvær einingar séu meira virði sitt í hvoru lagi en saman. Þá sé einblínt á að hafa lagnir í jörðu en mjög mikil umfram­eftirspurn sé eftir stöðugum fjár­festingar­kostum.

Halldór segir að auðveldara sé að veðja á innviði því alltaf sé þörf á þeim. Aftur á móti sé sömuleiðis eftir­spurn eftir innlendri fram­leiðslu en auðvitað sé erfitt fyrir hana að keppa við stórar efnis­veitur á borð við Netflix og fleiri slíkar veitur. Finna þurfi nýja leiðir til að slík efnis­framleiðsla standi undir sér.

5G mun tæknivæða hið daglega líf

Þegar talið berst að 5G og með hvaða hætti sú tækni muni breyta daglegu lífi fólks segir Halldór 5G vera hluta af stærri stafrænum breytingum og muni spila hlutverk í því að tæknivæða lífið. „Ef maður setur 5G-tæknina inn í þær tækni­breytingar sem eru að verða þá eru stórar breytingar að verða bæði á heimilum og í fyrirtækja­rekstri. Það er hægt að koma með gríðar­lega virðis­aukningu hjá fyrir­tækjum, heimilum og einstaklingum með því að nota þann möguleika að vera alltaf í sambandi,“ segir hann.

Halldór bendir á að snjall­símar séu ákveðin gátt inn í þessa tækni og að hún eigi bara eftir að aukast. „Ég tel að það sé engin spurning að breyting eigi eftir að verða á hinu daglega lífi og mun sumt af því vera sjáanlegt og annað ekki.“ Sem dæmi nefnir hann að öll stýring á orku eigi líklega eftir að verða auðveldari, að þá verði hægt að hita hús í gegnum fjar­stýringu eftir hentug­leika.

Lífið fyrir og eftir farsímatæknina

Mannleg samskipti voru töluvert öðruvísi áður en farsíma­tæknin tók stökk fyrir um tíu til fimmtán árum. „Það virkar sem steinöld þegar ég tala við mín börn og reyni að útskýra lífið fyrir farsíma­tækni. Hvernig mælti fólk til dæmis sér mót? Það var hægt en augljós­lega er það auðveldara núna. Það er alltaf verið að taka skref í þá átt að greiða götu okkar sem einstaklingar til að gera þá hluti sem við viljum,“ segir hann en bætir því við að aftur á móti sé hægt að hafa skoðun á því hvort það sé æskilegt eða ekki. „En það er fyrir mér augljóst að þetta á eftir að auka hagkvæmni.“

Halldór telur gott fyrir Íslendinga og fyrir þau fyrirtæki sem starfa hér á landi að hugsa um sérstöðu Íslands. „Við erum orkuríkt samfélag þannig að í orku­framleiðslu og dreifingu og öðru verður mun meiri notkun á 5G-búnaði. Þó svo að við séum ekkert að stressa okkur á orku­notkun – vegna þess að við höfum það mikið af orku – þá eru samt gríðar­legir mögu­leikar að nýta hana betur.“

Sem dæmi nefnir ferða­mennsku en með aukinni tækni verði hægt að vita hvar ferðamenn eru staddir á landinu ef þeir hafa komið sér í einhvers konar vandræði og segir Halldór að jafnvel sé hægt að selja þeim tryggingar út frá því hvert þeir ferðast. Þannig sé hægt að sjá fyrir sér ýmiss konar viðskipta­módel.

Hugsanlega verða snjallsímar forneskjulegir

Þrátt fyrir að tækni­nýjungar verði hversdagslegar í augum fólks þá telur Halldór að einnig sé hægt að hugsa sér að komandi breytingar verði mun meira framandi. Hann segir að líklega muni fólk hafa minni samskipti í gegnum snjall­síma eftir fimm ár og að sú tækni sem þykir sjálfsögð í dag verði það ekki endilega í fram­tíðinni.

„Ef ég ætti að koma með langtímaspá varðandi þessi mál þá verður það líklega þannig að eftir 10 ár þá þykir það mjög forneskjulegt að hafa einhvern svona lítinn glugga sem maður ýtir á til að upplifa heiminn í gegnum,“ segir hann. Halldór bendir á að þegar fólk horfir á framtíðar­kvikmyndir þá virki þær fram­andlegar en raun­veruleikinn sé alltaf náttúru­legur.

Halldór veltir fyrir sér netöryggi. Hvernig tryggir þú persónuupplýsingar? Hvernig tryggir þú aðgengi að upplýsingum og hvernig tryggir þú öryggi einstaklinga og stjórnvalda þegar allt er stýrt með tölvum?
Halldór veltir fyrir sér net­ör­yggi. Hvernig tryggir þú per­sónu­upp­lýs­ingar? Hvernig tryggir þú aðgengi að upp­lýs­ingum og hvernig tryggir þú öryggi ein­stak­linga og stjórn­valda þegar allt er stýrt með tölvum?

Hvernig er hægt að tryggja netöryggi?

Halldóri þykir vert að viðra ákveðnar áhyggjur sem hann hefur varðandi alla þessa tækni­væðingu. Hann segir að spurningar vakni á borð við: Hvernig tryggir þú persónu­upplýsingar? Hvernig tryggir þú aðgengi að upplýsingum og hvernig tryggir þú öryggi einstaklinga og stjórn­valda þegar allt er stýrt með tölvum? Þarna á hann við allt frá aðgangs­stýringu á húsum – þar sem hægt væri að brjótast inn rafrænt – til fjar­stýringar á flugvélum – þar sem hægt væri að láta hana brotlenda í gegnum tölvu.

Þess vegna er netöryggi mjög mikilvægt, að hans mati. Honum finnst skipta máli hvernig farið er með þær upplýsingar sem safnað er. Halldór veltir því líka fyrir sér hvernig ný tækni gæti verið nýtt gegn almennum borgurum. Þar horfir hann til að mynda til Kína en þar í landi verður hægt innan tveggja ára að bera kennsl á andlit á öllum opinberum stöðum. „Þannig getur hið opinbera auðveldlega leitað að þér og vitað hvað einstaklingar aðhafast. Hægt verður að finna þig eftir aðeins tvær mínútur vegna þess að á götu­ljósum eru mynda­vélar sem þekkja andlit þitt og skrá það niður,“ segir hann og minnir á að þessi fram­tíðarsýn minni mikið á veruleika úr skáldskap eins og 1984 eftir George Orwell eða Brave New World eftir Aldous Huxley.

„Ég hræðist það að einhverju leyti hvernig hægt er að nota tækni. Og það að sumir einstaklingar og sérstak­lega yngri kynslóðir stressa sig lítið á þessu vegna þess að þær eru vanar þeirri hugsun að allt er hvort sem er á samfélags­miðlum. Þess vegna er sumum alveg sama. Þeir upplifa ekki að kerfið sé vont eða að kerfið gæti misnotað valdið,“ segir hann.

Halldór telur það að vera með efasemdir gagnvart yfir­völdum gangi að einhverju leyti í arf vegna þess sem á undan er gengið. Hann nefnir að í Austur-Þýska­landi og slíkum stöðum þá sé fólk vant því að vera varkárt með persónu­upplýsingar. Ennþá sé ríkt í minni fólks eða samfélagsins að passa þurfi upp á þetta. „Að sama skapi má segja um þá sem aldrei hafa upplifað slíka tíma að þeir verði of ómeðvitaðir um hættuna. Það þýðir ekki að hún sé ekki til staðar, bara að við gerum okkur ekki grein fyrir því,“ segir hann.

Nú er tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í hinum stóra heimi

Halldór segir að miklir mögu­leikar felist í nýsköpun fyrir Íslendinga í allri þessari tækni vegna þess að stærðar­hagkvæmni sé aðgengileg fleirum í heiminum. Hann bendir á að á síðustu 100 árum hafi alþjóð­legu stór­fyrirtækin í raun sópað inn arði í skjóli stærðar sinnar sem þau hefðu aldrei annars getað gert.

„Stærðar­hagkvæmni er enn til staðar, hún er bara að breytast. Fyrr kom stærðar­hagkvæmni frá því að hafa skrif­stofur og fólk í mismun­andi löndum. Núna er heimurinn að verða stafrænn og mögu­leikarnir eru fleiri fyrir minni aðila – þar á meðal Ísland – til þess að öðlast stærðar­hagkvæmni gegnum Internetið; þ.e. að fá aðgang að öllum heiminum og mörkuðum í gegnum það,“ segir hann.

Eigin­leikar Íslendinga eiga mjög vel við þennan nýja veruleika, að mati Halldórs. Hann segir þá að vissu leyti vera tækifæris­sinna sem finni upp á einhverjum skrítnum leiðum sem engum hefur áður dottið í hug. „Ég sé gríðar­lega möguleika og mikil tækifæri fyrir Ísland til að nýta sér þennan stafræna heim sem framundan er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár