Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla í úrvinnslusóttkví

Vegna fjölg­unar smita í Laug­ar­nes­skóla hefur verið gerð krafa um að allir nem­endur í Laug­ar­nes­skóla og Lauga­lækj­ar­skóla fari í úrvinnslu­sótt­kví og haldi sig heima á mið­viku­dag.

Laugarnesskóli verður lokaður á morgun rétt eins og Laugalækjarskóli, en að minnsta kosti fimm smit hafa verið staðfest hjá kennara og nemendum í Laugarnesskóla.
Laug­ar­nes­skóli verður lok­aður á morgun rétt eins og Lauga­lækj­ar­skóli, en að minnsta kosti fimm smit hafa verið stað­fest hjá kenn­ara og nem­endum í Laug­ar­nes­skóla. Mynd: Laugarnesskoli.is

For­eldrar og for­ráða­menn barna sem ganga í Laug­ar­nes­skóla og Lauga­lækj­ar­skóla í Laug­ar­nes­hverfi í Reykja­vík fengu í kvöld skila­boð um að vegna fjölg­unar stað­festra COVID-19 smita í Laug­ar­nes­skóla hefði komið fram krafa frá almanna­vörnum um að allir nem­endur í báðum skól­unum færu í úrvinnslu­sótt­kví.

Börnin eiga því að vera heima á morgun. Þetta er sagt gert í örygg­is­skyni- og var­úð­ar­skyni á meðan unnið er að frek­ari smitrakn­ingu.[links]

Einn kenn­ari í Laug­ar­nes­skóla greind­ist með COVID-19 um helg­ina og eftir að um 80 nem­endur fóru í sótt­kví og skimun hafa smit greinst í þeirra hópi.

Fram kom á Vísi fyrr í kvöld að þrjú smit hefðu verið stað­fest hjá nem­endum í Laug­ar­nes­skóla í dag.

Frí­stunda­starf í Laug­ar­seli, Dal­heimum og félags­mið­stöð­inni Laugó sem og starf skóla­hljóm­sveitar mun liggja niðri, rétt eins og skóla­starfið, á meðan úrvinnslu­sótt­kví stendur, sam­kvæmt orð­send­ingu til for­ráða­manna frá Birni Gunn­laugs­syni, aðstoð­ar­skóla­stjóra Laug­ar­nes­skóla.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár