80 nemendur Laugarnesskóla í sóttkví eftir að COVID-19 smit greindist

Nemendur og starfs­menn skól­ans sem eru útsettir fyrir smiti verða sendir í sýna­töku á morgun, þriðju­dag.

Alls 80 nem­endur og fjórir kenn­arar Laug­ar­nes­skóla eru í sótt­kví vegna mögu­legrar útsetn­ingar fyrir smiti í skól­anum í síð­ustu viku.

Gert er ráð fyrir því að sótt­kvíin standi í dag og á morgun og að allir sem um ræðir verði boð­aðir í sýna­töku á morgun, þriðju­dag.

Þetta kemur fram í orð­send­ingu til allra for­eldra og for­ráða­manna barna við skól­ann í morgun. Þar segir enn fremur að vonir standi til að skóla­hald verði aftur komið í eðli­legt horf á mið­viku­dag­inn.

Smit í súrálsskipi við Reyðarfjörð

Í gær­kvöldi var greint frá því að tíu af nítján skip­verjum á súráls­skipi sem kom til Reyð­ar­fjarðar og lagði að Mjó­eyr­ar­höfn væru með COVID-19.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu­stjór­anum á Aust­ur­land­i.

[adspot]Þar segir að skip­stjóri hafi fyrir komu skips­ins gert grein fyrir að sjö manns í áhöfn væru veik­ir. „Að feng­inni ein­kenna­lýs­ingu og öðrum far­ald­urs­fræði­legum þáttum var ákveðið að taka sýni úr allri áhöfn­inni, sem náð­ist undir kvöld í gær. Af nítján skip­verjum reynd­ust tíu vera með COVID-19. Aðgerða­stjórn og umdæm­is­læknir sótt­varna í sam­vinnu við umboðs­mann útgerð­ar­innar og skip­stjór­ann hafa gefið leið­bein­ingar um sótt­varna­ráð­staf­anir um borð.“

Lækn­is­fræði­legt eft­ir­lit með skip­verj­unum verður unnið sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi vinnu­reglum þar um af COVID-­deild Land­spít­ala og HSA. Sýna­taka og allt annað tengt þessu hefur sam­kvæmt til­kynn­ing­unni gengið vel og aðgerða­stjórn telur ekki hættu á að smitið dreifi sér.

Hinir smit­uðu eru allir í ein­angrun um borð og aðrir í sótt­kví. Hefur svo verið frá komu skips­ins til hafn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár