Franska skopmyndablaðið Charlie Hebdo kemur út í næstu viku þrátt fyrir hryðjuverkaárásina sem framin var þar í gær. Blaðið verður gefið út í milljón eintökum í stað 60 þúsund eins og venja er. Lögmaður blaðsins staðfesti þetta í dag.
Umfangsmikil leit stendur enn yfir að bræðrunum Cherif og Said Kouachi, sem eru grunaðir um árásina. Óstaðfestar fregnir herma að búið sé að finna bíl sem þeir hafa notað síðan í gær.
Bræðurnir tveir eru sagðir hafa rænt bensínstöð í nágrenni Villers-Cotterets í Aisne-héraði fyrr í dag, áður en keyrðu burt í átt til Parísar. Villers-Cotterets er um 70 kílómetrum frá höfuðborginni.
Þeir stálu mat og bensíni og hleyptu af skotum úr Kalashnikov rifflum að sögn starfsfólks á bensínstöðinni. Þá voru þeir með grímur og búnir að hylja númerin á bílnum, gráum Renault Clio sem þeir eru taldir hafa rænt í París skömmu eftir árásina.
Borgarstjóri Parísar, Anne Hidalgo, hefur tilkynnt að slökkt verði á öllum ljósum Eiffel-turnsins klukkan átta í kvöld. Þá hefur verið boðað til annars samstöðufundar á Lýðveldistorginu, Place de la Republique, klukkan sex í kvöld, en fjöldi fólks kom þar saman í gær.
Tæplega fjögur hundruð manns hafa boðað komu sína á samstöðufund við franska sendiráðið á Íslandi klukkan sex í dag.
[caption id="attachment_16287" align="alignnone" width="599"] Franska lögreglan segir að bræðurnir Said Kouachi og Cherif Kouachi hafi framið ódæðisverkin í og við höfuðstöðvar skopmyndablaðsins Charlie Hebdo í gærmorgun.Tólf létust, þar á meðal ritstjóri blaðsins og þekktustu skopmyndateiknarar þess.[/caption]
Óttast fleiri árásir
Að sögn forsætisráðherra Frakklands, Manuel Valls, er hætta á fleiri hryðjuverkaárásum megináhyggjuefni stjórnvalda. Fylgst er með öllum meginvegum sem liggja að höfuðborginni auk þess sem öryggisgæsla hefur verið hert til muna víða, meðal annars í almenningsrýmum og við skrifstofur fjölmiðla.
Fréttaritari BBC í París segir að lögreglan óttist nú að mennirnir muni snúa aftur til Parísar og ætli að deyja í annarri árás. Jafnframt segir BBC að ekki sé útilokað að þeir eigi sér samverkamenn, en hafi aðeins verið tveir að verki í árásinni í gær. Þá er einnig talinn möguleiki á hermiárásum.
Lögreglukona var skotin til bana og karl liggur þungt haldinn eftir skotárás í suðurhluta Parísar í morgun, en ekki er vitað hvort tengsl voru á milli árásanna tveggja.
[quote font="0" align="right"]Ritstjóri Charlie Hebdo, Stephane Charbonnier, var meðal þeirra sem voru myrtir. Hann hafði fengið morðhótanir og verið undir lögregluvernd undanfarið. Annar þeirra tveggja lögreglumanna sem voru myrtir í árásinni var lífvörður hans.[/quote]
Ritstjóri Charlie Hebdo, Stephane Charbonnier, var meðal þeirra sem voru myrtir. Hann hafði fengið morðhótanir og verið undir lögregluvernd undanfarið. Annar þeirra tveggja lögreglumanna sem voru myrtir í árásinni var lífvörður hans.
Í kjölfar árásarinnar í gær hafa hefndarárásir gegn múslimum átt sér stað, án þess þó að fólk hafi særst. Tveimur skotum var hleypt af í bænaherbergi í bænum Port-la-Nouvelle á miðvikudagskvöld. Skotið var á fjölskyldu í bíl sínum í Caromb og gervihandsprengjum var kastað að mosku í Le Mans. Þá voru skemmdarverk unnin á mosku í Poitiers.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir