Sjö manna stjórn yfir Landspítala verði skipuð til tveggja ára í senn

Skip­un­ar­tími stjórn­ar­manna í nýrri stjórn Land­spít­ala verður ein­ungis tvö ár, sam­kvæmt nýjum frum­varps­drögum. Talið er mik­il­vægt að hægt verði að skipa ört í stjórn­ina fólk sem hefur sér­þekk­ingu á þeim verk­efnum sem Land­spít­ali tekst á við hverju sinni.

Það að skipa stjórn yfir Landspítala var á meðal mála sem stjórnarflokkarnir náðu saman um í nýjum stjórnarsáttmála.
Það að skipa stjórn yfir Land­spít­ala var á meðal mála sem stjórn­ar­flokk­arnir náðu saman um í nýjum stjórn­ar­sátt­mála. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heil­brigð­is­ráð­herra mun skipa sjö manna stjórn yfir Land­spít­ala, til tveggja ára í senn, sam­kvæmt frum­varps­drögum sem lögð hafa verið fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Skipun stjórnar yfir Land­spít­ala var á meðal þeirra mála sem ákveðið var að ganga í, í nýjum stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur.

Samkvæmt frum­varps­drög­unum, sem samin voru í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, skulu tveir stjórn­ar­menn hafa sér­þekk­ingu á rekstri og áætl­ana­gerð og tveir sér­þekk­ingu á heil­brigð­is­þjón­ustu og vís­inda­rann­sóknum á heil­brigð­is­sviði eða menntun heil­brigð­is­stétta. Til við­bótar skal skipa tvo stjórn­ar­menn „sem full­trúa starfs­manna með mál­frelsi og til­lögu­rétt, án atkvæð­is­réttar“

Hægt verði að kalla nýtt fólk inn með nýjum verkefnum

Í grein­ar­gerð með drög­unum er þess getið að tvö ár séu „nokkuð stuttur“ skip­un­ar­tími í stjórn sem þess, en einnig að áherslur varð­andi stjórn spít­al­ans geti breyst nökkuð hratt talið og því sé „talið mik­il­vægt að hægt verði að skipa í stjórn­ina nokkuð ört nýja ein­stak­linga með fag­þekk­ingu á því áherslu­sviði sem helst stendur til að vinna að hverju sinni“.

Tekið er dæmi af því að nú standi yfir inn­leið­ing á nýju fjár­mögn­un­ar­kerfi fyrir spít­al­ann, fram­leiðslu­tengdri fjár­mögnun, og því megi ætla að fag­þekk­ing á slíkri fjár­mögnun sé mik­il­væg á næstu árum, en þegar þeirri inn­leið­ingu verði að mestu lokið, á næstu 1-2 árum, verði fremur þörf á sér­þekk­ingu á öðrum sviðum.

[adspot]

Hlutverk stjórn­ar­innar á að vera það að marka Land­spít­ala „lang­tíma­stefnu í sam­ræmi við stefnu­mörkun ráð­herra í heil­brigð­is­málum“ og stað­festa skipu­lag stofn­un­ar­innar, árlega starfs­á­ætlun og fjár­hags­á­ætlun. Stjórnin skal einnig bera ábyrgð á fram­kvæmd innra eft­ir­lits og taka ákvörðun um veiga­mikil atriði sem varða rekstur spít­al­ans og starf­semi hans.

Samkvæmt frum­varps­drög­unum skal for­maður stjórnar reglu­lega gera ráð­herra grein fyrir starf­semi, stöðu og árangri Land­spít­ala og sömu­leiðis gera ráð­herra grein fyrir veiga­miklum frá­vikum í rekstri, rekstr­ar­legum eða fag­legum.

„Á vissan hátt“ verið að stíga til baka

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum er rakið að með þeim breyt­ingum sem lagðar eru til sé nú „á vissan hátt“ verið að stíga til baka í það fyr­ir­komu­lag sem var við lýði áður en Alþingi ákvað að leggja niður stjórn Land­spít­ala með breyt­ingum á lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu árið 2007.

Í grein­ar­gerð­inni segir að talið sé að sú ákvörðun Alþingis „eigi að ein­hverju leyti rætur að rekja til umfangs­mik­illa breyt­inga sem gerðar voru á rík­is­rekstri á ára­tug­unum á undan.“

„Víðtækar stjórn­un­ar­heim­ildir voru færðar til stofn­ana og talið er að með auk­inni dreif­stýr­ingu hafi komið fram ýmsir van­kantar í stjórn­sýslu­kerf­inu. Upp höfðu komið vanda­mál tengd stjórnun stofn­ana þar sem erfitt virt­ist vera vegna óskýrrar ábyrgðar að greina orsök vand­ans og grípa til við­eig­andi aðgerða. Var talið aug­ljóst að til­færsla stjórn­un­ar­heim­ilda til stofn­ana gæti ekki skilað til­ætl­uðum árangri nema ljóst væri hver bæri ábyrgð á því að þeim væri beitt á árang­urs­ríkan hátt og í sam­ræmi við heim­ildir. Var til­gangur breyt­ing­anna því sú að und­ir­strika að staða for­stöðu­manna heil­brigð­is­stofn­ana, þ.m.t. Land­spít­ala, væru sú sama og almennt gilti um for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana, þ.e. að þeir bæru ótví­rætt óskipta ábyrgð gagn­vart ráð­herra, bæði á rekstri og þjón­ustu sinnar stofn­unar, en fag­legir yfir­stjórn­endur bæru ábyrgð á fag­legri þjón­ustu gagn­vart for­stjóra,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir einnig að gera megi ráð fyrir að breyt­ingar verði á hlut­verki og ábyrgð for­stjóra Land­spít­ala með til­komu nýrrar stjórnar, þó að enn muni það gilda að for­stjóri Land­spít­al­ans beri ábyrgð á að stofn­unin starfi í sam­ræmi við lög, stjórn­valds­fyr­ir­mæli og erind­is­bréf.

Í frum­varps­drög­unum segir að gera megi ráð fyrir því að kostn­aður vegna stjórnar spít­al­ans verði um 20 milj­ónir króna árlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár