Suðurríkjafáninn blaktir ekki lengur í Suður-Karólínu

Fáni suð­ur­ríkja Banda­ríkj­anna mun ekki blakta við hún á opin­berum bygg­ingum í Suður-Karólínu lengur eftir að rík­is­þingið kaus um fánan í gær. Þrettán klukku­stunda langri umræðu lauk með atkvæða­greiðslu þar sem 93 kusu fánan burt en 27 vildu halda honum við hún.

Um mán­uður er síðan níu svartir kirkju­gestir voru skotnir til bana í Charleston í Suður-Karólínu. Morðin vöktu eðli­lega hörð við­brögð og hafa beint athygl­inni enn frekar að kyn­þátta­for­dómum sem eru enn ríkj­andi vest­an­hafs, ekki síst í syrði ríkjum Banda­ríkj­anna. Þar hefur fáni Suð­ur­ríkj­anna enn sess á við þjóð­fána ríkj­anna.

Suð­ur­ríkin var sér­stakt sam­bands­ríki syðstu ríkj­anna í Banda­ríkj­unum á árunum 1861 til 1865 eða þar til borg­ara­stríð­inu í Norður-Ameríku lauk með sigri Banda­ríkj­anna í norðri. Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar er áhuga­verð í sögu­legu ljósi því Suður-Karólína var fyrsta ríkið til að segja sig úr sam­bandi við Banda­ríkin árið 1860, vegna fyr­ir­hug­aðra laga­breyt­inga um þræla­hald sem höfðu mikil áhrif á land­búnað syðstu ríkj­anna sem reiddu sig á þræla­hald.

Dæmi eru um að fán­inn fái jafn mikla vernd í lögum og þjóð­fáni Banda­ríkj­anna fyrir van­virð­ingu. Í Flórída, Georgíu, Louisiana, Miss­issippi og Suður-Karólínu við­ur­kenna fánan á sama hátt og þjóð­fána sinn.

Landamæri ríkjanna sem mynduðu Suðurríkin í dag


Rök and­stæð­ing­anna 27 sem kusu gegn því að fán­inn yrði tek­inn niður segja ras­ista hafa gert tákn hans að sínum og þannig rænt fán­anum. Fáninn væri í raun jafn­gildi ætt­ar­grips sem hefur gengið í erfðir.

Mike Pitts, repúblikani, sagð­ist minn­ast fána Suð­ur­ríkj­anna sem tákni þeirra fátæku bænda sem börð­ust gegn norður-ríkja­mönn­num, ekki af því að þeir höt­uðu svert­ingja og studdu þræla­hald, heldur vegna þess að verið var að gera árás á landið þeirra.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Suð­ur­ríkja­fán­inn hefur mikið til­finn­ga­legt gildi og táknar mis­mun­andi hluti fyrir fólk í Banda­ríkj­unum. (Mynd: EPA)[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár