Formannsframbjóðandi UKIP alvarlega slasaður eftir slagsmál á þingflokksfundi

Steven Woolfe, Evr­ópu­þing­maður fyrir Breska sjálf­stæð­is­flokk­inn UKIP og fram­bjóð­andi til for­manns flokks­ins, er nú alvar­lega slas­aður á spít­ala. Hann hné niður í Evópu­þing­inu í Strasbourg í morgun eftir að hafa lent í slags­málum við annan Evr­ópu­þing­mann flokks­ins.

Nigel Farage, sem tíma­bundið er for­maður flokks­ins, segir að Woolfe hafi lent í átökum á þing­flokks­fundi Evr­ópu­þing­manna UKIP í morgun. Í kjöl­farið hafi hann svo misst með­vit­und og ástand hans sé alvar­legt. Daily Mail segir að þing­mað­ur­inn sem kýldi Woolfe sé Mike Hookem.

Woolfe til­kynnti í gær að hann hygð­ist gefa kost á sér sem for­maður flokks­ins, eftir að Diane James hætti sem for­maður eftir innan við mánuð í starfi.

Annar Evr­ópu­þing­maður flokks­ins, Roger Helmer, sagði við breska rík­is­út­varpið BBC að atvikið hefði átt sér stað eftir „líf­legar umræður“ á fund­inum í morgun.

Sky News segir að grunur leiki á að blætt hafi inn á heila Woolfe og að hann sé í lífs­hættu. Samkvæmt heim­ildum Sky yfir­gáfu Woolfe og annar þing­maður fund­inn, þar hafi hinn þing­mað­ur­inn kýlt Woolfe í and­litið og hann hafi rekið höf­uðið í járn­hand­rið. Þeir hafi svo farið aftur inn á fund­inn, en það hafi ekki verið fyrr en nokkru síðar að Woolfe féll í gólfið frammi á gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár