Ásmundur hoppar á vagn Donald Trump

Oddný Harðardóttir segir Ásmund hafa hoppað á vagn sem Donald Trump keyrir.
Oddný Harð­ar­dóttir segir Ásmund hafa hoppað á vagn sem Donald Trump keyrir. Mynd: EPA og Birgir Þór

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, elur á ótta fólks við inn­flytj­endur „og hoppar á vagn popúlistar bæði í Evrópu og for­seta­fram­bjóð­and­inn Donald Trump í Banda­ríkj­unum keyra.“ Þetta sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á þingi í dag. Hún spurði Eygló Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra um ummælin sem Ásmundur lét falla á þingi í gær. Þá sagð­ist hann meðal ann­ars vilja skoða að snúa flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum við „til síns heima“ á flug­vell­inum í Keflavík, og að end­ur­skoða ætti opin landa­mæri lands­ins.

Eygló svar­aði því til að hún væri mik­ill stuðn­ings­maður EES og væri ekki þeirrar skoð­unar að Ísland ætti að ganga úr Schengen eða fara að taka upp vega­bréfa­eft­ir­lit. „Ég tel að það sé mjög mik­il­vægt að við gerum okkar sem full­valda þjóð, öxlum okkar ábyrgð. Tökum á móti flótta­mönnum í sam­ræmi við okkar alþjóð­legu skyldur og gerum það eins vel og við mögu­lega getum.“

Hún sagði að Ísland ætti að taka á móti kvótaflótta­mönnum, það hefði alltaf verið hennar stefna, og að um leið og allur flótta­manna­hóp­ur­inn frá Sýrlandi sem átti að koma í byrjun árs væri kom­inn til lands­ins yrði óskað eftir frek­ari gögnum frá Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um mót­töku næsta hóps.

Harðlega gagnrýndur Ásmundur

Ásmundur hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir ummæli sín, ekki síst úr eigin flokki. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, hefur m.a. sagt að ummælin gangi þvert gegn stefnu flokks­ins í þessum málum.

„Það er mik­il­vægt að við skoðum það hvort það sé nauð­syn­legt á þess­ari stundu að flótta­mönnum, eða hæl­is­leit­endum, sé snúið við í Keflavík og þeir sendir aftur til síns heima,“ sagði Ásmundur í gær. „Flótta­manna­straum­ur­inn er stór­kost­legt vanda­mál eins og við höfum heyrt á und­an­förnum mán­uðum. Svíar og Danir hafa lokað landa­mærum sínum til að tak­marka komu flótta­manna og til að geta fylgst með því hverjir koma til lands­ins. Aust­ur­rík­is­menn og Balk­an­löndin hafa fundað sér­stak­lega vegna vanda Schengen-svæð­is­ins en Grikk­land er galopið og þar streymir flótta­fólk inn sem aldrei fyrr og á þá greiða leið inn í Schengen-löndin.“

Hann spurði því næst hvort Íslend­ingar ættu að fara að ráðum Svía og Dana og tak­marka aðgengi fólks til lands­ins eins og var fyrir til­komu Schengen.

„Ég auð­vitað þekki það af eigin raun hvað það er erfitt að taka þátt í þess­ari umræðu. Maður er rif­inn í sig af góða fólk­inu og fjöl­miðlum ef maður þorir að opna munn­inn og hafa skoðun. Fólkið í land­inu þorir ekki að opin­bera skoðun á þessum málum,“ sagði Ásmundur. Hann sagð­ist því telja að í þing­sal þyrfti að ræða hvort ekki þurfi að gera breyt­ingar á opnum landa­mærum lands­ins. „Ég held að það sé mál að linni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár