Samið um fjögurra mánaða samkomulag fyrir Grikki

Evru­ríkin komust að sam­komu­lagi um fram­hald lán­veit­inga til Grikk­lands á fundi í Brussel nú í kvöld. Sam­komu­lagið gildir til næstu fjög­urra mán­aða, en án þess hefðu samn­ingar runnið út um mán­aða­mótin og góðar líkur virt­ust á því að Grikkir yrðu uppi­skroppa með fjár­magn.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una sem gefin var út í kvöld.

Grikkir beygðu sig undir vilja Evr­ópu­sam­bands­ins, en gerðu það á sínum for­sendum, virð­ist vera línan sem tekin er hjá sér­fræð­ingum í Aþenu.

„Þetta er mjög jákvæð útkoma,“ sagði Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins og fjár­mála­ráð­herra Hollands þegar fund­inum lauk í kvöld. Hann sagði að stjórn­völd í Grikk­landi hefðu lofað að standa við allar sínar skuld­bind­ingar. „Ég held að í kvöld hafi verið stigið fyrsta skrefið í átt að því að byggja traust upp á ný.“

Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, sagði að þessir fjórir mán­uðir verði nýttir til að byggja upp sam­skiptin við Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Hann þarf að afhenda til­lögur að umbótum í Grikk­landi á mánu­dag­inn og seg­ist ætla að vinna að þeim alla helg­ina, nótt og dag. Hann sagði sam­komu­lagið í kvöld ekki til­efni til fögn­uðar, heldur væri það lítið skref í rétta átt.

Fjár­mála­skýr­andi BBC bendir þó á að sam­komu­lagið í kvöld haldi í raun bara í tvo daga, vegna þess­ara umbóta sem rík­is­stjórnin í Grikk­landi þarf að leggja fram á mánu­dag. Það er alls ekki víst að það tak­ist eða að um umbæt­urnar náist sátt í Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár