Rússland hefur ekki lengur efni á að borga ríkisstarfsmönnum laun

Vladimir Putin hefur und­ir­ritað þrjár laga­breyt­ingar sem gera það meðal ann­ars að verkum að laun rík­is­starfs­manna verða lækkuð frá og með 1. maí næst­kom­andi. Putin og Dmitri Medvedev for­sæt­is­ráð­herra ætla að leiða með for­dæmi og taka á sig tíu pró­sent launa­lækk­anir.

Til við­bótar ætla rúss­nesk stjórn­völd að fækka rík­is­starfs­mönnum um fimm til 20 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt á Business Insider.

Seilast í varasjóði


Aðgerð­irnar eru hluti af víð­fermum neyð­ar­að­gerðum sem rúss­nesk stjórn­völd hafa gripið til vegna þess mikla tekju­sam­dráttar sem lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu hefur valdið land­inu. Hver tunna af olíu er nú að selj­ast á um 60 dali en fjár­lög rúss­neska rík­is­ins mið­uðu við að tunnan væri að selj­ast á um 100 dali. Þar sem olíu­út­flutn­ingur skiptir ríkið öllu máli er ljóst að risa­stórt gat er að mynd­ast í fjár­lögum árs­ins 2015.

Þessar fréttir ber­ast viku eftir að Anton Siluanov, fjár­mála­ráð­herra Rúss­lands, bað rúss­neska þingið um að fá aðgang að um 34 millj­örðum punda, um 7.000 millj­örðum króna, sem geymdir eru í vara­sjóði sem Rússland á til að fár­magna áætlun sína sem á að vinna gegn kreppu­á­hrifum. Upphæðin nemur um helm­ingi allra eigna sjóðs­ins.

Himinhá verðbóla og samdráttur


Verð­bólga mæld­ist 16,7 pró­sent í Rúss­landi í síð­asta mán­uði og spár Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins gera ráð fyrir að efna­hagur lands­ins drag­ist saman um þrjú pró­sent á þessu ári og eitt pró­sent til við­bótar á því næsta.

Þessar spár gera hins vegar ráð fyrir því að ástandið í Úkraínu muni lag­ast á næstu miss­erum. Það er alls ójóst að það ástand muni lag­ast og því enn tölu­verðar líkur á að sam­drátt­ur­inn í Rúss­landi verði meiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár