Sjávarútvegur vill að ríkið borgi fyrir markaðssetningu sjávarafurða eftir COVID-19

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi vilja að Íslands­stofa fái fjár­magn til að ráð­ast í mark­aðs­setn­ingu á íslensku sjáv­ar­fangi þegar COVID-19 far­ald­ur­inn er yfir­stað­inn.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) telja rök­rétt að Íslands­tofa fái úthlutað fjár­magn til að fara í sókn í mark­aðs­setn­ingu sjáv­ar­af­urða erlendis í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins sem nú ríður yfir. „Það fram­lag mun einnig hjálpa til við að kynna landið fyrir erlendum ferða­mönnum. Þess skal síðan getið að helstu mark­aðir fyrir bæði ferða­þjón­ustu og íslenskar sjáv­ar­af­urðir eru hinir sömu. Áhrifin af fjár­fest­ingu í mark­aðs­setn­ingu verða því víð­tæk.“

Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna um frum­varp til fjár­auka­laga þar sem sótt er heim­ild til að eyða þeim fjár­munum sem til stendur að eyða í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda til að takast á við efna­hags­leg áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins.

Kjarninn greindi frá því í gær að sam­tökin fari þess einnig á leit við efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis að gerðar verði breyt­ingar á frum­varpi um aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru þess efnis að greiðslu veiði­gjalds í ár verði frestað. ­Á­ætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs vegna veiði­gjalda í ár eru tæp­lega 4,9 millj­arðar króna.

[adspot]Sam­tökin fara sömu­leiðis fram á að sér­stök gjöld sem lögð eru á fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi verði frestað eða felld niður út árið 2021 til að veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum meira svig­rúm til að bregð­ast við fyr­ir­séðum tekju­sam­drætti við þær aðstæður sem nú eru upp­i.

Eftirspurn að dragast hratt saman

Í umsögn­inni um fjár­auka­laga­frum­varpið eru til­tekin mörg sömu rök og notuð voru til að rök­styðja nið­ur­fell­ingu veiði­gjalda.

Þar er bent áð að COVID-19 far­ald­ur­inn lami þjóð­líf bæði austan hafs og vestan og ljóst sé að mark­aður með íslenskar sjáv­ar­af­urðir fari hratt minnk­andi og sums staðar hverf­andi. „Veit­inga­staðir, hótel, mötu­neyti og fisk­borð mat­vöru­versl­ana loka stórum dráttum um víða ver­öld, auk þess sem staða birgja og dreifi­kerfa er víða í óvissu. Eft­ir­spurn eftir ferskum sjáv­ar­af­urðum í Evrópu og Banda­ríkj­unum er því sem næst engin, með til­heyr­andi áhrifum á útflutn­ing fisks frá Íslandi. Þá má vænta þess að hægja mun á eft­ir­spurn eftir frystum afurðum auk þess sem verð fari lækk­andi þegar fleiri fram­leið­endur frysti sínar afurðir. Jafn­framt getur hvenær sem er komið til þess að fisk­vinnslur og útgerð­ar­fyr­ir­tæki þurfi að loka vegna starfs­fólks í sótt­kví eða sam­komu­banns stjórn­valda. Það hefði í för með sér meiri­háttar hrun í fram­boði íslensks sjáv­ar­fangs við for­dæma­lausar aðstæður.“ 

Segja að ekkert þurfi að fjölyrða um mikilvægið

Í umsögn­inni er vikið að því að í frum­varp­inu sé fjár­heim­ild mála­flokks ferða­þjón­ustu hækkuð um allt að þrjá millj­arða króna. Þar af fari 1,5 millj­arðar króna í sam­ræmt kynn­ingar- og mark­aðs­starf erlendis á árunum 2020-2021. Í athuga­semdum sem fylgja frum­varp­inu segir að átak­inu verði ýtt úr vör um leið og aðstæður leyfi í því skyni að laða til lands­ins ferða­menn sem fyrst og draga úr þeim búsifjum sem far­ald­ur­inn hefur valdið og getur enn valdið íslenskri ferða­þjón­ustu og efna­hags­lífi.

[adspot]Undir þetta tekur SFS en segir að íslenskur sjáv­ar­út­vegur sé við þessar aðstæður sem nú séu uppi að verða fyrir miklum búsifjum sömu­leiðis og ekk­ert þurfi að fjöl­yrða um mik­il­vægi sjáv­ar­út­vegs fyrir Íslend­inga. „Þær áherslur sem settar eru fram í þessu frum­varpi um mik­il­vægi ferða­þjón­ust­unnar fyrir íslenskt efna­hags- og atvinnu­líf eiga því ekk­ert síður við um íslenskan sjáv­ar­út­veg.“

Vilja að Íslandsstofa fari í markaðsverkefni

Samtökin telja að sam­starfs­verk­efni þar sem atvinnu­lífið og stjórn­völd vinna saman að bættri stöðu íslensks sjáv­ar­fangs á erlendum mörk­uðum geti skapað mik­inn ávinn­ing fyrir þjóð­ar­búið.

Þau telja nauð­syn­legt að styrkja stöðu Íslands og ná til baka mark­aðs­hlut­deild þegar heims­far­ald­ur­inn verður yfir­stað­inn en benda á að hingað til hafi fjár­mögnun Íslands­stofu ekki verið með þeim hætti að hægt hafi verið að fara í víð­tæka og sam­eig­in­lega mark­aðs­setn­ingu á íslensku sjáv­ar­fangi til neyt­enda. „Mark­aðs­verk­efni á vegum Íslands­stofu fyrir aðrar atvinnu­greinar, og þá einkum fyrir ferða­þjón­ustu og land­búnað, svo sem Inspired by Iceland, Iceland Naturally og Horses of Iceland eru dæmi um verk­efni þar sem fjár­mögnun í mark­aðs­sókn er skipt á milli atvinnu­lífs og stjórn­valda. Samtökin telja mik­il­vægt að fjár­veit­ing til Íslands­stofu fari í sam­starfs­verk­efni með sjáv­ar­út­vegi líkt og á við um aðrar útflutn­ings­greinar og að slíkt sam­starf myndi gefa góðan ávinn­ing fyrir alla hlut­að­eig­andi aðila.“

Góð afkoma í rúman ára­tug

Sam­kvæmt tölur úr Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunn­i Deloitte ­fyrir árið 2018 sem kynntur var í sept­em­ber í fyrra, og nær yfir rekstur 92 pró­sent allra fyr­ir­tækja í íslenska sjáv­ar­út­vegs­geir­an­um, áttu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eigið fé upp á 276 millj­arða króna í lok þess árs.

[links]Frá hruni og fram til þess tíma hafði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna árið 2018. Frá árinu 2010 og til loka árs 2018 höfðu þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­ur.

Sam­an­lagt batn­aði hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins því um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út árið 2018, eða á einum ára­tug.

Þá var búið að taka til­lit til þeirra 63,3 millj­arða króna sem útgerð­ar­fyr­ir­tækið greiddu í veiði­gjöld frá árinu 2011 og úr árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár