Viðskiptaráð vill að ríkið skoði að gefa fyrirtækjum peninga frekar en að lána þeim

Í umsögn sinni um aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar bendir Við­skipta­ráð á að í ýmsum löndum í kringum okkur hafi verið kynnt til leiks úrræði sem feli í sér óend­ur­greið­an­leg fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði til fyr­ir­tækja.

Ásta S. Fjeldsted er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Ásta S. Fjeld­sted er fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs. Mynd: Aðsend

Við­skipta­ráð vill að íslenska ríkið horfi til aðgerða ann­arra ríkja til að bregð­ast við yfir­stand­andi efna­hags­sam­drætti og að það geri frekar meira en minna. Á meðal þeirra aðgerða sem Við­skipta­ráð bendir á í þessu sam­hengi eru bein fjár­fram­lög til fyr­ir­tækja úr rík­is­sjóði sem yrðu ekki end­ur­greið­an­leg. Með öðrum orðum: pen­inga­gjafir úr rík­is­sjóði beint til fyr­ir­tækja sem upp­fylla ákveðin skil­yrði.

Í umsögn Við­skipta­ráðs um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem er ætlað að lög­festa aðgerð­ar­pakka hennar í efna­hags­mál­um segir að sum ríki í kringum okkur séu að „átta sig á því að það sé ekki endi­lega skyn­sam­leg­asta leiðin til að styðja við fyr­ir­tæki að láta þau skuld­setja sig meira heldur þurfi beinni og mark­viss­ari stuðn­ing“.

Undir umsögn­ina skrifar Ásta S. Fjeld­sted, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs.

Benda á Danmörku og Noreg

Í Danmörku muni til að mynda ákveðin fjár­hæð renna beint til fyr­ir­tækja í formi styrkja upp á 25 til 80 pró­sent af föstum kostn­aði þeirra. Þessir styrkir séu í boði til þeirra fyr­ir­tækja sem missa meira en 40 pró­sent eða meira af tekjur sínum. Kostn­aður við þessa aðgerð er áætl­aður tvö pró­sent af lands­fram­leiðslu Dan­merkur. Þá fái sjálf­stætt starf­andi og fyr­ir­tæki með tíu eða færri starfs­menn sem sjá tekjur minnka um meira en 30 pró­sent allt að 75 pró­sent af tekjum sínum greiddar frá rík­inu. „Þessir styrkir eru í boði í þrjá mán­uði og eru ekki lán eða frest­anir, heldur bein fjár­fram­lög frá rík­inu til fyr­ir­tækja vegna bráða­vanda kór­ónu­veirunnar,“ segir í umsögn Við­skipta­ráðs.

[adspot]Þar er einnig fjallað um þá leið sem norsk stjórn­völd kynntu sem felur í sér heim­ild til að draga tap árs­ins frá hagn­aði fyrri ára og stofna þannig til end­ur­greiðslu­kröfu á ríkið.

„Á sama tíma og Við­skipta­ráð fagnar þeim til­lögum sem eru fram komnar bindur ráðið vonir við frek­ari aðgerðir af hálfu hins opin­bera sem felur í sér eft­ir­gjöf á opin­berum gjöldum og tryggja að fjár­fest­ing­ar­geta atvinnu­lífs­ins sé varin eftir fremsta megni. Það er að mati ráðs­ins ekki skyn­sam­legt til lengri tíma að stefna fólki og fyr­ir­tækjum í of mikla skuld­setn­ingu vegna atburða sem birt­ast okkur eins og þessar óvið­jafn­an­legu nátt­úru­ham­farir.“

Vilja 18 milljarða til fyrirtækja með afnámi tryggingagjalds

Við­skipta­ráð leggur til að frum­varpið nái fram að ganga og verði að lögum ,en hvetur sér­stak­lega til þess að trygg­inga­gjaldið verði einnig afnumið tíma­bundið og að frestur verði veittur á greiðslu virð­is­auka­skatts.

[links]Það telur að tíma­bundið afnám trygg­inga­gjalds­ins væri hnit­miðuð ráð­stöfun sem auð­veldi fyr­ir­tækjum að sporna gegn atvinnu­leysi. „Áætlaðar heild­ar­tekjur rík­is­ins af trygg­inga­gjaldi sam­kvæmt fjár­lögum eru 102 ma. kr. Beinn kostn­aður rík­is­ins af afnámi trygg­inga­gjalds í þrjá mán­uði (mars, apríl og maí) næmi 18 ma. króna.“

Þá vill Við­skipta­ráð að skilum á virð­is­auka­skatti verði almennt fresta í heild eða hluta. Það sé leið sem stjórn­völd í Danmörku, Svíþjóð, Belgíu og Frakk­landi hafi gripið til.

Í umsögn­inni segir Við­skipta­ráð að það telji ekki nægi­lega langt gengið með frestun gjald­daga fast­eigna­skatta. „Sum sveit­ar­fé­lög gætu viljað ganga lengra eða nýta sér­tæk­ari leiðir og mik­il­vægt er að þeim sé eft­ir­látið frelsi til þess við þessar aðstæður. Sveit­ar­stjórnir þurfa að geta gengið eins langt og þörf er á eins og for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa gefið út að þeir muni gera, en það er mik­il­vægt að mati Við­skipta­ráðs að sveit­ar­fé­lögin stígi inn í og afnemi fast­eigna­skatt tíma­bundið. Nauð­syn­legt er að lög­gjaf­inn búi svo um að sveit­ar­fé­lög­unum geti að grípa til slíkra aðgerða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár