Samfylking tapar, Sjálfstæðisflokkur stærstur en meirihlutinn í heild bætir við sig

Ný könnun Gallup um fylgi flokka í Reykja­vík sýnir Sjálf­stæð­is­flokk stærri en Sam­fylk­ingu, en um 5 pró­sentu­stiga tap beggja flokka frá borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2018. Píratar, VG og Framsókn bæta mikið við sig á móti.

Tveir mánuðir eru í dag þar til sveitarstjórnarkosningar fara fram.
Tveir mán­uðir eru í dag þar til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá rúm 26 pró­sent og mest fylgi allra flokka sem boðað hafa fram­boð til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík, sam­kvæmt nýrri könnun frá Gallup sem fjallað var um í kvöld­fréttum RÚV í kvöld.

Sam­fylk­ingin mælist með 21,2 pró­sent fylgi í sömu könnun og báðir þessir flokkar myndu því tapa um 5 pró­sentu­stigum frá því í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018.

Píratar, Framsókn og Vinstri græn bæta hins vegar við sig. Píratar mæl­ast nú með hart­nær 13 pró­senta fylgi en fengu um 8 pró­sent árið 2018 og Framsókn, sem á í dag engan borg­ar­full­trúa eftir að hafa beðið afhroð í borg­inni árið 2018, mælist nú með um 10 pró­senta fylgi. Vinstri græn, sem eiga ein­ungis einn full­trúa í borg­ar­stjórn, nær tvö­falda fylgi sitt frá 2018 og mæl­ast nú með tæp 9 pró­sent.

Miðflokkur þurrkast út – meirihlutinn í heild bætir við sig

Viðreisn stendur í stað sam­kvæmt könn­un­inni, með rösk­lega 8 pró­senta fylgi og fylgi Sós­í­alista­flokks og Flokks fólks­ins er nálægt því sem það var kosn­ing­unum árið 2018. Mið­flokk­ur­inn mælist hins­vegar ein­ungis með rúm 2 pró­sent, sem myndi ekki duga til að ná inn manni í borg­ar­stjórn að nýju.

Allt í allt bæta flokk­arnir fjórir sem í dag mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur við sig fylgi frá kosn­ing­unum árið 2018, sam­kvæmt könnun Gallup.

Sam­an­lögð fylg­is­aukn­ing Pírata og Vinstri grænna er þannig meiri en það tæp­lega 5 pró­senta fylgis­tap Sam­fylk­ingar frá síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem birt­ist í könn­un­inni.[links]

Maskína sýndi Samfylkingu stærsta og meira fylgistap Sjálfstæðisflokks

Könnun Gallup sem birt var í kvöld er önnur könn­unin á fylgi flokka í Reykja­vík sem birt­ist í aðdrag­anda kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Í könnun Maskínu, sem birt var 11. febr­úar, mæld­ist Sam­fylk­ingin stærsti flokk­ur­inn í borg­inni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ein­ungis með um 22 pró­sent fylgi.

Við­snún­ingur hefur þannig orðið á stöðu tveggja stærstu flokk­anna, sam­kvæmt þess­ari könnun Gallup, sem sam­kvæmt frétt RÚV var fram­kvæmd dag­ana 14. febr­úar til 13. mars. Heild­ar­úr­taks­stærð var tæp­lega 2400 manns og tóku tæp 50 pró­sent þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár