Stuðningur við flóttamenn tvöfaldaður

Stjórn­völd ætla sér að styðja veru­lega við mála­flokk sem teng­ist flótta­mönnum. Stuðn­ingur við þá verður auk­inn, og fleiri koma til lands­ins.

Útgjöld til mót­töku flótta­manna og hæl­is­leit­enda sem veitt er hæli hér á landi munu meira en tvö­fald­ast á næsta ári. Fer upp­hæðin úr 150 millj­ónum í 410 millj­ónir, að þvi er fram kemur í Frétta­blað­inu í dag. „Það er verið að auka veru­lega áhersl­una á mála­flokk­inn. Þar er bæði aukin mót­taka kvótaflótta­manna á milli ára en ekki er síður verið að verja fjár­magni til þess að bæta frekar mót­tökur þeirra sem hér fá hæli,“ segir Þor­steinn Víglunds­son vel­ferð­ar­ráð­herra í við­tali við blaðið.

Mark­miðið sé, að því er fram kemur hjá Þor­steini, að sam­ræma betur þá þjón­ustu, sem veitt er þeim sem fá hæli hér á landi, við þá þjón­ustu sem kvótaflótta­mönnum er veitt þegar kemur að hús­næð­is­leit, atvinnu­leit og öðrum úrræðum.

Sú verka­skipt­ing er höfð meðal ráðu­neyta í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda að dóms­mála­ráðu­neytið er ábyrgt fyrir Útlend­inga­stofnun og ákvörðun um það hverjir fá hér hæli og hverjir ekki. En í mál­efnum kvótaflótta­manna marka utan­rík­is­ráðu­neytið og vel­ferð­ar­ráðu­neytið stefn­una, hversu margir flótta­menn koma og hvaðan þeir koma. Eins og fram kom í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í síð­ustu viku hefur sú stefna verið mörkuð fyrir næsta ár. Tekið verður á móti 50 flótta­mönnum, einkum fólki frá Sýrlandi og hinsegin flótta­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár