Einar Þorsteinsson, fyrrverandi fréttamaður og stjórnandi Kastljóss á RÚV, segir að margir hafi hvatt sig til að fara fram fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík. „Ég er að íhuga það alvarlega.“ Þetta kemur fram á mbl.is.
Þar er haft eftir Einari að miðað við „stöðuna í Ráðhúsinu á undanförnu þá er mikilvægt að flokkur sem byggir pólitík sína á samvinnuhugsjón hafi áhrif á ákvarðanatöku þar.“
Einar hefur ekki starfað innan Framsóknarflokksins áður en eiginkona hans, Milla Ósk Magnúsdóttir, er aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og þingmanns Framsóknarflokksins. Einar var formaður félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi á árum áður og var sterklega orðaður við framboð fyrir þann flokk í Kópavogi fyrir skemmstu. Einar og Milla settu hins vegar heimili sitt í Kópavogi á sölu fyrir nokkrum dögum og eru að flytja í Seljahverfið í Reykjavík.
[adspot]Einar hætti störfum hjá RÚV í byrjun þessa árs. Í skilaboðum sem hann sendi fyrrverandi samstarfsfélögum stóð: „Ég hef ákveðið að þiggja starf sem mér bauðst fyrir skömmu. Þetta er erfið ákvörðun því fréttastofan er mitt annað heimili og það er erfitt að kveðja ykkur vini mína. Ég get því miður ekki sagt ykkur strax frá því hvert ég er að fara en það skýrist fljótlega. En ég hætti sem sagt í dag. Um leið og ég hlakka til nýrra starfa þá á ég eftir að sakna ykkar óskaplega og ég vona að ykkur gangi vel í baráttunni.“
Handboltamarkmaður vill vera númer eitt
Framsóknarflokkurinn reið ekki feitum hesti frá síðustu borgarstjórnarkosningum. Hann fékk einungis 3,2 prósent atkvæða og náði ekki inn manni í Reykjavík.
Flokkurinn ætlar að stilla upp lista fyrir komandi kosningar í höfuðborginni og því má ætla að ef Einar taki slaginn sé búið að bjóða honum oddvitasæti.
Þegar hefur einn einstaklingur tilkynnt að hann sækist eftir sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Björgvin Páll Gústavsson handboltamarkvörður vill fá 1.-2. sæti á listanum.
Í stöðuuppfærslu sem hann birti á Facebook í vikunni sagðist Björgvin vilja „vera hluti af þeirri vegferð, hvort sem það væri að leiða flokkinn eða í öðru sæti á lista. Ég tel að í hvoru sætinu sem er geti ég orðið sá leiðtogi innan kerfisins sem að ég tel að borgin og börnin þurfi á að halda. Börnin okkar eiga að fá hásætið næstu 4 árin og við þurfum öll að taka þátt í að hlúa að þeim.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir