Þrír greindust með COVID-19 í gær

Þrír ein­stak­lingar greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær og eru tugir nú í sótt­kví. Í einu til­fell­inu er um að ræða afbrigði veirunnar sem ekki hefur áður komið fram í rað­grein­ingum Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Enn er ekki búið að finna upp­runa smits hjá full­orðnum ein­stak­lingi sem tekið hafði þátt í fót­bolta­mót­inu ReyCup í Laug­ar­dalnum. Smitið upp­götv­að­ist í gær og hafa sextán manns sem voru í nánu sam­neyti við þann smit­aða verið sendir í 14 daga sótt­kví. Smitrakn­ing er í gangi.

Einungis hluti íþróttaliðs­ins sem mað­ur­inn var með á mót­inu er í sótt­kví og sam­kvæmt til­kynn­ingu frá almanna­vörnum hafa íþrótta­fé­lagið og móts­hald­ar­arar farið eftir leið­bein­ingum og reglum sótt­varna­læknis og gert við­eig­andi ráð­staf­anir, en ReyCup lýkur í dag.

Tvö inn­an­lands­smit til við­bótar upp­götv­uð­ust á land­inu í gær, sam­kvæmt til­kynn­ingu almanna­varna. Annað þeirra teng­ist smiti frá sem greint var frá á föstu­dag. Samkvæmt rað­grein­ingu Íslenskrar erfða­grein­ingar á þeim sýnum eru þeir smit­uðu með afbrigði veirunnar sem ekki hefur fund­ist hér á landi áður og því má leiða líkum af því að upp­runann megi rekja út fyrir land­stein­ana. Í því máli er smitrakn­ingu lokið, en einn er í ein­angrun og tólf manns eru í sótt­kví.

Þriðja smitið sem greind­ist er frá ein­stak­lingi sem kom til lands­ins þann 15. júlí. Það greind­ist á suð­vest­ur­horni lands­ins. Hann er kom­inn í ein­angrun og sex sem voru í sam­neyti við hann í sótt­kví. Þeir fara jafn­framt í sýna­töku en tveir eru farnir að sýna ein­kenni veirunnar.

Til við­bótar greindust tvö smit við landa­mærin, en beðið er eftir nið­ur­stöðu frek­ari rann­sókna á því hvort um virk eða gömul smit sé að ræða.

Fólk fari í próf ef það hefur minnsta grun um einkenni COVID-19

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og emb­ætti land­læknis brýna fyrir fólki að gæta var­úðar og huga vel að ein­stak­lings­bundnum smit­vörnum.

Leiki minnsti vafi á hvort ein­kenni COVID-19 veirunnar séu til staðar er sá hinn sami beð­inn um að fara í sýna­töku á næstu heilsu­gæslu­stöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár