Óléttar konur vestanhafs tregar til að fá bólusetningu

Fals­fréttir eru ein helsta ástæða þess að banda­rískar konur sem von eiga á barni neita að láta bólu­setja sig gegn COVID-19. Fleiri þeirra eru að veikj­ast alvar­lega nú en nokkru sinni áður í far­aldr­inum.

Aðeins um 25 prósent óléttra kvenna í Bandaríkjunum eru bólusettar.
Aðeins um 25 pró­sent óléttra kvenna í Banda­ríkj­unum eru bólu­settar. Mynd: EPA

Bólu­setn­ing­ar­hlut­fall meðal óléttra kvenna í Banda­ríkj­unum er með því lægsta sem finnst í land­inu. Læknar telja nokkrar ástæður vera fyrir því að óléttar konur láti ekki bólu­setja sig en að rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar um auka­verk­anir spili þar hlut­verk. Læknar í Texas segja að fjöldi óléttra kvenna sem lagðar hafi verið inn á sjúkra­hús í rík­inu með COVID-19 upp á síðkastið sé meiri en nokkru sinni áður í far­aldr­inum.

Í byrjun sept­em­ber höfðu um 25 pró­sent barns­haf­andi kvenna á aldr­inum 18-49 ára fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni. Bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið í þessum ald­urs­hópi almennt er hins vegar um 60 pró­sent.

Smit­sjúk­dóma­stofnun Banda­ríkj­anna hefur um hríð mælt með því að óléttar konur og konur með börn á brjósti láti bólu­setja sig og studdi þá ákvörðun sína með vís­inda­gögnum. En heil­brigð­is­starfs­fólk segir tregðu til bólu­setn­ingar í hópnum enn mikla.

Í grein Texas Tribune, þar sem fjallað er um þessi mál, segir að óléttar konur og konur með börn á brjósti séu sjaldan hafðar með í klínískum rann­sóknum á bólu­efnum. Hins vegar hafa nú komið fram gögn sem sýna að bólu­setn­ing veldur ekki auk­inni hættu á fóst­ur­missi eða á fóst­ur­skaða.

„Við erum að sjá sífellt fleiri þeirra veikj­ast alvar­lega,“ hefur Texas Tribune eftir Manishu Gandhi, yfir­lækni á kvenna­deild Pavilion-sjúkra­húss­ins og pró­fessor við Baylor-lækna­há­skól­ann í Houston.

Í ágúst í fyrra voru meira en fimmtán óléttar konur lagðar inn á sjúkra­húsið með COVID-19. Í sama mán­uði í ár var fjöld­inn næstum því tvö­falt meiri.

Gandhi segir að skýr­ingin felist m.a. í útbreiðslu delta-afbrigð­is­ins, sem legg­ist þyngra á óléttar konur „svo þær veikj­ast miklu hraðar“.

[links]Fals­fréttir á sam­fé­lags­miðlum eru að sögn Jerald Gold­stein, læknis og frjó­sem­is­sér­fræð­ings í Texas, á sveimi. Í þeim er því m.a. haldið fram að bólu­setn­ing gegn COVID-19 geti valdið ófrjó­semi. Þetta hafi áhrif, margir taki þessu sem heilögum sann­leik og neiti að láta bólu­setja sig. Nið­ur­staða nýlegrar rann­sóknar, sem birt var í vís­inda­tíma­rit­inu American Society for Reproductive Medicine journal, er sú að hvorki það að veikj­ast af COVID-19 eða bólu­setn­ing gegn sjúk­dómnum valdi ófrjó­semi.

Banda­rísk yfir­völd hafa lent á vegg í bólu­setn­ing­ar­átaki sínu. Stefnt var að því að um 75 pró­sent full­orð­inna væru búnir að fá að minnsta kosti annan skammt bólu­efnis í júlí. Hlut­fallið er hins vegar enn langt undir því mark­miði. Um 54 pró­sent þeirra eru full­bólu­settir.

Biden breytir um tón

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti, sem reynt hefur að nota föð­ur­legan tón og hvatn­ingu til að fá fólk til að láta bólu­setja sig, skipti hressi­lega um gír í síð­ustu viku og sagði nóg komið. Þær 80 millj­ónir manna sem ekki hefðu látið bólu­setja sig væru að skapa hættu fyrir þjóð­ina; bæði heilsu­fars­lega og efna­hags­lega. Því hefði hann ákveðið að skylda fólk sem starfar fyrir hið opin­bera að vera bólu­sett. Einnig setti hann á allt að því sam­bæri­lega skyldu fyrir fyr­ir­tæki þar sem vinna 100 manns eða fleiri.

Biden til­kynnti nokkru áður að allir sem fengið hefðu tvo skammta af bólu­efni stæði til boða að fá þann þriðja. Mjög skiptar skoð­anir eru um þörf­ina á slíkri örvun á þessum tíma­punkti og hvorki Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, Sótt­varna­stofnun Evrópu né Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna hafa mælt með slíku.

Sér­fræð­inga­nefnd á vegum þeirrar síð­ast­nefndu mun fjalla um áform Bidens á fundi sínum í dag og meta hvort til­efni sé til að breyta ráð­legg­ingum, m.a. út frá gögnum frá Pfizer, lyfja­fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiðir bólu­efnið sem einna mest hefur verið notað í Banda­ríkj­unum. Samkvæmt þeim gögnum minnkar mótefna­svar lík­am­ans nokkrum mán­uðum eftir bólu­setn­ingu, sem er ekki óvænt, en spurn­ingin er: Mun það minnka þá vörn sem bólu­efnið veitir?

Svo umdeilt er málið innan stofn­un­ar­innar að í það minnsta tveir hennar helstu sér­fræð­ingar hafa sagt upp störfum eftir að Biden til­kynnti um örv­un­ar­her­ferð­ina sem á að hefj­ast í næstu viku.

FDA hefur sam­þykkt örvun bólu­setn­inga hjá þeim sem vegna sjúk­dóma eða ald­urs eru með veiklað ónæm­is­kerfi. En hvort örv­un­ar­bólu­setn­ingar sé þörf og hvort hún sé örugg fyrir hraust fólk undir sex­tugu er mjög umdeilt.

Til að hámarka virkni hvers skammts af bólu­efni sem er tak­mörkuð auð­lind á heims­vísu ætti að gefa hann óbólu­settum ein­stak­lingi. Áskor­unin vest­an­hafs fellst aðal­lega í því að vinda ofan af fals­frétt­unum og bólu­setja allar þær millj­ónir sem engan skammt hafa þegið. Að örva þegar bólu­setta með þeim þriðja kann að verða nauð­syn­legt á ein­hverjum tíma­punkti en ætti ekki að vera for­gangs­mál í augna­blik­inu.

Komið var að miður ánægju­legum tíma­mótum í far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum í gær. Þá var svo komið að einn af hverjum 500 Banda­ríkja­mönnum hefði lát­ist úr COVID-19. „Við erum eig­in­lega á þeim stað sem spár gerðu ráð fyrir ef við hefðum leyft far­aldr­inum að ganga yfir hind­r­ana­laust,“ hefur Washington Post eftir Jeffrey D. Klausner, pró­fessor í lækn­is­fræði og lýð­heilsu­fræðum við Háskóla í Suður-Kali­forníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár