Hópur vísindamanna: Engin þörf á örvun bólusetninga

Fyr­ir­liggj­andi vís­inda­leg gögn um virkni bólu­efna gegn COVID-19 benda ekki til þess að þörf sé á að örva bólu­setn­ingar í sam­fé­lögum almennt. Þetta er nið­ur­staða alþjóð­legs hóps sér­fræð­inga, m.a. frá WHO og FDA.

Karlmaður heldur um upphandlegginn eftir að hafa fengið bólusetningu á Indlandi. Þar varð delta-afbrigðið til í óbólusettu samfélagi með þekktum og skelfilegum afleiðingum.
Karl­maður heldur um upp­hand­legg­inn eftir að hafa fengið bólu­setn­ingu á Indlandi. Þar varð delta-afbrigðið til í óbólu­settu sam­fé­lagi með þekktum og skelfi­legum afleið­ingum. Mynd: EPA

Nið­ur­staða rýni alþjóð­legs hóps sér­fræð­inga, m.a. frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) og Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna (FDA) er sú að þrátt fyrir útbreiðslu delta-afbrigðis kór­ónu­veirunnar sé virkni bólu­efna gegn alvar­legum veik­indum af COVID-19 svo mikil að „ekki er við­eig­andi“ að gefa almennt örv­un­ar­skammtar á þessum tíma­punkti í far­aldr­inum.

Nið­ur­stöð­urnar eru birtar í nýjasta hefti lækna­blaðs­ins The Lancet. Rýnin er byggð á nið­ur­stöðu úr til­vilj­ana­kenndu úrtaki fyr­ir­liggj­andi próf­unum og rann­sóknum sem gefnar hafa verið út um virkni bólu­efn­anna.

Allar rann­sókn­irnar sem rýnt var í benda til þess að vörn bólu­efna gegn alvar­legum veik­indum af COVID-19, líka veik­indum af völdum nýj­ustu afbrigða veirunnar, er mikil.

[adspot]

Meðaltal úr rann­sókn­unum er að bólu­setn­ing veiti 95 pró­sent vörn gegn alvar­legum veik­indum, bæði af völdum delta-afbrigð­is­ins og alpha og yfir 80 pró­sent vörn almennt gegn sýk­ingu af völdum þess­ara afbrigða. Rýnin leiddi einnig í ljós að bólu­efnin veita betri vörn gegn alvar­legum veik­indum en mild­ari ein­kennum sjúk­dóms­ins.

[links]Í grein vís­inda­hóps­ins kemur fram að þrátt fyrir að bólu­efnin veiti minni vörn gegn smiti og ein­kenna­lausri sýk­ingu heldur en alvar­legum veik­indum, jafn­vel í sam­fé­lögum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall er hátt, er það hinn óbólu­setti minni­hluti sem er helsti drif­kraftur útbreiðslu sýk­inga. Auk þess eru óbólu­settir í mun meiri hættu á að veikj­ast alvar­lega.

„Sam­an­tekið þá veita þær rann­sóknir sem eru fyr­ir­liggj­andi á þess­ari stundu ekki trú­verð­ugar sann­anir á raun­veru­legri dvín­andi vörn gegn alvar­legum veik­indum sem er frum­mark­mið bólu­setn­inga,“ segir aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, Ana-Maria Henao-Restrepo, sem fer fyrir rann­sóknar- og þró­un­ar­verk­efnum hjá WHO. „Hið tak­mark­aða magn af þessum bólu­efnum mun bjarga flestum manns­lífum ef það verður gert aðgengi­legt fyrir fólk sem er í mestri hættu á alvar­legum veik­indum og hefur ennþá ekki fengið bólu­efni. Jafnvel þótt að ein­hver ávinn­ingur gæti náðst með örvun mun hann ekki vega meira en sá ágóði sem fæst með frum­bólu­setn­ingu óbólu­settra.

Ef bólu­efnum væru dreift þangað sem þeim ger­ist mest þörf geta þau flýtt fyrir því að við sjáum fyrir end­ann á far­aldr­inum með því að koma í veg fyrir frek­ari þróun afbrigða.“

Um 80 pró­sent alls þess bólu­efnis sem fram­leitt hefur verið hefur endað hjá rík­ustu þjóðum heims. Þær hafa því náð að bólu­setja meiri­hluta íbúa sinna. Staðan er allt önnur í fátæk­ustu löndum. Þar er bólu­setn­ing­ar­hlut­fall enn undir 2 pró­sentum að með­al­tali. Á annan tug þjóða í Evrópu eru byrj­aðar eða með það í und­ir­bún­ingi að örva bólu­setn­ingar. Á Íslandi býðst þeim sem fengu bólu­efnið Janssen, á sama hvaða aldri þeir eru, að fá örvun með bólu­efnum Pfizer og Moderna. Einnig býðst öllum yfir sex­tugu, sama hvaða bólu­efni það fékk, að fá örv­un­ar­skammt.

Fleira en mótefnasvar skiptir máli

Höfundar grein­ar­innar benda enn­fremur á að þrátt fyrir að mótefni dvíni með tím­anum hjá fólki sem fengið hefur bólu­setn­ingu þurfi það ekki að hafa áhrif á virkni bólu­efn­anna gegn alvar­legum veik­indum. Fleira en mótefna­svar skipti máli. Ef nota eigi örv­un­ar­skammta af bólu­efnum gegn COVID-19 á end­anum þurfi að rann­saka til hlítar í hvaða til­vikum þeir gagn­ist best.

Einnig vekur vís­inda­fólkið athygli á því að smám saman hækki hlut­fall bólu­settra í sam­fé­lögum og á heims­vísu sem verði til þess, eðli máls­ins sam­kvæmt, að það fækki í hópi óbólu­settra. Þetta mun að end­ingu hafa þau áhrif að hlut­falls­lega fleiri til­felli alvar­legra veik­inda verði hjá bólu­settum. Inn í þann reikn­ing verði að taka breytta hegðun fólks sam­hliða því að finna til öryggis með bólu­setn­ingu. Hins vegar, segir vís­inda­fólkið, kalla bólu­efnin svo gott mótefna­svar fram gegn þeim afbrigðum sem þegar eru á kreiki að ólík­legt verður að telj­ast að þau hafi stökk­breyst það mikið að þau kom­ist fram­hjá þeim vörnum sem bólu­efnin veita.

Bóluefni til örv­unar, sem þróað yrði sér­stak­lega til að gagn­ast gegn mögu­legum veiru­af­brigðum fram­tíð­ar­innar gætu orðið áhrifa­rík­ari og lang­vinn­ari en núver­andi bólu­efni. Svipuð nálgun er notuð við þróun bólu­efna gegn inflú­ensu. Ár hvert er þróað nýtt bólu­efni byggt á öllum þeim vís­inda­upp­lýs­ingum sem eru til­tækar um þau afbrigði sem eru á stjái.

„Þau bólu­efni sem nú eru aðgengi­leg eru örugg, árang­urs­rík og þau bjarga manns­lífum,“ segir Soumya Swaminathan, aðal­vís­inda­maður WHO og með­höf­undur grein­ar­innar í Lancet. „Jafnvel þótt að hug­myndin um að draga enn frekar úr til­fellum COVID-19 með því að örva ónæmi þegar bólu­settra ein­stak­linga sé heill­andi ætti að taka hverja slíka ákvörðun á vís­inda­legum grunni og íhuga ávinn­ing­inn og áhætt­una fyrir ein­stak­linga og sam­fé­lög. Þessar áhættu­sömu ákvarð­anir ætti að byggja á sterkum sönn­unum og alþjóð­legri, vís­inda­legri umræðu.“

Rannsóknarýnin var gerð af sérfræðingum frá eftirtöldum stofnunum:

Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna

Háskól­anum í Washington

Háskól­anum í Oxford

Háskól­anum í Flórída

Háskól­anum í Vestur-Indíum á Jamaíka

Háskól­anum í Bristol

Háskól­anum Uni­versi­dad Nacional Autonoma de Mexico

Frjó­semis- og HIV-rann­sókn­ar­stofn­un­inni Wits í Suður-Afríku

Háskól­anum í París

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár