Stendur SAS á bjargbrúninni?

Skand­in­av­íska flug­fé­lagið SAS hefur ekki farið var­hluta af þeim erf­ið­leikum sem flug­fé­lög víða um heim hafa mætt að und­an­förnu. Erf­ið­leik­arnir hjá SAS eru ekki ný bóla, og rekst­ur­inn oft staðið tæpt. Þó kannski sjaldan eins og nú.

Í stuttu máli er vandi SAS sá að tekjurnar eru ekki nógu miklar en kostnaður of mikill.
Í stuttu máli er vandi SAS sá að tekj­urnar eru ekki nógu miklar en kostn­aður of mik­ill. Mynd: EPA

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag var árs­fjórð­ungs­upp­gjör SAS, fyrir nóv­em­ber, des­em­ber og jan­úar, lagt fram. Lestur þessa upp­gjörs var ekki það sem kalla mætti ynd­is­lestur, myndi frekar flokk­ast sem hroll­vekja. Tap tíma­bils­ins nam um það bil 1,7 millj­arði danskra króna (34,5 millj­arðar íslenskir). Í yfir­lýs­ingu stjórn­enda SAS sem birt var sam­tímis fjórð­ungs­upp­gjör­inu var greint frá fyr­ir­hug­aðri nið­ur­skurðar- og hag­ræð­ing­ar­á­ætlun. Áætlunin sem gengur undir nafn­inu „SAS Forward“ gerir ráð fyrir að rekstr­ar­kostn­aður félags­ins verði skor­inn niður um 5,2 millj­arða danskra króna (jafn­gildir 100 millj­örðum íslenskum) á ári. Forsenda þess að þetta gangi eftir er að félagið leggi fram raun­hæfa og trú­verð­uga áætlun sem fjár­festar og eig­endur félags­ins sam­þykki og trúi á.

Ekki í fyrsta sinn

SAS Forward er ekki fyrsta sparn­aðar- og hag­ræð­ing­ar­á­ætl­unin sem félagið hefur lagt fram. Árið 2012 var kynnt áætlun í sama dúr, sú bar heitið Final Call. Þá stóð rekstur félags­ins mjög tæpt en var á síð­ustu stundu bjargað.

[adspot]SAS skuldar nú um það bil 25 millj­arða danskra króna (sam­svarar 474 millj­örðum íslenskum) en hand­bært fé nemur sem sam­svarar 45 millj­örðum íslenskra króna, auk lána­lína sem félagið getur dregið á. Simon Pauck Hansen fram­kvæmda­stjóri Dan­merk­ur­deildar SAS sagði í við­tali við danska sjón­varpið, DR, í lið­inni viku, að vet­ur­inn hafi verið langur. Þegar hann var spurður hve lengi SAS gæti haldið starf­sem­inni áfram með stór­felldum tap­rekstri vildi fram­kvæmda­stjór­inn ekki svara því, sagði að slíkt tal væri ekki það sem skipti máli, „nú snú­ast hlut­irnir um nýjar áætl­anir sem miða að því að efla og styrkja félagið“.

[links]

Ekki allir jafn bjartsýnir

Ole Kirchert Christensen, danskur sér­fræð­ingur um flug­rekstur og ferða­mál, sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken í lið­inni viku að nú þurfi SAS að kíkja í alla króka og kima í rekstr­inum, launa­kostnað, leigu­samn­inga, samn­inga við sam­starfs­að­ila, allt. „Öllu skiptir að allir legg­ist á árarnar (læg­ger hånden på kogepla­den), ef það ger­ist ekki blasir verri kostur við, sem sé sá að ekki verði til neitt sem heitir SAS.“ Margir sér­fræð­ingar um flug­mál hafa talað á svip­uðum nótum.

Miklar breytingar

Um og eftir síð­ustu alda­mót urðu miklar breyt­ingar í flug­rekstri. Hinum svoköll­uðu lággjalda­flug­fé­lögum fjölg­aði mikið, þau buðu lægri far­gjöld og minni þjón­ustu, það var til dæmis ekki sjálf­sagt að hress­ing væri inni­falin í miða­verð­inu, og sama gilti um ferða­töskur. Gripa­flutn­inga­vélar sögðu sumir. Slíkt tal breytti engu, lággjalda­fé­lögin náðu til sín sífellt stærri sneið af „far­þega­kök­unni“.

[adspot]Skattar, gjöld og laun skipta miklu máli í rekstri flug­fé­laga. Í þessum efnum standa nor­rænu löndin illa að vígi í harðri sam­keppni. Kostn­aður vegna hvers starfs­manns er um rúm­lega fimm­tíu pró­sentum hærri í Skand­in­avíu en til dæmis í Englandi, Skotlandi eða Spáni. Fækkun starfs­fólks, launa­lækkun og hag­ræð­ing af ýmsu tagi er sú leið sem mörg „gömlu hefð­bundnu félögin“ hafa reynt að fara. Það hefur ekki alltaf dugað til og fjöl­mörg flug­fé­lög hafa á síð­ustu árum lagt upp laupana. SAS hefur ítrekað gripið til margs konar aðgerða, upp­sagna, launa­lækk­ana og hag­ræð­ingar. Á liðnum árum hefur iðu­lega komið til harka­legra átaka þar sem starfs­fólk og félagið hafa tek­ist á um kaup og kjör. Fyrir örfáum dögum lagði starfs­fólk í far­ang­urs­deild, SAS Ground Handling, í Kaup­manna­höfn niður vinnu. Slík var harkan í deil­unni að þrátt fyrir að vinnu­dóm­stóll (Arbejds­ret) hefði úrskurðað vinnu­stöðv­un­ina ólög­lega sneri fólk ekki aftur til vinnu fyrr en SAS hót­aði upp­sögnum.

Hver er vandinn og hvað er til ráða?

Í stuttu máli er vandi SAS sá að tekj­urnar eru ekki nógu miklar en kostn­aður of mik­ill.

Til að fá auknar tekjur þarf fleiri far­þega. En far­þegi er ekki bara far­þegi, það skiptir máli hvort hann er svo­kall­aður túristi eða hvort hann er að ferð­ast vegna vinn­unnar. Starf­semi SAS, einkum innan Evrópu, hefur að stórum hluta mið­ast við far­þega sem ferð­ast hafa vegna vinn­unnar. Keypti gjarna miða á síð­ustu stundu, betri sæti og borg­aði meira. Þetta hefur breyst, þeim sem ferð­ast vegna vinnu hefur snar­fækkað, m.a vegna fjar­funda, og æ fleiri fyr­ir­tæki eru ekki til­búin að borga fyrir dýr­ari sæti. Til að bregð­ast við þessu þarf SAS í auknum mæli að sníða áætl­anir sínar að ferða­mönnum, túrist­unum svoköll­uðu. Þegar greint var frá SAS Forward áætl­un­inni í síð­ustu viku kom fram að á kom­andi sumri verður beinum flug­ferðum fjölgað veru­lega. Beint flug milli Kaup­manna­hafnar og Boston hefst á ný og fjölgað verður um eina ferð dag­lega frá Kaup­manna­höfn til New York. Flug til Birming­ham og Hannover hefst á ný og ferðum suður á bóg­inn ( í sól­ina) verður fjölgað til muna.

En til að draga úr kostn­aði, hvað er til ráða þar? For­ráða­menn SAS hafa lýst yfir að til við­bótar lækkun launa­kostn­aðar og margs konar hag­ræð­ingu stefni félagið á að end­ur­nýja allan flug­flot­ann, sem er nú um 180 vélar, margar þeirra gamlar, og innan fárra ára verði allar vélar félags­ins mun spar­neytn­ari en nú er. Þetta skiptir veru­legu máli í rekstr­inum.

Á bjargbrúninni

Ljóst er að SAS stendur á tíma­mótum. Halla­rekstur eins og verið hefur und­an­farið getur ekki haldið áfram lengi enn. Þetta virð­ast sér­fræð­ingar sam­mála um.

Jacob Pedersen, sér­fræð­ingur í flug­rekstri hjá Sydbank sagði í við­tali við frétta­stof­una Ritzau, eftir að árs­fjórð­ungs­skýrslan var birt, að SAS standi á bjarg­brún­inni og hyl­dýpið blasi við. Verð hluta­bréfa í félag­inu hríð­féll í kjöl­far birt­ingar skýrsl­unnar. „Staðan er þannig að innan til­tölu­lega skamms tíma getur reynst mjög erfitt fyrir SAS að halda rekstr­inum gang­andi nema leita til eig­end­anna eftir fjár­magni.“ Stærstu hlut­hafar SAS eru sænska og danska ríkið og sænska Wallenberg fjöl­skyldan.

Ósennilegt að SAS yrði látið rúlla

Danskir fjöl­miðlar hafa und­an­farna daga fjallað heil­mikið um SAS, vanda félags­ins, hverjar séu ástæður þess að rekst­ur­inn gengur ekki betur og hver sé fram­tíð félags­ins. Flestir sér­fræð­ingar eru sam­mála um að félag­inu yrði, einn gang­inn enn, bjargað með ein­hverjum hætti ef í það fer.

Þeir eru líka sam­mála um að mjög ósenni­legt verði að telj­ast að SAS yrði látið rúlla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár