Flóðavarnir fyrir milljarða

Á næstu árum ætla borg­ar­yf­ir­völd í Kaup­manna­höfn að verja millj­örðum króna til flóða­varna. Í nýrri skýrslu kemur fram að ef ekki verði brugð­ist við geti storm­flóð valdið gríð­ar­legu tjóni.

Talið er að flóð á Sjálandi verði mun tíðari í framtíðinni en þau hafa verið. Til þess að takmarka samfélagslegan kostnað vegna flóðanna hefur verið ráðist í mikla flóðavarnauppbyggingu umhverhverfis Kaupmannahöfn.
Talið er að flóð á Sjálandi verði mun tíð­ari í fram­tíð­inni en þau hafa verið. Til þess að tak­marka sam­fé­lags­legan kostnað vegna flóð­anna hefur verið ráð­ist í mikla flóða­var­na­upp­bygg­ingu umhver­hverfis Kaup­manna­höfn. Mynd: EPA

Flestum íbúum Kaup­manna­hafnar er í fersku minni úrhellið laug­ar­dag­inn 2. júlí árið 2011, fyrir réttum sex árum. Úrkoman mæld­ist 150 milli­metrar á tveimur klukku­stundum. Það voru ekki bara elstu menn sem ekki mundu annað eins; Síðan reglu­bundnar úrkomu­mæl­ingar hófust í borg­inni árið 1874 hefur aldrei mælst þar jafn mikil úrkoma og þennan laug­ar­dags­eft­ir­mið­dag, dag­inn eftir kom líka mynd­ar­leg demba. Margar götur í mið­borg­inni voru lík­astar stór­fljóti yfir að líta.

Þótt borg­ar­búar hafi staðið agn­dofa af undrun yfir úrhell­inu gerðu lík­lega fæstir þeirra sér grein fyrir afleið­ing­unum.

Allt á floti alls staðar

Tjónið var gríð­ar­legt, mörg hund­ruð kjall­arar í mið­borg­inni, og víðar, fyllt­ust af vatni sem eyði­lagði allt sem fyrir varð. Vatn flæddi upp úr nið­ur­föllum, vöskum og sal­ernum, talið er að milljón rottur sem höfðu lifað góðu lífi í klóakrörum borg­ar­innar hafi drep­ist. Enginn sakn­aði þeirra en mikil sýk­ing­ar­hætta sem mynd­að­ist kost­aði einn mann lífið. Sex manns brennd­ust illa á fótum af völdum gufu þegar hitakútur tengdur fjar­varma­veitu sprakk. Rafmagn fór af þús­undum húsa, minnstu mun­aði að vatn kæm­ist í raf­magns­töflur og var­araf­stöðvar Rík­is­spít­al­ans, sem er fyrir utan mið­borg­ina, og búið var að gera ráð­staf­anir til að flytja 1.400 sjúk­linga á önnur sjúkra­hús en til þess kom ekki. Eldhúsið í Vestre Fængsel, í vest­ur­hluta borg­ar­innar, fyllt­ist af vatni og fangar og starfs­fólk, sam­tals 600 manns, voru í nokkra daga í fasta­fæði hjá skyndi­bita­staðnum McDonalds. Miklar skemmdir urðu á tón­leika­sal Tívolís og lesta­sam­göngur fóru úr skorðum. Margt fleira mætti nefna.

Tjónið metið á 6 milljarða danskra króna

Strax varð ljóst að fjár­hags­legt tjón væri mikið. Til­kynn­ingar um tjón af völdum flóðs­ins voru rúm­lega 90 þús­und. Í nýlegri skýrslu kom fram að sam­tals hefði fjár­hags­legt tjón numið sex millj­örðum króna (um það bil 92 millj­örðum íslenskra króna) en það segir þó ekki alla sög­una. Danska ríkið og Kaup­manna­hafn­ar­borg tryggja ekki hús­eignir sínar þannig að tjónið var í raun mun meira. einn trygg­inga­sér­fræð­ingur nefndi töl­una 10 millj­arða.

Ekki seinna vænna að bregðast við

Þótt úrhellið í júlí­byrjun 2011 hafi valdið miklu tjóni er þó önnur hætta, og að mati sér­fræð­inga alvar­legri, sem vofir yfir Kaup­manna­höfn og fleiri svæðum á Sjálandi. Það er hættan á storm­flóði.

Á síð­ustu árum hafa storm­flóð nokkrum sinnum valdið tals­verðu tjóni. Árin 2012, 2013 og 2016 varð all­mikið tjón á svæðum kringum Hró­arskeldu­fjörð­inn, en þá hækk­aði sjáv­ar­borð um meira en tvo metra og í jan­úar á þessu ári end­ur­tók sagan sig, að þessu sinni í Kaup­manna­höfn. Í öll skiptin var það langvar­andi stífur vindur sem þrýsti sjónum að landi. Þótt hættan af storm­flóðum hafi lengi verið ljós hafa síend­ur­tekin flóð á síð­ustu árum ýtt við stjórn­völdum. Þau ætla ekki að láta sitja við orðin tóm.

Það er mikið í húfi því sér­fræð­ingar borg­ar­innar telja, sam­kvæmt nýrri skýrslu, að ef ekk­ert yrði að gert gæti kröft­ugt storm­flóð valdið tjóni sem í pen­ingum mælt, gæti numið að minnsta kosti 20 millj­örðum króna (um það bil 310 millj­örðum íslenskra króna). Kostn­aður við flóða­varn­irnar er tal­inn nema allt að 4 millj­örðum króna (um það bil 62 millj­örðum íslenskra króna).

Hættan er mest á flóði úr suðri

Eyjan Amager og hluti Norð­ur­hafn­ar­innar í Kaup­manna­höfn eru að mati sér­fræð­inga þau svæði sem eru í mestri hættu af völdum storm­flóða. Varn­ar­garðar hafa þegar verið reistir að hluta á suð­vest­ur­hluta Amager og vinna stendur yfir við gerð garðs sunnan við flug­vall­ar­svæðið á Kastrup.

Á aust­ur­hluta Amager er gert ráð fyrir varn­ar­görðum á löngum kafla og enn fremur í Norð­ur­höfn­inni þar sem miklar bygg­inga­fram­kvæmdir hafa staðið yfir á síð­ustu árum og er ekki nærri lokið. Slíkum varn­ar­görðum er hins vegar ekki mögu­legt að koma fyrir á innra hafn­ar­svæð­inu í Kaup­manna­höfn, með fram mið­borg­inni, Íslands­bryggju og á Krist­jáns­höfn. Þar verður að finna aðrar lausnir. Á síð­ustu árum hefur einmitt mikið verið byggt á gömlu hafn­ar­svæð­unum, Norður-og Suð­ur­höfn­inni og sömu­leiðis á aust­ur­hluta Amager.

Sjávarhlið

Sér­fræð­ingar borg­ar­innar leggja til að við Norð­ur­höfn­ina verði komið upp eins konar hliði, tví­skiptu, sem hægt verði að loka þegar á þarf að halda. Minna sams­konar hliði, eða loku, verði komið fyrir sunnan við hafn­ar­svæðið, við hrað­braut­ina sem liggur frá Sjálandi og inn í átt að mið­borg­inni og yfir til Sví­þjóðar. Ekki hefur þó verið tekin end­an­leg ákvörðun um að koma fyrir slíkum hliðum en aðferðin er þekkt.

Sammála um flóðavarnirnar

Þótt oft sé hart tek­ist á í borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar og iðu­lega hver höndin upp á móti annarri, ekki síst varð­andi skipu­lags­mál, eru borg­ar­full­trúar á einu máli um að flóða­varn­irnar þoli enga bið og strax þurfi að halda áfram verk­inu sem þegar er hafið eins og áður sagði. Tryggja verði það fjár­magn sem til þurfi. Í skýrsl­unni sem áður var á minnst er sett fram laus­leg fram­kvæmda­á­ætlun og sam­kvæmt henni ætti þessu flóða­varna­verk­efni að verða lokið árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár