365 greiddi 372 milljóna skattaskuld en færði hana sem kröfu

365 miðlar högn­uð­ust um millj­arð fyrir fjár­magns­kostnað, skatta og afskriftir í fyrra. Skuldir fyr­ir­tæk­is­ins hækk­uðu upp í tíu millj­arða króna og greidd skatta­skuld var færð sem krafa í efna­hags­reikn­ingi.

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið 365 miðlar hagn­að­ist um 22 millj­ónir króna á árinu 2015. Það er tölu­verður við­snún­ingur eftir 1,4 millj­arða króna tap á árinu 2014. Ef skatta­skuld, sem fyr­ir­tækið greiddi í fyrra hefði verið færð í rekstr­a­r­eikn­ing í fyrra, hefði 365 tapað um 350 millj­ónum króna. Þess í stað var hin greidda skatta­skuld færð sem krafa, þar sem stjórn­endur 365 við­ur­kenna ekki nið­ur­stöðu skatta­yf­ir­valda og ætla með málið fyrir dóm­stóla.

Rekstr­ar­hagn­aður sam­steypunnar fyrir fjár­magns­kostnað, afskriftir og skatta (EBITDA) var 955 millj­ónir króna en hann var nei­kvæður um 427 millj­ónir króna árið áður. Því er um umtals­verðan við­snún­ing að ræða þar. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi 365 miðla fyrir árið 2015.

Uppi­staðan í jákvæðri nið­ur­stöðu í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins er vegna þess að seld þjón­usta og aðrar tekjur hækk­uðu um rúman einn millj­arð króna á milli ára í 11,2 millj­arða króna. Ekki er sund­ur­liðað í árs­reikn­ingi 365 miðla hvaðan þessar tekjur koma.

Skuldir orðnar tíu milljarðar króna

Þar kemur hins vegar fram að 320 millj­ónir króna hafi verið greiddar inn sem nýtt hlutafé, líkt og Kjarninn greindi frá fyrir skemmstu. Árið áður var greitt inn 445 millj­ónir króna í nýtt hlutafé og því hafa hlut­hafar sam­tals sett inn 765 millj­ónir króna á tveimur árum.

Til við­bótar hafa skuldir 365 miðla vaxið nokkuð hratt og eru nú alls um tíu millj­arðar króna. Þær hækk­uðu um rúman millj­arð króna í fyrra. Þar munar mest um end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­lánum fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra­haust, þegar það færði sig úr við­skiptum hjá Lands­bank­anum og yfir til Arion banka. Við þá breyt­ingu juk­ust lang­tíma­skuldir 365 miðla úr 3,6 millj­örðum króna í 4,8 millj­arða króna. Í árs­reikn­ingnum segir að þessi breyt­ing hafi leitt til lækk­unar á end­ur­greiðslu­byrði fyr­ir­tæk­is­ins á næstu árum, sem þýðir að lengt hafi verið umtals­vert í lánum þess. Allar eignir 365 miðla eru veð­settar sem trygg­ing fyrir end­ur­greiðslu lána fyr­ir­tæk­is­ins hjá Arion banka. Vaxta­gjöld lækk­uðu við þetta úr 568 millj­ónum króna í 541 milljón króna.

Greiddi skattaskuld en gjaldfærði hana ekki

Auk þess greiddi fyr­ir­tækið 372 milljón króna skatta­skuld sem er til­komin vegna öfugs sam­runa þegar félagið Rauðsól, þá í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, keypti fjöl­miðla 365 út úr gamla 365 í nóv­em­ber 2008 á 1,5 millj­arð króna og með yfir­töku á hluta af skuldum félags­ins. Gamla 365 ehf., sem var end­ur­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., fór í þrot og kröfu­hafar þess töp­uðu 3,7 millj­örðum króna.

Þrátt fyrir að þessu skuld hafi verið greidd - en bæði Rík­is­skatt­stjóri og Yfir­skatta­nefnd hafa úrskurðað um hana- þá ætlar 365 ekki að una nið­ur­stöð­unni og und­ir­býr dóms­mál á hendur íslenska rík­inu vegna hennar. Þess vegna er upp­hæðin færð sem krafa í efna­hags­reikn­ingi 365 líkt og hún muni fást end­ur­greidd. Í árs­reikn­ingnum segir: „Ef nið­ur­staða dóm­stóla verður í sam­ræmi við úrskurð Yfir­skatta­nefndar mun það hafa mark­tæk áhrif á eig­in­fjár­stöðu“.

Þá kemur fram að sam­stæða 365 hafi gert samn­inga um kaup á dag­skrár­efni fyrir 3,1 millj­arð króna sem séu „til afhend­inga við sýn­ingu“. Þarna er meðal ann­ars um að ræða samn­ing um sýn­ingu á leikjum úr enska bolt­anum, sem end­ur­samið var um í lok síð­asta árs. Ljóst er að þessi skul­bind­ing er nokkuð umfangs­mikil, enda hækkar lið­ur­inn úr úr 1,7 millj­arði króna á milli ára, eða um 1,4 millj­arða króna.

Laun og lán til hluthafa

Þrátt fyrir að 365 miðlar skuldi háar fjár­hæðir þá bók­færir félagið einnig miklar eignir. Alls eru þær 12,9 millj­arðar króna, og hækka um 1,5 millj­arð króna á milli ára. Uppi­staðan í eignum félags­ins eru óefn­is­legar eignir, að mestu við­skipta­vild, upp á 6,6 millj­arðar króna. Auk þess er liður sem nefn­ist „dag­skrár­birgðir“ met­inn á rúma tvo millj­arða króna og hand­bært fé, sem eru óbundnar bankainn­stæður, var 651 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Handbært fé var 32 millj­ónir króna í lok árs 2014.

Þá á fyr­ir­tækið skatta­inn­eign upp á 703 millj­ónir króna. Hún er til­komin vegna sam­ein­ingar 365 og IP-fjar­skipta, áður móð­ur­fé­lags Tals, á árinu 2013. Í árs­reikn­ingi stendur að „hvorki sam­stæðan né félagið mun greiða tekju­skatt á árinu 2016 vegna yfir­fær­an­legra skatta­legra tapa frá fyrri árum“. Alls nemur yfir­fær­an­legt skatta­legt tap 365 3,8 millj­örðum króna.

Stöðu­gildum hjá 365 fækk­aði úr 391 í 364 á árinu 2015. Alls greiddi fyr­ir­tækið um þrjá millj­arða króna í laun og launa­tengd gjöld, sem er um 100 millj­ónum krónum minna en árið áður. Laun og aðrar greiðslur til stjórnar og æðstu stjórn­enda voru sam­tals 223 millj­ónir króna auk þess sem 365 greiddi 89 millj­ónir króna vegna launa, verk­taka­greiðslna og ráð­gjafa­launa til tveggja hlut­hafa og aðila tengdum þeim. Athygli vekur einnig að kröfur 365 á tengda aðila fara úr sex millj­ónum króna í 107 millj­ónir króna á milli ára. Ekki er til­greint um hvaða hlut­hafa er að ræða.

Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir og félög á hennar vegum eru langstærsti eig­andi 365, með 74,27 pró­sent hlut. Eig­in­maður hennar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, starfar sem ráð­gjafi hjá fyr­ir­tæk­inu og kemur umtals­vert að stjórnun þess, en hann var áður aðal­eig­andi 365. Auk hennar eiga fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Auður 1 (15,8 pró­sent) og félagið Grandier S.A., sem skráð er í Lúx­em­borg en sagt í eigu Sigurðar Bolla­sonar (9,52 pró­sent) stóra eign­ar­hluti í félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár