Flóttafólk hjólar frá Rússlandi til Noregs

Svæðið kringum Kirkenes í Norður-Noregi er kannski ekki það sem flestum kemur fyrst í hug þegar minnst er á reið­hjól og hjól­reiða­fólk. Við landamæra­stöð­ina Storskog, skammt frá Kirkenes, hefur hjól­reiða­fólki fjölgað mjög að und­an­förnu. Það fólk er ekki í skemmti­ferð, þótt ferða­lagið sé vissu­lega óvissu­ferð, í bók­staf­legri merk­ingu.

Storskog stöðin er á landa­mærum Noregs og Rúss­lands og er nyrsta landamæra­stöð Schengen svæð­is­ins. Skammt frá, Rúss­lands­megin, er landamæra­stöð Rússa. Árlega fara um 140 þús­und manns um stöðv­arnar en leiðin um þær er sú eina til að ferð­ast lög­lega land­leið­ina milli land­anna tveggja en landa­mærin spanna 196 kíló­metra. Umferð um landa­mærin jókst til muna eftir fall Sov­ét­ríkj­anna en ferðir hjól­reiða­fólks hafa þó verið fátíðar. Nú ber hins vegar svo við að dag­lega fjölgar þeim sem hjóla yfir landa­mærin, til Noregs.

Ný flóttaleið

Fólkið sem fer um landa­mærin er meðal þeirra millj­óna sem flúið hafa heima­land sitt, Sýrland, síðan borg­ara­styrj­öldin braust út fyrir rúmum fjórum árum. Miðað við allan þann þann fjölda sem dag­lega flýr átökin eru þeir fáir sem fara þessa óvenju­legu, en kannski til­tölu­lega auð­veldu leið. Að minnsta kosti miðað við þá leið sem flestir hafa til þessa valið: að sigla yfir Mið­jarð­ar­hafið. Núna hjóla um það bil eitt hund­rað Sýr­lend­ingar dag­lega frá Rúss­landi til Noregs og fer fjölg­andi.


Danskur blaða­maður dvaldi nýverið um skeið í Kirkenes og fór dag­lega til Storskog landamæra­stöðv­ar­innar til að fylgj­ast með því sem þar gerð­ist. Hann hitti fjöl­marga Sýr­lend­inga sem að hans sögn voru ánægðir með að vera komnir til Noregs þótt flestir hefðu þeir jafn­framt sagt að þeir hefðu óskað þess að þurfa ekki að yfir­gefa föð­ur­landið.

[caption id="attachment_41518" align="alignnone" width="1024"] Búið er að setja upp tíma­bundna mót­töku­stöð í þessu tjaldi. MYND/EPA[/caption]

Búið er að setja upp tímabundna móttökustöð í þessu tjaldi. MYND/EPA
Búið er að setja upp tíma­bundna mót­töku­stöð í þessu tjaldi. MYND/EPA

Auðvelt ferðalag

Danski blaða­mað­ur­inn sagði að það hefði komið sér tals­vert á óvart þegar fólkið sagði honum hve auð­velt það væri að ferð­ast frá Sýrlandi. Ferðin til Noregs hefði ein­ungis tekið þrjá til fjóra daga. Allir þeir sem blaða­mað­ur­inn náði tali af höfðu sömu sögu að segja, höfðu flogið frá hafn­ar­borg­inni Tartus (þar sem Rússar hafa litla flota­stöð) til Murmansk og þaðan áfram með strætó eða leigu­bíl til Niekel (Nikel) sem er skammt frá landa­mærum Rúss­lands og Noregs. Þar keypti fólkið reið­hjól en hélt síðan áfram með bíl með föggur sínar og reið­hjólin. Þegar ófarnir voru hund­rað metrar eða svo að landa­mær­unum stigu Sýr­lend­ing­arnir á bak reið­hjól­unum með allt sitt haf­urtask og hjól­uðu yfir landa­mærin. Þar skildi það reið­skjót­ana eftir enda flest algjör skrapa­tól sem upp­fylla ekki norskar kröfur um slíka far­ar­skjóta, að sögn danska blaða­manns­ins. Hjólunum, um það bil eitt hund­rað á hverjum degi safnar lög­reglan saman og flytur á haug­ana.

Af hverju á reiðhjóli yfir landamærin?

Mörgum kemur það ein­kenni­lega fyrir sjónir að sýr­lenskir flótta­menn, komnir að landa­mærum Noregs, skuli verða sér úti um reið­hjól til að hjóla rúma eitt hund­rað metra, yfir landa­mærin. En fyrir þessu er ástæða. Hún er sú að það er ekki leyfi­legt að fara fót­gang­andi yfir landa­mærin frá Rúss­landi. Lögin segja ein­fald­lega: með far­ar­tæki. Allir vita að þetta með reið­hjólin er algjör sýnd­ar­mennska en það skiptir ekki máli, lög eru lög. Þegar yfir landa­mærin er komið er fólkið skráð en síðan flutt með bílum tíu kíló­metra leið til Kirkines þar sem það fær inni í íþrótta­húsi sem hefur verið breytt í eins konar gisti­heim­ili. Veðr­áttan í Kirkenes er tals­vert öðru­vísi en Sýr­lend­ingar eiga að venj­ast og sala á vetrar-og úti­vi­starfatn­aði hefur marg­fald­ast að und­an­förnu.

Ferðakostnaðurinn

Danski blaða­mað­ur­inn var, eins og áður sagði, undr­andi á því hve auð­velt og fljót­legt það reynd­ist Sýr­lend­ing­unum að kom­ast með þessum hætti til Noregs. Ekki varð hann minna undr­andi þegar hann komst að því að kostn­að­ur­inn við þennan ferða­máta var mun lægri en fólk borgar „flótta­fólks­smygl­ur­unum“ fyrir hið áhættu­sama ferða­lag um Mið­jarð­ar­hafið, ferða­lag sem endar ekki alltaf eins og til er stofnað.

Áhyggjur Norðmanna

Norsk yfir­völd fylgj­ast grannt með því sem ger­ist við landa­mæri Rúss­lands og Noregs. Þau telja nær öruggt að þeim Sýr­lend­ingum sem not­færa sér þessa leið til að kom­ast til Noregs, og hugs­an­lega ann­arra landa, muni fjölga á næst­unni. Yfir­maður landamæra­stöðv­ar­innar við Storskog sagði í við­tali að það fámenna lið sem þar starf­aði gæti ekki með nokkru móti annað þess­ari auknu umferð. Smá­bær­inn Kirkenes, með sína fjögur þús­und íbúa ræður heldur ekki við allan þennan sístækk­andi hóp og nú hafa norsk yfir­völd skipu­lagt flutn­ing flótta­fólks til ann­arra staða í land­inu.

Glæpamenn notfæra sér aðstæðurnar

Ellen Katrine Hætta lög­reglu­stjóri á Austur- Finn­mörku sagði fyrir nokkrum dögum, í við­tali við norska sjón­varps­stöð, að því miður ætti það við varð­andi flótta­fólkið að þar væri mis­jafn sauður í mörgu fé. Nokkuð hefði borið á því að afbrota­menn, einkum Rússar, hefðu reynt að not­færa sér aðstæð­urnar og kom­ast til Noregs. „Þegar yfir landa­mærin kemur maður sem seg­ist vera Sýr­lend­ingur en talar reiprenn­andi rúss­nesku vakna hjá okkur vissar grun­semdir“ sagði lög­reglu­stjór­inn. Í all­nokkrum til­fellum hefði komið í ljós að um væri að ræða rúss­neska afbrota­menn sem væru að reyna að flýja land. Þeim hefur verið snúið til baka.

Þúsundir hafa látið sig hverfa

Flótta­manna­straum­ur­inn und­an­farið hefur komið stjórn­völdum víð­ast hvar á óvart. Sænsk lög­reglu­yf­ir­völd segja að fjöld­inn sé mun meiri en „kerfið“ ráði við og sömu sögu er að segja frá Danmörku. Meðan fólk bíður eftir að úrskurðað verði í málum þess varð­andi land­vist­ar­leyfi láta margir sig hverfa og ef úrskurð­ur­inn er svo á þann veg að synjað er um land­vist­ar­leyfi er umsækj­and­inn horf­inn eins og jörðin hafi gleypt hann. Það sem af er þessu ári hefur sænska útlend­inga­stofn­unin óskað eftir að níu þús­und manns verði vísað úr landi. Af þeim hópi hefur lög­reglan náð sam­bandi við tæpan þriðj­ung, hvar hinir sex þús­und og fjögur hund­ruð eru nið­ur­komnir hefur lög­reglan ekki hug­mynd um. Í Danmörku hefur nítján hund­ruð verið vísað úr landi á þessu ári, lög­reglan veit ekki hvar tæp­lega þrettán hund­ruð manns úr þessum hópi eru nið­ur­komnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár