Vegna mistaka verður staða forstöðumanns Kvikmyndasjóðs ekki auglýst

Skip­un­ar­tími núver­andi for­stöðu­manns fram­lengd­ist sjálf­krafa.

Embætti for­stöðu­manns Kvik­mynda­sjóðs verður ekki aug­lýst laust til umsóknar, eins og hags­muna­að­ilar í grein­inni hafa hvatt til, vegna mis­taka sem gerð voru í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, og stað­festir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þetta við blaðið.

Í Frétta­blað­inu hinn 24. jan­úar var greint frá því að hags­muna­að­ilar í kvik­mynda­iðn­að­inum hefðu skorað á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að aug­lýsa starf for­stöðu­manns Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands laust til umsóknar áður en skip­un­ar­tími Lauf­eyjar Guð­jóns­dóttur rynni út.

Ef aug­lýsa á starfið þarf, sam­kvæmt 23. grein laga um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna, að til­kynna núver­andi for­stöðu­manni það sex mán­uðum áður en skip­un­ar­tím­inn rennur út.

Vegna mis­tak­anna sem Lilja vísar til í við­tali við Frétta­blað­inu verður staðan ekki aug­lýst. „Þau fel­ast í því að í bréfi mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins sem dag­sett var 8. ágúst 2007 var skip­un­ar­tími Lauf­eyjar sagður fram­lengj­ast til 17. ágúst 2013 í stað 17. febr­úar 2013 eins og hefði átt að vera. Sú loka­dag­setn­ing var skráð í ráðu­neyt­inu. End­ur­skipan Lauf­eyjar árið 2013 var svo skráð 17. ágúst 2013 til 17. ágúst 2018, en hefði átt að vera til 17. febr­úar. Þetta þýðir að það hefði átt að vera búið að aug­lýsa stöð­una fyrir 17. ágúst á síð­asta ári en ekki 17. febr­úar síð­ast­lið­inn. Ráðu­neytið telur sig eiga að bera hall­ann af mis­tök­unum. Því fram­leng­ist ráðn­ing­ar­tími Lauf­eyjar sjálf­krafa til árs­ins 2023. Ráðu­neytið fékk auk þess utan­að­kom­andi lög­fræði­á­lit sem stað­festi þessa túlkun,“ segir í Frétta­blað­inu.

Lilja segir við Frétta­blaðið að hún telji það eðli­leg­ast, að aug­lýsa störf for­stöðu­manna rík­is­stofn­anna, til að tryggja fag­legt mat. Í þessu til­felli hafi staðan sem uppi var, komið í veg fyrir að það hafi verið hægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár