200 ár frá orrustunni við Waterloo

Í dag, 18. júní, eru liðin 200 ár frá einni fræg­ustu orr­ustu mann­kyns­sög­unnar, við Waterloo í Belgíu, þar sem her­veldi Napól­e­ons Bonap­arte var end­an­lega brotið á bak aftur. Tug­þús­undir manna (og 15 þús­und hross) lágu í valnum þegar orr­ust­unni, sem stóð í nokkra klukku­tíma, lauk. Allir þekkja nafn for­ingj­ans sem beið lægri hlut í þessum blóð­uga bar­daga en færri vita nöfn sig­ur­vegar­anna. Belgar hafa látið gera sér­stakan minn­is­pen­ing í til­efni tíma­mót­anna. Frakkar reyndu að koma í veg fyrir útgáf­una, en líkt og Napóleon forðum biðu þeir þar lægri hlut.

Íbúum borg­ar­innar Charleroi, 46 kíló­metrum sunnan við Brussel, leist ekki á blik­una þegar Napóleon Bonap­arte birt­ist þar um miðjan júní 1815 með 125 þús­und her­menn sína og 25 þús­und hesta. Um hádeg­is­bil 15. júní hélt hers­ingin af stað í átt að Brussel. Á þeirri leið er bær­inn Ligny og þangað var komið 84 þús­und manna her­lið Prússa undir stjórn Gebhard Leberecht von Blücher.

Napóleon skipti liði sínu upp þannig að um það helm­ingur þess stefndi til Ligny en hinum hluta liðs­ins ætl­aði Napóleon að tefla gegn tæp­lega 70 þús­und manna liði (Bretar, Hol­lend­ingar og Belgar) undir stjórn Wellingtons hers­höfð­ingja sem hafði komið sér fyrir við Quatre Bras, skammt fyrir sunnan Waterloo. Blücher vissi að þrátt fyrir að lið sitt væri fjöl­menn­ara var her Napól­e­ons betur vopnum búinn en hann batt hins­vegar vonir við að Wellington hers­höfð­ingi (Arthur Wellesley) kæmi sér til aðstoðar. Keppi­kefli Napól­e­ons var hins vegar að þessir tveir herir næðu ekki að sam­ein­ast gegn sér.

Til bar­daga kom milli liðs­sveita Wellingtons og Napól­e­ons við Quatre Bras, báðir drógu sveitir sínar til baka en Wellington, sem var þraut­reyndur hers­höfð­ingi, fór með stærstan hluta liðsafla síns til Waterloo og kom sér þar fyrir.

Orrustan við Ligny


Þótt bar­dag­inn við Ligny 16. júní 1815 falli iðu­lega í skugg­ann af orr­ust­unni við Waterloo tveimur dögum síðar á hann ekki skilið að falla í gleymsk­unnar dá. Þarna vann Napóleon Bonap­arte sinn síð­asta sigur í orr­ustu en það var þó vart nema hálfur sigur. Í þess­ari orr­ustu missti Napóleon um það bil 12 þús­und manns og úr liði Blüchers féllu álíka margir. Blücher sjálfur slas­að­ist tals­vert eftir að hestur hans varð fyrir skoti og hers­höfð­ing­inn lenti undir honum. Lið Blüchers hörf­aði undan sveitum Napól­e­ons sem taldi rang­lega að allur vindur væri þar með úr her Prússa. Blücher, sem var tæp­lega 73 ára, hafði hins vegar ekki sagt sitt síð­asta orð en stefndi fljót­lega liði sínu í átt­ina að Waterloo, til liðs við Wellington og sveitir hans.

[caption id="attachment_31860" align="alignnone" width="488"] Stytta af her­tog­anum af Wellington í London. Önnur þekkt stytta er í Glasgow. Mynd: EPA[/caption]

17. júní 1815


Þegar sveitir Napól­e­ons ætl­uðu að sækja fram gegn her Wellingtons við Quatre Bras þar sem barist var dag­inn áður (16. júní) gripu þær í tómt. Napóleon ætl­aði þá að beina sveitum sínum í átt að Waterloo en þá gerði úrhellis­rign­ingu og tún og akrar sem her­sveit­irnar fóru um urðu á auga­bragði ein for­ar­vilpa sem varð nán­ast ófær og ferð her­sveit­anna með níð­þungar fall­byssur sótt­ist seint. Segja má að þarna hafi veðrið gengið í lið með Wellington sem von­að­ist til að sveitir Blüchers næðu fram til Waterloo áður en her Napól­e­ons léti til skarar skríða. Úrhellið gerði Blücher líka erfitt fyrir. Dagurinn leið án þess að til átaka kæmi.

Orrustan við Waterloo


18. júní var Wellington hers­höfð­ingi snemma á fótum. Hann skrif­aði Blücher bréf þar sem hann útskýrði stöð­una og sagði að ef her­sveitir Blüchers næðu ekki fram í tíma myndi hann(Wellington) hörfa í átt­ina til Brussel. Hraðboði reið með skila­boðin og kom með það svar frá Blücher að her sinn, að minnsta kosti hluti hans, myndi ná til Waterloo í tæka tíð.

Stytta af hertoganum af Wellington í London. Önnur þekkt stytta er í Glasgow. Mynd: EPA
Stytta af her­tog­anum af Wellington í London. Önnur þekkt stytta er í Glasgow. Mynd: EPA

Napóleon snæddi morg­un­verð með hers­höfð­ingum sínum. Nokkrir þeirra höfðu efa­semdir um hern­að­ar­á­ætlun Napól­e­ons en hann sagði allar slíkar áhyggjur ástæðu­lausar, Bret­arnir væru ekki miklir her­menn og Wellington ekki mik­ill her­stjórn­andi. Þegar svo bár­ust fréttir af því að her Blüchers væri á leið­inni sagði Napóleon að sá gaml­ingi (Blücher) færi nú ekki hratt yfir og hann þyrfti að minnsta kosti tvo daga í þetta ferða­lag, ef hann kæm­ist þá alla leið. Napóleon hafði ætlað her sínum að ráð­ast gegn sveitum Wellingtons klukkan níu um morg­un­inn en úrhellis­rign­ing varð til þess að ekki var blásið til atlögu fyrr en skömmu fyrir hádegi. Kannski varð þessi töf völd að ósigri Napól­e­ons.

[caption id="attachment_31861" align="aligncenter" width="249"] Napóleon Bonap­arte. Mál­verkið er eftir franska lista­mann­inn Jacques-Louis David. Mynd: EPA[/caption]

napoleon
napo­leon

Erfitt er að sjá fyrir sér atburði þessa dags, enda segja sagn­fræð­ingar gjarna að engin orð geti lýst þeim hryll­ingi sem þarna átti sér stað. Hermenn úr liðum beggja féllu þús­undum saman og særðir og dauð­vona lágu í for­inni án þess að fá nokkra aðstoð, tróð­ust jafn­vel undir í atgang­inum. Þúsundir hesta lágu um allan víg­völl­inn, margir þeirra hel­særðir, aðrir dauðir.

Þegar leið á dag­inn virt­ist her Napól­e­ons vera að ná yfir­hönd­inni og Wellington und­ir­bjó und­an­hald sinna manna. En þá bár­ust þær fréttir að gamli prúss­neski hers­höfð­ing­inn Blücher væri að nálg­ast með sveitir sínar. Þetta olli því að Napóleon gat ekki beitt öllum liðs­styrk sínum gegn her Wellingtons því nú var að honum sótt úr tveimur áttum. Þegar her­sveitir Blüchers náðu til Waterloo varð Napóleon fljót­lega ljóst að bar­áttan væri töpuð og um átta leytið um um kvöldið kom skip­unin til manna hans að nú skyldi hver og einn bjarga sér eins og best hann gæti. Orrustan var töpuð.

For­ing­inn sjálfur komst við illan leik undan á flótta og til­kynnti form­lega afsögn sína í París fjórum dögum síðar. Napóleon bár­ust jafn­framt fregnir af því að Prússar ætl­uðu sér að ná honum, lif­andi eða dauðum, og ætl­aði þá að reyna að kom­ast á skip til Ameríku. Bretar hand­tóku Napóleon áður en af því varð og fluttu síðar til eyj­ar­innar Sankti Helenu þar sem hann lést 5. maí 1821 tæp­lega 52 ára, far­inn að heilsu. Margir sagn­fræð­ingar hafa sagt og skrifað að með ósigri Napól­e­ons við Waterloo hafi verið endi bund­inn á frönsku bylt­ing­una og stór­veld­is­drauma Frakka. Bretar hafi jafn­framt andað léttar.

Wellington hers­höfð­ingi, sem hafði tekið þátt í 60 orr­ustum, snéri sér að stjórn­málum og var um tíma for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hann lést 83 ára gam­all 1852. Blücher hers­höfð­ingi sett­ist að í Krobielowice í suð­vest­ur­hluta Póllands og lést þar tæp­lega árið 1819, tæp­lega 77 ára að aldri.

Waterloo í dag


Allir sem koma til Waterloo skynja anda sög­unnar. Straumur fólks til að skoða þetta sögu­fræga svæði hófst í raun strax dag­inn eftir orr­ust­una. Þá streymdu Belgar á stað­inn til að sjá með eigin augum ummerkin eftir hild­ar­leik­inn. Daglega kemur fjöldi fólks til Waterloo til að sjá þessar sögu­frægu slóðir. Á staðnum er sögu­safn og minja­gripa­verslun, og stutt kvik­mynd sem lýsir gangi orr­ust­unnar er sýnd margoft á hverjum degi í sér­stökum kvik­mynda­safni. Margir klöngr­ast líka þrepin 226 upp á Ljóna­hæð­ina svo­nefndu „Butte de Lion“ en þaðan er mjög gott útsýni yfir svæðið þar sem orr­ustan fór fram. Hæðin er 43 metra há, keilu­laga, og gerð úr jarð­vegi af svæð­inu. Styttan, ljón sem lætur aðra fram­lopp­una hvíla á hnetti, er steypt í brons.

  1. júní ár hvert er sett á svið sýn­ing þar sem líkt er eftir orr­ust­unni 1815. Þátt­tak­endur eru ár hvert um fimm þús­und og mik­ill fjöldi fólks streymir þennan dag til Waterloo til að fylgj­ast með. Að þessu sinni búast skipu­leggj­endur við um 200 þús­und áhorf­endum.

[caption id="attachment_31859" align="alignnone" width="641"] Minn­is­pen­ing­ur­inn umdeildi sem Belgar létu gera. Mynd: EPA[/caption]

Minnispeningurinn umdeildi


Til að minn­ast þess að 200 ár eru nú liðin frá orr­ust­unni við Waterloo ákváðu belgísk stjórn­völd að láta gera sér­stakan minn­is­pen­ing, að verð­gildi tveggja evra. Þessi hug­mynd féll í grýttan jarð­veg meðal Frakka sem sögðu að slíkur pen­ingur myndi ein­ungis ýfa upp gömul sár og í dag hefði Evrópa þörf fyrir sam­stöðu en ekki ágrein­ing vegna gam­alla deilu­mála og átaka. Auk þess mættu aðild­ar­lönd evr­unnar ekki láta slá sér­staka mynt nema hún hefði annað verð­gildi en venju­leg evru­mynt. Þetta ákvæði, um annað verð­gildi, ákváðu Belgarnir að not­færa sér og létu slá sér­stakan minn­is­pen­ing, 70 þús­und stykki, verð­gildið er 2.5 evrur. Við þessu útspili Belga áttu Frakkar ekk­ert svar.

Minnispeningurinn umdeildi sem Belgar létu gera. Mynd: EPA
Minn­is­pen­ing­ur­inn umdeildi sem Belgar létu gera. Mynd: EPA
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár