Segir skynsamlegt að lífeyrissjóðir taki þátt í innviðauppbyggingu

Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu líf­eyr­is­sjóðs, segir að líf­eyr­is­sjóðir gætu tekið þátt í fjár­mögnun margra inn­viða­verk­efna. Aðkoma líf­eyr­is­sjóða að slíkum verk­efnum gæti aukið fjöl­breytni sjóð­anna og dregið úr fjár­fest­inga­á­hættu.

Ólafur Sigurðsson er framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
Ólafur Sig­urðs­son er fram­kvæmda­stjóri Birtu líf­eyr­is­sjóðs. Mynd: Birta lífeyrissjóður

Líf­eyr­is­sjóðir ættu að geta komið meira að fjár­mögnun inn­viða­verk­efna og fjöldi slíkra verk­efna er tækur í sam­starf með fjár­festum að mati Ólafs Sig­urðs­sonar fram­kvæmda­stjóra Birtu Líf­eyr­is­sjóðs en hann var gestur Sprengisands á Bylgj­unni í morgun. Að hans mati þarf fjár­mögnun slíkra verk­efna ekki endi­lega að vera öll á fjár­lögum.

Ólafur nefndi ISAVIA og Landsnet sem dæmi um rík­is­rekin fyr­ir­tæki sem þurfa á fjár­magni að halda til upp­bygg­ingar, fjár­magni sem gæti komið frá Líf­eyr­is­sjóð­unum. „Það er fullt af verk­efnum sem er brýn þörf á að fara í og við höfum horft á þetta sem fjár­fest­ingu sem gæti skilað hag­vexti til fram­tíðar, að inn­við­irnir verði skil­virk­ari,“ sagði Ólafur.

Það sem hefur í staðið í vegi fyrir þess­ari þróun að mati Ólafs eru stjórn­málin: „Þetta er einka­væð­ing eins og svo er kallað. Okkur hefur líka mögu­lega vantað formið til að fara í sam­rekstur. Þetta er ekki endi­lega spurn­ing um að þetta þurfi að fara að fullu í eigu einka­að­ila. Þetta er spurn­ing um það hvort að stjórn­völd, sveit­ar­fé­lög og ríki, sjái sér hag í því að eiga suma hluti með einka­að­ilum, með líf­eyr­is­sjóðum og öðrum.“

Hann sagði aðkomu líf­eyr­is­sjóða að slíkum verk­efnum auka fjöl­breytni eigna sjóð­anna og í því fælist þar af leið­andi áhættu­dreif­ing. Í upp­hafi við­tals­ins ræddu þeir Kristján Krist­jáns­son, stjórn­andi þátt­ar­ins, og Ólafur um þann vanda sem líf­eyr­is­sjóð­irnir standa frammi fyrir í því lág­vaxtaum­hverfi sem nú er til staðar; að skila við­un­andi ávöxtun.

Umhverfismálin sífellt mikilvægari

Að sögn Ólafs eru umhverf­is­málin sífellt ofar á baugi, sér­stak­lega þegar horft er langt fram í tím­ann líkt og líf­eyr­is­sjóðir þurfa að gera í sínum fjár­fest­ingum. Þá geti líf­eyr­is­sjóðir sem fjár­festar haft áhrif þegar kemur að umhverf­is­málum. „Áhrifin sem fjár­festar geta haft, ef þeir vilja hafa áhrif geta verið ann­ars vegar að snið­ganga það sem vont er eða þá að fara inn í það sem þykir ekki gott og hafa jákvæð áhrif til breyt­inga. Enda skilar það við­un­andi ávöxtun og þetta verður hver sjóður fyrir sig að meta,“ sagði hann.

„Við erum á þess­ari veg­ferð að við viljum hafa jákvæð áhrif hvar sem við berum niður. Við viljum taka þátt í hlut­hafa­fundum og segja skoðun okkar. Við vonum að hún auki ávöxtun, dragi úr áhættu og leiði til verð­mæta­sköp­unar,“ sagði Ólafur um stefnu Birtu. Hann sagði auk þess að þau fyr­ir­tæki sem horfi til umhverf­is­mála geti dregið úr kostn­aði. Það hafi auk þess oft og tíðum í för með sér aukna fram­legð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár