Stuðningur við Flokk fólksins fellur um fimm prósentustig í nýrri könnun. Flokkurinn nýtur rúmlega níu prósenta stuðnings. Sjálfstæðisflokkurinn mælist í seilingarfjarlægð frá Samfylkingunni.
Ósátt við fjölmiðlaInga Sæland, leiðtogi Flokks fólksins, hefur verið gagnrýnin á fjölmiðla, þá sérstaklega Morgunblaðið, fyrir umfjöllun um flokkinn undanfarnar vikur.Mynd: Golli
Fylgi annarra flokka sveiflast minna. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með slétt tveggja prósentustiga meiri stuðning nú en í kosningunum; með 21,4 prósenta stuðning. Samfylkingin er rétt um prósenti sterkari nú, með 21,9 prósenta fylgi.
Fylgi Pírata og Vinstri grænna, sem báðir féllu af þingi í kosningunum, hefur lítið breyst frá kosningum.
Könnun Maskína 26. febrúar 2025
Samfylkingin
21,9%
Sjálfstæðisflokkurinn
21,4%
Viðreisn
14,9%
Miðflokkurinn
11,5%
Flokkur fólksins
9,1%
Framsókn
7,3%
Sósíalistaflokkurinn
5,5%
Píratar
3,2%
Vinstri græn
2,8%
0%5%10%15%20%25%
Heimild: Maskína. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir